Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 41
FIMMTUDAGUR 29. júní 2006
Burberry´s hefur ráðið fyrir-
sætuna Kate Moss aftur til
starfa.
Þetta gerist aðeins níu mánuðum
eftir að hún var rekin vegna kóka-
ínneyslu.
Fyrirsætan er aðalstjarnan í
auglýsingaherferð tískurisans
fyrir haust- og vetrartískuna á
þessu ári og því næsta en mynd-
irnar í herferðinni voru teknar af
stjörnuljósmyndaranum Mario
Testino.
Auk Moss er fyrirsætan Stella
Tennant einnig í herferðinni ásamt
dóttur sinni og sonum Bryan
Ferrys, Otis og Isaac.
Moss aftur til Burberry´s
Fréttir af kókaínneyslu Moss voru nægar til
að Burberry´s sagði henni upp á síðasta ári.
Taglið, eða fast eins og Norð-
lendingar kalla það, hefur
alltaf komið í og farið úr tísku,
og nú er það komið aftur.
Taglið í ár passar bæði við hvers-
dagslegan klæðnað en þá er það
frekar laust uppsett. Þegar á að
fara eitthvað fínt er það vel sett
upp og er alls ekki til þess að
bjarga slæmum hárdegi.
Fyrirsætur Miu Miu hafa sést á
tískupöllunum með hárið tekið
saman í tagl við hnakkann á meðan
Pucci-fyrirsæturnar hafa taglið
sleikt aftur. Hollywood fer ekki
varhluta af taglinu og stjörnur á
borð við Keiru Knightley og Gwyn-
eth Paltrow eru ansi hrifnar af
því.
Ekki skemmir fyrir að mörg
mismunandi afbrigði eru til af
töglum og passa þau því við allt.
Hægt er að taka það saman hátt
uppi á hvirflinum eða niðri við
hnakkagrófina og hvar sem er þar
á milli. Til að ná léttri sveiflu á
taglið þá er gott að blása hárið með
glansdropum fyrir hár og renna
sléttujárni síðan hratt yfir endana.
Betra er að setja tagl í óhreint hár
því þá er auðveldara að móta það,
en þeir sem þola ekki skítuga hárið
geta auðvitað notað froðu eða vax.
Mikilvægast er að setja ekki taglið
bara upp einhvern veginn, þó svo
virðist sem ekki þurfi að hafa
mikið fyrir þessari tísku.
„Smoky“ augnmálning og löng
augnhár passa einstaklega vel við
þegar hárið er tekið svona allt frá
andlitinu. -lkg
Tagl á hvirflinum fer Janet Jackson vel. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Paris Hilton er sæt með stutt tagl.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Tekið saman í tagl
Flottur samúræfílíngur í taglinu á fyrirsætu
Matthew Williamson.FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Klassískt tagl við hnakkagrófina hjá fyrir-
sætu Miu Miu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES