Fréttablaðið - 29.06.2006, Qupperneq 45
[ ]
www.svefn.is
Hestamennska sameinar nánd
við dýrin, útivist, umönnun og
skemmtun. Því er hollt fyrir
unga fólkið að upplifa hana.
Reiðskóli Fáks býður börnum
upp á reiðnámskeið.
Edda Rún Ragnarsdóttir tamn-
ingakona er kennari í reiðskóla
Fáks í Faxabóli og þar hitti Frétta-
blaðsfólk hana innan um hesta og
börn. Hún er ekki í nokkrum vafa
um að það sé börnunum mikils
virði að kynnast hestunum og
komast í samband við þá. „Ég tel
það að vera í kringum skepnurnar
hafa mesta þýðingu fyrir krakk-
ana. Að finna að þær eru ekki tölv-
ur,“ segir hún spurð um gildi
hestamennsku fyrir börnin. „Það
liggur misjafnlega á hestunum
alveg eins og okkur. Það þarf að
sýna þeim virðingu og hugsa um
þá og það er frábært fyrir krakka
að kynnast því.“ Edda Rún segir
líka athyglisvert að enginn krakki
kvarti þó að veðrið sé leiðinlegt.
„Þeir láta ekkert í sér heyra. Suma
daga hefur verið spurning um
hvort við kæmumst í reiðtúr vegna
veðurs, en krökkunum finnst þetta
svo gaman að þeir láta rigningu og
rok ekkert á sig fá. Því hefur eng-
inn dagur fallið úr. Þeir myndu
samt aldrei fara út að leika í þessu
veðri.“
Þennan daginn er veðrið yndis-
legt og hópurinn sem við stöldrum
við hjá ætlar í útreiðartúr upp
fyrir Rauðhóla. Í honum eru 7 og 8
ára krakkar og þeir eru duglegir
að leggja á hestana sjálfir og reið-
skjótarnir standa hinir stilltustu
jafnvel þótt skriðið sé undir kvið á
þeim. Edda passar að herða hnakk-
gjarðirnar svo allir verði nú stöð-
ugir á baki. Þessi hópur er í fram-
haldsnámi og er hvergi banginn.
Greinilega orðinn vanur að
umgangast hestana. Þeir krakkar
sem spurðir eru segja útreiðartúr-
ana það skemmtilegasta við nám-
skeiðið.
Láta rigningu og rok
ekkert á sig fá
Edda Rún Ragnarsdóttir, tamningakona og
reiðkennari.
Magnús Ríkarðsson og Kjartan Steinn Gunnarsson. Kjartan er svo efnaður að eiga hestinn
Glóa sem hann er með á námskeiðinu.
Hanna Rakel Bjarnadóttir með Eyrnaslapa
sem er hennar reiðskjóti.
Telma Kristín Stefánsdóttir styttir sér leið
og skríður undir hestinn sem hún er að
leggja á. Margrét Andrésdóttir heldur í.
Börnin eru óhrædd við að leggja í Bugðu enda bera hestarnir þau yfir traustum fótum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI
Fyrirtæki til fyrirmyndar
Nú fer að styttast í Reykjavíkur-
maraþon og margir byrjaðir að
æfa sig fyrir lengri hlaupin, 10
kílómetra, hálft og heilt maraþon.
Mig langar sérstaklega að hrósa
Glitni fyrir framtak sitt til
Reykjavíkurmaraþonsins. Ekki
bara fyrir að vera aðalstyrktar-
aðili þessa stóra íþróttavið-
burðar, heldur ekki síður fyrir að
hvetja starfsfólk sitt til að hlaupa
um leið og Glitnir leggur góðu
málefni lið fyrir hvern kílómetra
sem hver hleypur. Þetta er sann-
arlega til eftirbreytni sem ég
vona að fleiri fyrirtæki taki upp,
því það skilar sér margfalt til
baka. Meiri hreyfing og bættari
heilsa starfsfólks getur ekki
annað en skilað sér til fyrirtækj-
anna með færri veikindadögum,
ánægðara starfsfólki og betri
starfsanda. Svo er alltaf gaman
að taka þátt í einhverju skemmti-
legu með góðum hópi.
Ég veit einnig um fleiri fyrir-
tæki, stór sem smá, sem leggja
mikið upp úr því að hvetja starfs-
menn til að hreyfa og nærast vel.
Þar er til dæmis lagt mikið upp
úr frábæru mötuneyti þar sem
hráefnið er fyrsta flokks og svo
jafnvel nokkrum heilsueflingar-
tímabilum yfir árið þar sem
starfsmenn eru hvattir til að
hreyfa sig og njóta næringar-
ríkrar fæðu. Ég hef til dæmis
heyrt að Toyota og Íslandspóstur
standi sig sérstaklega vel í þess-
um málum og eigi hrós skilið. Á
þeim bæjum er greinilegt að
heilsa starfsmanna skiptir máli
og heilsuvitund er hluti af starfs-
mannastefnu fyrirtækjanna.
Svo eru önnur fyrirtæki sem
þurfa að taka til hjá sér og gera
sér grein fyrir áhrifum fæðu á
afköst, vellíðan og velgengni
starfsmanna sinna. Ég hef til
dæmis unnið hjá tveimur stærri
fjölmiðlafyrirtækjum þessa
lands, Ríkissjónvarpinu og 365
þar sem unnar eru langar vaktir
og oft undir miklu álagi. En nær-
ing er (ef einhverjir hafa ekki
gert sér grein fyrir því ennþá)
ein af undirstöðum þess að
starfsmenn skili því sem til er
ætlast og standist tímaáætlanir.
Góð orka er því grundvallar-
atriði! Það er því ekki heilbrigð
starfsmannastefna sem sam-
þykkir að bjóða upp á pylsur með
öllu, hamborgara og djúpsteikt-
ar franskar eða pitsur í mötu-
neyti sínu. Slíkur matur hefur
þó sjaldan verið á boðstólum hjá
Ríkisútvarpinu, þó þar hafi nokk-
uð vantað upp á ferskleika og
hollustu fyrir nokkrum árum. En
Ríkisútvarpið er frábært dæmi
um fyrirtæki sem hefur sannar-
lega tekið til hjá sér. Nú skilst
mér að fjölbreytnin sé í fyrir-
rúmi og alltaf sé hægt að velja
næringarríka, ferska og létta
máltíð, sem án efa skilar sér til
starfsmanna! En því miður er
ekki hægt að segja sömu sögu
um 365 og örugglega mörg önnur
fyrirtæki sem hafa margt til síns
ágætis eins og önnur fyrirmynd-
arfyrirtæki, en klikka á afar
mikilvægum þætti góðs fyrir-
tækis, að huga að heilsu starf-
manna.
Að lokum langar mig til að
minna á að fjöllin í kringum
okkur bíða þess að verða klifin.
Ferðafélagið býður til dæmis
upp á lengri og styttri göngur.
Nýtum svo frítímann okkar og
sumarfrí til útiveru og njótum
dagsins!
Kær kveðja, Borghildur
Það er ekki gott að þvo hárið of oft í viku því þá verður það þurrt
og fyrr skítugt. Það er því gott að spara sjampóið en hárnæringuna
má nota í hvert skipti sem farið er í sturtu.
Hollt edik
Rannsóknir hafa sýnt að eplaedik hefur
jákvæð áhrif á fjölmarga kvilla. Eplaedik
getur þannig lagað meltingarvandamál,
niðurgang og háan blóðþrýsting. Teskeið
af eplaediki út í glas af volgu vatni er
einnig mjög gott gegn hálsbólgu og
óþægilegum hósta.
Tvær teskeiðar af eplaediki út í
vatnsglas á hverjum degi hefur einnig
góð áhrif á húðina.
Vínedik getur virkað frábærlega ef
það er borið á geitungabit.