Fréttablaðið - 29.06.2006, Side 64
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR40
menning@frettabladid.is
!
> Ekki missa af...
sumartónleikum við
Mývatn sem hefjast
um helgina. Tónlistar-
hópurinn Katla leikur
í Reykjahlíðarkirkju á
laugardaginn.
söngleiknum Footloose
í Borgarleikhúsinu. Frum-
sýning í kvöld og dansvænt
dúndur í Borgarleikhúsinu
í allt sumar.
sumardagskrá Minja-
safnsins á Akureyri. Fjöl-
margir fræðandi viðburðir,
gönguferðir, fyrirlestrar og
sýningar á Eyjafjarðar-
svæðinu.
Kl. 20.30
Þjóðlagatónleikar í Stykkis-
hólmskirkju. Gerður Bolladóttir
sópransöngkona, Hlín Erlendsdóttir
fiðluleikari og Sophie Schoonjans
hörpuleikari flytja veraldleg og
trúarleg þjóðlög en yfirskrift tón-
leikanna er „Fagurt er í Fjörðum“.
Þann 7. júlí munu þær stöllur halda
tónleika á Hólum í Hjaltadal.
Á sýningunni Íslensk tískuhönnun
sem verður opnuð í risi Þjóðmenn-
ingarhússins í dag má sjá verk
eftir tíu íslenska fatahönnuði.
Sýningarstjórinn er þjóðverj-
inn Matthias Wagner sem rekur
fyrirtækið Agentur für gute Gest-
altung í Berlín. Hann setti upp
hliðstæða sýningu í Museum für
Angewandte Kunst í Köln í nóv-
ember síðastliðnum í tengslum við
Íslandshátíð sem þar var haldin.
Sýningin í Þjóðmenningarhús-
inu er þó smærri í sniðum en sýn-
ingin í Köln en þar voru ekki bara
fatahönnuðir sem sýndu verk sín
heldur voru þar verk eftir lista-
menn á öðrum menningarsviðum.
Sýningin hér heima svipar þó til
Kölnarsýningarinnar því uppsetn-
ingin er svipuð, verkin eru sýnd á
gínum og ljósmyndir úr náttúru
landsins þjóna sem baksvið alveg
eins og á sýningunni í Köln. Hönn-
uðirnir sem taka þátt í sýningunni
eru: Anna Guðmundsdóttir, Ásta
Guðmundsdóttir hjá ásta creative
clothes, Dóra Emilsdóttir, Jóna
Björg Jónsdóttir hjá jbj design,
Ragna Fróðadóttir hjá Path of
love, Rósa Helgadóttir, Valgerður
Torfadóttir og Björg Ingadóttir
hjá Spaksmannsspjörum, Stein-
unn Sigurðardóttir og Þorbjörg
Valdimarsdóttir.
Fatnaðurinn sem hönnuðirnir
sýna er þeirra nýjasta hönnun og
sýningin er sérstök fyrir þær
sakir að þar er í fyrsta sinn á
Íslandi eingöngu fjallað um tísku-
hönnun í íslenskri nútímamenn-
ingu. Verkin, sem eru 38 talsins,
eru mjög fjölbreytt og sýna sköp-
unarkraft íslenska tískugeirans.
Í kynningartexta um sýninguna
segir að sérkenni íslenskrar tísku-
hönnunar felist í því að hún tvinn-
ar saman þætti sem virðast and-
stæðir. Íslenskir hönnuðir skýra
þetta með vísun í staðsetningu
eylandsins á milli Ameríku og
Evrópu en um leið nægilega langt
frá báðum heimsálfunum til að
þeir geti þróað eigin hugmyndir.
Uppspretta innblástursins sem
íslensk tískuhönnun nærist á eru
hvítu, fjólubláu, grænu og svörtu
tónarnir sem breytileg birtan í
landslaginu framkallar, fjörugt
næturlífið í Reykjavík, tónlistin,
myndlistin, tæknin og hefðin.
Sýningin stendur til 27. febrúar
2007.
- snæ
Íslensk tískuhönnun
NÝ ÍSLENSK HÖNNUN Sýningarstjórinn Matthias Wagner virðir fyrir sér gínurnar sem klæð-
ast munu íslenskri hönnun í Þjóðmenningarhúsinu fram í febrúar. Sýningin er sérstök að
því leyti að þar er eingöngu fjallað um íslenska tískuhönnun í íslenskri nútímamenningu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Rithöfundurinn Steinunn
Sigurðardóttir verður
sérstakur gestur fagnaðar
í Iðuhúsinu í kvöld. Hún
ræðir um landið og ljóðin
sín og um netvæddan Sól-
skinshest.
Tilefnið er tvöfalt því nýjasta
skáldsaga Steinunnar, Sólskins-
hestur, sem vakti stormandi lukku
í jólabókaflóði síðasta árs er nú
komin í kiljuútgáfu en verður
jafnframt gefin út sem nethljóð-
bók og geta áhugasamir lesendur
nálgast hana á heimasíðu Eddu
útgáfu.
Steinunn kveðst sjálf hafa mik-
inn áhuga á hljóðbókarmiðlinum
og nefnir að hún sé sá angi sem
best dafni í bókaútgáfu í Þýska-
landi. Fyrr í vetur kom skáldsaga
Steinunnar, Ástin fiskanna, út þar
í landi og hlaut prýðis viðtökur og
í vor rataði hún á disk hjá
næststærsta hljóðbókaforlagi
Þýskalands. „Það segir sig sjálft
að fólk sem til dæmis situr í bílum,
klukkustundum saman á hverjum
degi til og frá vinnu, má síður vera
að því að fletta bókum en getur
hlustað á meðan það ferðast,“
útskýrir Steinunn. Hún er þó á því
að þróunin hér á landi sé hæg
miðað við erlendis. „Möguleikarn-
ir hér eru ekki nýttir í neinni lík-
ingu við það sem gerist í útlönd-
um. Blindrabókasafnið hefur til að
mynda unnið ótrúlegt starf en
möguleikanir til að koma efninu á
framfæri eru ennþá takmarkað-
ir.“
Þróunarstökk Eddu
Steinunn er stolt af því að fá að
taka þátt í þessari spennandi til-
raun hjá Eddu og áréttar að raun-
ar sé verið að hlaupa yfir eitt þró-
unarstig því skáldsagan er gerð
aðgengileg beint á netinu en ekki á
diskum enn sem komið er. „Þetta
verður boðið að kostnaðarlausu,
að minnsta kosti til að byrja með
og mér finnst þessi hugmynd mjög
sjarmerandi. Að mínu mati er ekki
verið að taka neitt frá annarri
söluvöru heldur styður þetta við
annan lestur,“ segir hún og kveðst
vona að þessi framsetning opni
leið fyrir nýja lesendur eða hlust-
endur sem annars myndu ekki fá
notið sögunnar.
Ljóðabálkur um landið
„Það er líka gaman að hafa fengið
að lesa verkið sjálf, ég hef langa
reynslu af upplestri og það er ekki
sami hluturinn að heyra höfund-
inn lesa eða einhvern annan. Ég
les þetta með tilþrifum held ég,“
segir hún kímin.
Á kvöldvökunni í Iðuhúsinu
mun Steinunn opna fyrir aðgang
að netútgáfuna en jafnframt lesa
úr skáldsögunni. Hallgrímur Thor-
steinsson og Ásdís Kvaran munu
lesa ljóð eftir Steinunni og Úlf-
hildur Dagsdóttir flytur stutt
erindi um höfundinn og verk henn-
ar. Steinunn mun jafnframt lesa
framhald ljóðsins „Einu-sinni-var-
landið,“ sem fjallkonan Tinna
Hrafnsdóttir flutti á hátíðahöldun-
um 17. júní síðastliðinn.
Skipuleggjendur hátíðahald-
anna fengu Steinunni til þess að
yrkja ljóð í tilefni dagsins, líkt og
skáldkonan Vilborg Dagbjarts-
dóttir gerði í fyrra, en Steinunn
tók þann kostinn að gera sérstaka
útgáfu af ljóði sem tilheyrir sam-
nefndum ljóðaflokki en hluti hans
hafði áður hafði birst í Lesbók
Morgunblaðsins. Í kvöld mun hún
síðan lesa áfram úr bálkinum sem
þó ekki er nándar nærri lokið.
Breiðfylkingin
Hún segir að ljóðið sé nokkuð
nýstárlegt miðað við önnur ljóð
sem íslenskar fjallkonur hafa flutt
á þjóðhátíðardaginn. „Þarna birt-
ist ný sýn á landið eins og það var
þegar fyrsti maðurinn sá það og
síðan heldur ljóðið áfram og þegar
á líður er það borið saman við
landið eins og það er í dag. Það er
ekki mjög glæsileg sjón sem blas-
ir við. Ég held að það komi strax
fram í þessum fyrsta hluta að mín
sýn á þessa eyju er að hún er eitt-
hvað sem er gengið okkur úr
greipum. Í ljóðinu er undiralda
söknuðar eða eftirsjár eftir glöt-
uðu landi,“ segir Steinunn.
Sleppt eða haldið?
„Eitt af því sem er gleðilegt við að
koma heim til Íslands núna er að
sjá að fólk er að vakna. Auðvitað
hefur verið mikil reiði í fólki yfir
því hvernig farið er með landið en
núna er hún að koma upp á yfir-
borðið,“ segir Steinunn og bætir
því við að fólk hafi verið hrætt við
að taka afstöðu í málinu og á
sínum tíma hafi margt verið gert
til að koma óorði á fólk sem vildi
vernda íslenska náttúru. „Fyrir
einu og hálfu ári stóðu þeir sem
enn voru að tala um Kárahnjúka
upp úr eins og skotmörk, það er
ekki lengur þannig – nú er þetta
breiðfylking. Leikurinn núna
snýst samt um að slá þeim
moðreyk í augu fólks að það sé
hægt að vera bæði náttúruvernd-
arsinni og landeyðingarmaður.
Þetta eru ósættanleg sjónarmið.
Þú getur ekki bæði sleppt og hald-
ið í þessum efnum. Spurningin er
bara hversu langt á að ganga með
eitt land?“
Dagskráin í Iðuhúsinu hefst kl.
20 í kvöld og eru allir velkomnir.
kristrun@frettabladid.is
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR, RITHÖFUNDUR Skáldsagan Sólskinshestur er komin í kilju og brátt geta nýjungagjarnir lesendur nálgast
upplestur höfundarins á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Stund með Steinunni
Listakonan Ingunn St. Svavars-
dóttir, Yst, opnar árlega Bragga-
sýningu sína á laugardaginn og
sýnir innsetningar, málverk og
skúlptúra af ýmsum toga.
Ingunn segir að manneskjan í
sínum margbreytileika sé algengt
viðfangsefni þar sem sorgir henn-
ar og þrár, breyskleiki og einlæg
fegurð séu sett fram. „Ég vinn fíg-
úratív verk með abstrakt ívafi í
formi innsetninga, málverka,
teikninga og skúlptúra, innanhúss
sem og útiverk. Einnig vinn ég
verk með texta, örsögur, ljóð og
hendingar, bendingar og ádeilur.
Ég nota líka tilbúna hluti sem ég
set í nýtt samhengi.“
Sýningin stendur að vanda í
tvær vikur en hún er opin alla
daga frá 11-18. - khh
INGUNN ST. SVAVARSDÓTTIR LISTAKONA
Braggasýningin verður opnuð um helgina.
Vettlingatök í Öxarfirði
Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju,
leikur á hádegistónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í
Hallgrímskirkju í dag. Tónleikarnir, sem hefjast kl. 12
og standa í hálftíma, eru skipulagðir í samvinnu við
Félag íslenskra orgelleikara.
Leikur hann Fantasíu og fúgu í g-moll eftir Bach,
þrjá sálmaforleiki úr Leipzig-sálmaforleikjasafni
Bachs og Tokkötu eftir Jón Nordal sem skrifuð var í
minningu Páls Ísólfssonar og frumflutt í Dómkirkj-
unni í Reykjavík árið 1985.
Björn Steinar hefur verið organisti Akureyrarkirkju
síðan 1986 og er virkur í tónlistarlífinu nyðra. Hann
stundaði framhaldsnám í orgelleik á Ítalíu og í
Frakklandi þar sem hann útskrifaðist með ein-
leikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986.
Hann er einnig aðstoðarorganisti við Hallgríms-
kirkju og kennir jafnframt orgelleik við Tónskóla
Þjóðkirkjunnar og við Tónlistarskólann á Akureyri.
Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika
hér heima og erlendis. Einnig hefur hann leikið
einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammer-
hljómsveit Akureyrar og The Cleveland Institute of
Music Orchestra. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp
og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls
Ísólfssonar. Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun
DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var
valinn bæjarlistamaður Akureyrar 2002. - khh
BJÖRN STEINAR SÓLBERGSSON Leikur af list í Hallgríms-
kirkju í dag.
Orgeltónar í hádeginu