Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 66
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR42
Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar
og söngkonan geðþekka Kristjana
Stefánsdóttir munu leggja upp í
tónleikaferð um landið þar sem
þau kynna hljómdiskinn Hvar er
tunglið? sem kom út nýlega. Disk-
urinn inniheldur tónsmíðar Sig-
urðar Flosasonar við texta Aðal-
steins Ásbergs Sigurðssonar en á
honum eru 24 spánný lög.
Ferðin hefst með tónleikum í
Þjóðleikhúskallaranum í kvöld
klukkan 20.30, en alls verða haldn-
ir tíu tónleikar. Auk söngkonunnar
Kristjönu og saxófónleikarans
Sigurðar leikur Eyþór Gunnars-
son á píanó, Valdimar K. Sigur-
jónsson á kontrabassa og Pétur
Östlund á trommur með hljóm-
sveitinni. - khh
Leitað að
tunglinu
HELJARINNAR TÓNLEIKAFERÐ Jazzkvartett
Sigurðar Flosasonar rúntar um landið.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Nafn bókmenntagagnrýnanda Frétta-
blaðsins, Halldórs Guðmundssonar, féll
niður við birtingu umfjöllunar um skáld-
söguna Leyndardómar býflugnanna
eftir Sue Monk Kidd í blaði gærdagsins.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
ÁRÉTTING
SUMARRÚNTURINN
Reykjavík: fimmtudaginn 29. júní, Þjóðleik-
húskjallarinn kl. 20:30
Mývatn: föstudaginn 30. júní og laugar-
dagur 1. júlí, Gamli bærinn kl. 22:00
Stykkishólmur: sunnudaginn 2. júlí, Stykkis-
hólmskirja kl. 17:00
Hvammstangi: mánudaginn 3. júlí, Þinghús-
Bar kl. 21:00
Húsavík: þriðjudaginn 4. júlí, Safnahúsið kl.
20:30
Seyðisfjörður: miðvikudaginn, 5. júlí, Bláa
kirkjan kl. 20:30
Akureyri: fimmtudaginn, 6. júlí, Ketilhúsið
kl. 21:30
Skógar: föstudaginn 7. júlí, Félagsheimilið
Fossbúinn kl. 21:00
Skógar: laugardagur 8. júlí, Byggðasafnið kl.
15:00
Ísfirskir leikhúsunnendur fagna
því að leiklistarhátíðin Act Alone
hefst nú um helgina og áhugasam-
ir gestir á höfuðborgarsvæðinu fá
einnig nasasjón af leiklistinni
eftir helgina. Kómedíuleikhúsið
hefur frumkvæði að hátíðinni og
verða tólf einleikir teknir til sýn-
ingar, þar af þrír erlendir og níu
íslenskir. Elfar Logi Hannesson,
leikari og einn stjórnenda hátíðar-
innar, segir hana meðal fárra leik-
listarhátíða sem helga sig þessu
leikhúsformi. „Við hleyptum
hátíðinni af stokkunum fyrir
þremur árum en sú fyrsta var
fremur smá í sniðum enda voru
aðeins þrír einleikir í boði þá. Í
fyrra voru þeir orðnir tíu en þá
var hátíðin mjög vel sótt og við
bindum vonir við að hið sama gildi
í ár. Á Ísafirði er mikið af fólki af
erlendu bergi brotnu og því tökum
við mið af því í dagskrá okkar,“
segir Elfar. „Gísla saga Súrssonar
verður til dæmis flutt á ensku og
fleiri íslensk verk.“
Hæst ber koma bandaríska ein-
leikarans Eric Bogosian sem setur
hátíðina með einleik sínum The
worst of Eric Bogosian. „Eric
hefur verið einn þekktasti ein-
leikari heimsins síðustu tvo ára-
tugina og vinsældir hans eru síst
að dala. Hann er í raun tromp
þessarar hátíðar,“ bætir Elfar við.
Aðrar leiksýningar á dagskrá
eru Otomoto eftir danska leik-
skáldið og leikarann Ole Brekke
og History of my Stupidity eftir
króatíska leikarann og Íslandsvin-
inn Zeljko Vukmirica. Í báðum til-
vikum eru það höfundarnir sjálfir
sem stíga á stokk og sýna verk
sín.
Að sögn Gunnars Gunnsteins-
sonar, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðu leikhúsanna, samdi
Draumasmiðjan við Kómedíuleik-
húsið um að sýna fyrrgreind leik-
verk í Tjarnarbíói eftir helgina.
„Við ákváðum að reyna líka að fá
verkin til sýningar hér á mölinni.
Leikverkið hans Zeljko er vel
þekkt en það var frumsýnt árið
1979 og hefur síðan ferðast um
heim allan og verið gríðarlega vin-
sælt,“ segir Gunnar.
Ole Brekke leikur trúðinn
Otomoto í sýningu sinni en Ole
hefur oft komið hingað til lands og
átt í samstarfi við íslenskt leikhús
eins og Zeljko sem raunar bjó hér
á landi um nokkurt skeið.
Act Alone-hátíðin á Ísafirði
stendur yfir dagana 29. júní til 2.
júlí en leiksýningarnar Otomoto
og History of my Stupidity verða
sýndar í Tjarnarbíói 3. júlí
klukkan 20.30. - brb
Tólf einleikir sýndir á Ísafirði
LEIKARINN OG LEIKSKÁLDIÐ ZELJKO VUKMIRICA Leikritið History of my Stupidity hefur
farið sigurför um heiminn.
������������
��������������
��������������
�������
����������
����