Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 67
FIMMTUDAGUR 29. júní 2006 43
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
26 27 28 29 30 1 2
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Jazzkvartettinn Tepoki
heldur tónleika í Norræna húsinu.
Tepokinn samanstendur af fjórum
ungum jazztónlistarmönnum sem
allir stunda nám við tónlistarskóla
FÍH. Efniskráin samanstendur af
lögum eftir jazztónlistarmenn á
borð við Freddi Hubbard, Wayne
Shorter og Miles Davis. Aðgangur
er ókeypis og er dagskráin við allra
hæfi.
12.15 Kvintettinn Atlas leikur í
Amina galleríi við Ingólfsstræti.
Hópurinn er Skapandi sumar-
hópur á vegum Hins hússins og
Reykjavíkurborgar og skipaður
ungu tónlistarfólki úr Listaháskóla
Íslands.
17.00 Hljómsveitirnar Hair
Doctor og Skakkamanage leika á
vegum Smekkleysu og tímaritsins
Grapevine. Hair Doctor leikur í
Galleríi Humri eða frægð kl. 17 og
aftur í kvöldið ásamt Skakkamanage
ásamt Café Amsterdam ásamt
Skakkamanage.
20.00 Útskriftartónleikar Brynjars
Konráðssonar trommuleikara
fara fram í Salnum í Kópavogi.
Brynjar leikur verk eftir Jeff Beck,
Dave Weckl, Larry Carlton, Lee
Ritenour og Vital Information.
Aðgangur ókeypis.
20.30 Gerður Bolladóttir sópran,
Hlín Erlendsdóttir fiðla og Sophie
Schoonjans hörpuleikari flytja tón-
leikadagskrána Fagurt er í Fjörðum
í Stykkishólmskirkju.
20.30 Kvartett Sigurðar
Flosasonar leikur lög af geislaplöt-
unni Hvar er tunglið? ásamt söng-
konunni Kristjönu Stefánsdóttur í
Þjóðleikhúskjallaranum.
21.00 Hljómsveitin Ham leikur á
Nasa. Sérstakir gestir verða ísfirsku
prúðmennin í 9/11’s. Húsið opnar
kl. 21.00.
21.30 DJ Lucky spilar soul funk og
reggae á Café Paris.
22.00 Söngkonan Lára heldur tón-
leika á Grand Rokk ásamt hljóm-
sveit. Sérstakur gestur er trúbadúrinn
Lay Low.
Megas leikur á skemmtistaðnum
Yello í Reykjanesbæ.
■ ■ ÚTIVIST
20.00 Fimmta Græna trefils
gangan verður farin frá Reynisvatni
og gengið um skógræktar- og
útivistarsvæðin á austurheiðum
Reykjavíkur undir leiðsögn Björns
Júlíussonar frá Umhverfissviði
Reykjavíkur. Fjallað verður um
sögu svæðisins og um ræktun,
náttúru og umhverfi. Þetta er létt og
fræðandi ganga, sem tekur um tvo
tíma og eru allir velkomnir.
■ ■ BÆKUR
20.00 Steinunnarkvöld í
Iðusal í Lækjargötu. Hallgrímur
Thorsteinsson og Ásdís Kvaran lesa
ljóð Steinunnar Sigurðardóttur og
Úlfhildur Dagsdóttir bókmennta-
fræðingur spjallar um verk henn-
ar. Steinunn les úr skáldsögunni
Sólskinshesti auk þess sem hún
flytur framhald af þjóðhátíðarljóð-
inu Einu-sinni-var-landið sem
fjallkonan flutti á Austurvelli 17. júní
síðastliðinn.
■ ■ UPPÁKOMUR
20.30 Fyrsta kvöldvakan sumarsins
verður haldin í Laufási. Guðrún
Harðardóttir sagnfræðingur á
Þjóðminjasafni Íslands mun kynna
eitt af elstu húsum gamla bæjarins
í Laufási sem gengur undir nafninu
brúðarhús.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Átján ungmenni frá fimm bæjarfé-
lögum á Íslandi taka þátt í
Menningarmótinu Ung i Norden
sem fer fram í Þórshöfn í Færeyj-
um. Íslensku þátttakendurnir eru á
aldrinum 14-16 ára en þau munu
hitta rúmlega 200 önnur ungmenni
frá Norðurlöndunum sem einnig
taka þátt í mótinu. Sara Guðmunds-
dóttir, leik- og söngkona, er listrænn
stjórnandi hópsins en þetta er í
fjórða sinn sem hún gegnir því hlut-
verki á vegum Íþrótta- og tóm-
stundanefndar Hafnarfjarðar. „Ég
fór sjálf á Menningarmótið þegar ég
var unglingur og hafði einstaklega
gaman af. Í þrjú skipti hef ég aftur á
móti gegnt stöðu listræns stjórn-
anda og haldið utan um íslensku
hópana á Ung i Norden, þar sem ég
gegni einnig hlutverki fararstjóra,“
segir Sara.
Að sögn Söru hefur Hafnarfjarð-
arbær séð um þetta verkefni fyrir
Íslands hönd en 15-20 íslenskir ungl-
ingar komast að í hvert sinn. Í þetta
sinn koma þátttakendur frá Höfn í
Hornafirði, Vestmannaeyjum,
Reykjanesbæ, Grindavík, Kópavogi,
Hafnarfirði og Ísafirði. Hún segir
íslenska hópinn ætla að setja upp
tuttugu mínútna leikþátt sem hann
hafði aðeins tvo daga til að æfa.
„Þetta voru býsna erfiðir tveir dagar
nú um síðustu helgi en okkur tókst
þó að berja atriðið saman í lokin og
ég er mjög ánægð með útkomuna.
Krakkarnir eru afskaplega opnir og
óhræddir og það varðar mestu.“
Sara segir atriðið byggjast á lát-
bragðsleik og að unglingarnir séu
allir klæddir í svört föt frá toppi til
táar en andlit þeirra máluð hvít og
eins beri þau hvíta hanska. „Við
þræðum síðan sögu Íslands á gam-
ansaman hátt en ég gegni sjálf hlut-
verki sögumanns og þau koma síðan
fram á sviðið í nokkrum hópum og
leika með látbragði það sem fram
kemur í máli mínu. Þá tókum við
saman tónlistarsyrpu sem spiluð er
undir meðan á sýningu stendur.“
Sara segir ungmenninn hafa æft
atriðið bæði á norsku og ensku til að
tryggja að allir áhorfendur skilji
hvað fram fer á sviðinu.
Hin löndin sem taka þátt í Menn-
ingarmótinu eru Grænland, Finn-
land og Danmörk. Hóparnir dvelja í
viku í Þórshöfn en unglingarnir
munu sækja í kringum 16 listasmiðj-
ur undir stjórn atvinnulistamanna
og vinna saman að þremur stórum
atriðum sem verða flutt í Norður-
landahúsinu síðasta dag menningar-
mótsins. - brb
ÍSLENSK UNGMENNI TAKA ÞÁTT Í MENN-
INGARMÓTI
Vinna að fjölbreyttri listsköpun í Færeyjum.
Norrænt menningarmót
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
�������������� �����������������
������������������������������
�������������� �����������������
29. júní Frumsýning – Uppselt
30. júní – Örfá sæti laus
1. júlí – Uppselt
6. júlí – laus sæti
7. júlí – laus sæti
8. júlí – laus sæti
Miðasalan er í síma 568 8000
www.borgarleikhus.is
www.minnsirkus.is/footloose
Á ÞAKINU
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
NÁNARI UPPLÝSINGAR
FIMMTUD. 29. JÚNÍ 2006
FÖSTUD. 30. JÚNÍ 2006
LAUGARD. 1. JÚLÍ 2006
HJÁLMAR
STUÐ
MENN
HÚSIÐ OPNAR KL. 21
MIÐAVERÐ 2000 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
HÚSIÐ OPNAR KL. 22
MIÐAVERÐ 1000 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
HÚSIÐ OPNAR KL. 23
MIÐAVERÐ 1500 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
HITA UPP
BIRGITTA HAUKDAL/STEFÁN KARL
OG VALGEIR GUÐJÓNSSON
STÓRTÓNLEIKAR
STÓRTÓNLEIKAR
9/11’S
Djass á
Veitingahúsinu Horninu
Hafnarstræti 15
í kvöld kl 21
Seth Sharp
söngvari frá USA
og hljómsveit