Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 70
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR46
bio@frettabladid.is
Eftir frekar rýrt gengi
sumarsmellanna í ár hingað
til bindur Hollywood vonir
við Superman Returns sem
frumsýnd var í Banda-
ríkjunum í gær. Erfiðlega
gekk að koma myndinni á
koppinn en ef marka má
gagnrýnendur þar vestra
er útkoman betri en menn
þorðu að vona og enn ein
rósin í hnappagat leikstjór-
ans Bryans Singer.
Gerð Superman Returns hefur
verið samfelld þrautaganga í ára-
tug. Þrír leikstjórar höfðu verið
fengnir í verkið, þeir Tim Burton,
Brett Ratner og McG, en allir
hættu þeir við þegar á hólminn
var komið. Ófáir leikarar voru
orðaðir við aðalhlutverkið, þar á
meðal Nicholas Cage, Brendan
Fraser, Jake Gyllenhaal og Hay-
den Christiansen en allir heltust
úr lestinni þar sem hvorki gekk
né rak að finna leikstjóra. Eftir að
McG gekk úr skaftinu voru
Warner Bros. orðnir úrkula vonar
um að myndin yrði nokkurn tím-
ann að veruleika, þegar Bryan
Singer rak á fjörur þeirra.
Einlægur aðdáandi Súpermans
Í viðtali við The Boston Herald
segir Singer frá því að hann hafi
verið á Hawaii ásamt samstarfs-
mönnum sínum að vinna að hand-
ritsdrögum að þriðju X-Men
myndinni, þegar Warner Bros.
höfðu samband við hann og sögðu
að þá vantaði nýjan leikstjóra
fyrir Superman Returns. Hann
hugsaði málið í nokkra daga og
ákvað að slá til. Í kjölfarið þurfti
hann að gefa þriðju X-Men mynd-
ina upp á bátinn en Brett Ratner,
sem hafði einmitt verið fenginn
til að leikstýra ofurmenninu,
hljóp í skarðið.
Gagnrýnendur í Bandaríkjun-
um eru flestir á einu máli um að
Singer hafi tekist vel til og endur-
nýjað ofurmennið líkt og Sam
Raimi og Christopher Nolan
gerðu fyrir Spiderman og Batman.
Sjálfur hefur hann verið aðdáandi
stálmannsins frá blautu barns-
beini og hafði lengi langað til að
sjá Súperman aftur á hvíta tjald-
inu og fagnði því tækifærinu að
fá að gera myndina sjálfur.
Farsæll ferill
Singer, sem er rúmlega fertugur,
á að baki tiltölulega stuttan en að
sama skapi farsælan feril. Hann
sló í gegn með The Usual Suspects
árið 1995, en í þeirri mynd komst
Kevin Spacey, sem leikur Lex
Luthor í Superman Returns,
almennilega á kortið og hlaut
meðal annars Óskarsverðlaun
fyrir leik sinn. Næsta mynd hans,
Apt Pupil, lét ekki mikið fyrir sér
fara en er virkilega þess virði að
bera sig eftir. Myndin, sem bygg-
ir á samnefndri smásögu eftir
Stephen King, segir frá skóla-
strák sem er með seinni heims-
styrjöldina á heilanum og kemst á
snoðir um gamlan nasista í hverf-
inu sínu. Strákurinn neyðir þann
gamla til að rifja upp lífið í SS-
sveitunum. Í Apt Pupil lágu leiðir
Singers og Ian McKellen saman í
fyrsta sinn en Singer fékk hann
aftur til liðs við sig í hlutverk
Magneto í X-Men myndunum.
Singer afþakkaði reyndar að
leikstýra X-Men þegar 20th Cent-
ury Fox fór þess fyrst á leit við
hann, þar sem hann þekkti ekkert
til myndasagnanna, en vinur hans
taldi honum hughvarf. Rétt eins
og Súperman hafði X-Men verið í
vinnslu lengi en ekkert gekk.
Singer henti öllum handritsdrög-
um sem til voru og endurskrifaði
söguþráðinn á viku og vann hand-
ritið eftir honum. Útkoman var
einstaklega vel lukkuð sem og
framhaldið, en sem dæmi má
nefna valdi kvikmyndatímaritið
Empire X-Men II bestu kvik-
myndaaðlögun á teiknimyndasögu
fyrr og síðar. Allegórían um minni-
hlutahópa er áberandi í myndun-
um í X-Men, en Singer er hommi
og segir að sú reynsla að tilheyra
minnihlutahópi hafi tvímælalaust
sett svip sinn á handritið.
Áhersla á persónusköpun
Myndir Singers eiga það sameig-
inlegt að mikið er gert úr per-
sónusköpun; til dæmis eiga The
Usual Suspects og X-Men það
sameiginlegt að vel er unnið úr
fjölbreyttu persónugalleríi og
sálfræðistríðið í Apt Pupil sver
sig í sömu ætt.
Þótt fyrstu aðsóknartölur verði
ekki kunngjörðar fyrr en eftir
helgi telja Warner Bros. sig hafa
veðjaða á réttan hest því Singer
hefur þegar verið fenginn til að
leikstýra annarri mynd um ofur-
mennið og er gert ráð fyrir að hún
komi út árið 2009. Hann hvílir sig
hins vegar á myndasöguhetjunum
í millitíðinni því á næsta ári kemur
myndin The Mayor of Castro
Street út. Hún fjallar um Harvey
Milk, fyrsta hommann sem vitað
er til að hafi verið kjörinn borgar-
fulltrúi í San Francisco, en árið
1982 skaut annar borgarfulltrúi
hann til bana.
Superman Returns verður
frumsýnd á Íslandi 14. júlí.
bergsteinn@frettabladid.is
Bjargar Bryan Singer sumrinu?
BRYAN SINGER Stendur hér inn í líkani af Metropolis, heimaborg Súpermans. Singer hefur þegar fallist á að leikstýra annarri mynd um stálmanninn.
OFURMENNIÐ NÝJA Fjölmargir leikarar
komu til greina en Singer vildi óþekkt
andlit og fékk til liðs við sig leikarann unga
Brandon Routh.
Should I bolt every time I get
that feeling in my gut when I
meet someone new? Well, I’ve
been listening to my gut since
I was 14 years old, and frankly
speaking, I’ve come to the conc-
lusion that my guts have shit
for brains.
Plötusalinn Rob Gordon (John Cusack) lítur yfir sviðið
og reynir að komast að hvers vegna öll hans ástar-
sambönd hafa farið úrskeiðis. Úr High Fidelity frá 2000.
Þriðja myndin í Fast and the
Furious-seríunni er komin í íslensk
kvikmyndahús. Hún ber yfir-
skriftina Tokyo Drift enda gerist
sagan að þessu sinni í Tókýó. Aðal-
persóna myndarinnar er Sean Bos-
well (leikinn af Lucas Black) en
þátttaka hans í götukappakstri
hefur gert hann mjög óvinsælan
hjá yfirvöldum svo hann neyðist
til að setjast að í Tókýó.
Þar í borg kemst hann fljótt í
kynni við Twinkie (leikinn af Bow
Wow) sem er vel tengdur inn í
kappakstursbransann í Tókýó.
Fyrr en varir er Sean sokkinn
djúpt ofan í þennan heim. En hann
lendir í erfiðum málum þegar
hann fellur fyrir kærustu aðal-
kappakstursgaursins. Fyrir hönd-
um er erfitt uppgjör sem aðeins
annar aðilinn kemst heill út úr.
Tokyo Drift er sýnd í Sambíóun-
um, Laugarásbíói og Borgarbíói á
Akureyri.
Kappakstur
í Tókýó
TOKYO DRIFT Sean Boswell kynnist Twinkie
sem kemur honum á bragðið í kappakstri
í Tókýó.
The Lake House er nýjasta mynd
Söndru Bullock og Keanu Reeves
en leikstjórinn er Alejandro
Agresti. Myndin fjallar um ein-
mana lækni, sem Sandra Bullock
leikur, og arkitekt sem lifa í sama
húsi með tveggja ára millibili en
verða ástfangin í gegnum bréfa-
skipti. Á dularfullan geta þau
skrifast reglulega á þrátt fyrir að
árið sé 2004 hjá einu þeirra en
2006 hjá hinu. Parið reynir að
komast að því hvað gerir samband
þeirra svo sérstakt og freista þess
að hitta hvort annað en við það er
sambandinu stofnað í hættu.
Tímalaus ást
THE LAKE HOUSE Reeves og Bullock eru
stórgóðir leikarar og njóta sín í mynd-
inni sem er með nokkuð óvenjulegan
söguþráð.
Eftirlætis kvikmynd: Þessi er erfið. Það
er auðvitað breytilegt dag frá degi hvaða
mynd er í uppáhaldi. Það eru auðvitað til
frábærar myndir sem maður vill samt ekki
sjá nema einu sinni en svo eru þessar sem
maður getur horft á aftur og aftur. Nokkrar
slíkar sem mér detta í hug eru Manhattan
Murder Mystery eftir Woody Allen, Maður
án fortíðar eftir Aki Kaurismäki og A Mighty
Wind eftir Christopher Guest.
Eftirminnilegasta atriðið: Fyrsta minningin
í bíó er frá því ég sá Oliver Twist fjögurra
ára gömul. Ég man vel eftir því að þegar Bill
Sykes náði Oliver í annað sinn var mér allri
lokið. Mér fannst ekki á raunir þessa drengs
bætandi og heimtaði að fara út. Þessu
man ég enn eftir svo það hlýtur að vera
eftirminnilegasta atriðið.
Uppáhalds leikstjóri: Pedro Almodóvar,
Woody Allen, Todd Solondz, Jane Campion
og John Sayles koma öll upp í hugann.
Uppáhalds íslenska myndin: Sódóma
Reykjavík er frábær. Svo er líka mikil nost-
algía tengd Með allt á hreinu. Þetta er fyrsta
íslenska myndin sem ég sá í bíó og hafði
gaman af. Svo er tónlistin líka skemmtileg.
Mesta hetja hvíta tjaldsins: Clint East-
wood í spagettívestrunum frægu eftir Sergio
Leone.
Mesti skúrkurinn: Anthony Hopkins í hlut-
verki Hannibals Lecter í Lömbin þagna er
auðvitað klassískur og Ming the Mercyless
sem Max Von Sydow túlkaði svo eftirminni-
lega í Flash Gordon.
Hvaða persóna fer mest í taugarnar á
þér? Ég man ekki eftir neinum sem fer
rosalega í taugarnar á mér, ætli ég leiði
slíka karaktera hjá mér í staðinn þess að
láta þá eyðileggja myndina fyrir mér.
Ef þú fengir að velja
kvikmynd til að leika í,
leikstjóra og mótleikara,
hvernig mynd yrði það?
Það yrði annað hvort
spagettívestri í leikstjórn
Sergio Leone eða film-noir
mynd sem sem Carol
Reed myndi leikstýra. Ætli
mig dreymi ekki bara um
að leika í The Third Man
á móti Orson Welles og
félögum.
KVIKMYNDANJÖRÐURINN MARÍANNA CLARA LÚTHERSDÓTTIR LEIKKONA
Oliver Twist eftirminnilegastur