Fréttablaðið - 29.06.2006, Page 86
29. júní 2006 FIMMTUDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Warren Buffet
2 Brúnó
3 Þvagsýrugigt
HRÓSIÐ
... fær tónlistarmaðurinn Baldvin
Ringsted sem seldi eitt laga sinna
í bandaríska hafnaboltaauglýs-
ingu.
LÁRÉTT
2 land 6 skammstöfun 8 hljóma 9
æxlunarkorn 11 vafi 12 stuttur 14 líf-
hvati 16 tveir eins 17 gerast 18 enþá
20 bardagi 21 málmhúða.
LÓÐRÉTT
1 voð 3 holskrúfa 4 heimsálfa 5 kóf
7 óunnið efni 10 hætta 13 suss 15
vega 16 skref 19 ónefndur.
LAUSN
Hamborgarakóngurinn Tómas
Tómasson hefur opnað enn eina
hamborgarabúlluna. Fyrir rekur
Tommi hamborgarastaði við
Geirsgötu, á Egilsstöðum og í
Hafnarfirði, sem allir eru undir
heitinu Hamborgarabúlla Tómasar.
Fjórða hamborgarabúllan og jafn-
framt sú nýjasta er til húsa við
hliðina á Húsgagnahöllinni við
Bíldshöfða. Staðurinn tekur um
fimmtíu manns í sæti og er því
stærsti hamborgarastaðurinn í
hinni sístækkandi keðju Tomma.
Eins og hinir staðirnir er hann
samtíningur af hinu og þessu.
Þannig eru húsgögn staðarins
meðal annars úr Góða hirðinum.
„Frægasti básinn af gamla
Hard Rock, bás 301, er líka á
staðnum sem er stórt og mikið
átta manna borð sem var mjög
vinsælt meðal lítilla vinahópa,“
segir Tommi og bætir við að það
að nýta það sem til er gefi staðnum
heimilislegt yfirbragð. Á staðnum
er líka krakkahorn með flatskjá
fyrir teiknimyndir og gestir
staðarins þurfa ekki að láta sér
leiðast á meðan beðið er eftir
matnum því hægt er að dunda sér
við að teikna listaverk sem prýða
munu loft staðarins.
Akureyringurinn Óðinn Geirs-
son hefur verið ráðinn rekstrar-
stjóri nýja staðarins, en hann er
lærður bakari.
Í júlí hyggur Tommi á breytingar
á matseðli búllanna en þá bætist
gamla góða grísasamlokan af Hard
Rock á seðilinn, en hún er samsett
úr grísastrimlum í barbeque-sósu
sem settir eru í hamborgarabrauð
ásamt hrásalati. Aðspurður um það
hvort fleiri búllur séu væntanleg-
ar svarar Tommi hlæjandi: „Það er
bara heimsyfirráð eða dauði.“
snaefridur@frettabladid.is
TÓMAS TÓMASSON: OPNAR ENN EINN HAMBORGARASTAÐINN
Búlluveldið stækkar enn
HAMBORGARAKÓNGUR Tommi á ham-
borgarabúllunni breiðir úr sér. Í júlí bætist
grísasamloka á matseðilinn.
FJÓRÐA BÚLLAN Starfsmenn Hamborgarabúllunnar á Bíldshöfða 18 bjóða gestum meðal annars til sætis á borð 301 af Hard Rock Café.
Staðurinn er annars mjög fjölskylduvænn og er með góðu leikhorni fyrir börn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVALÁRÉTT: 2 írak, 6 eh, 8 óma, 9 gró, 11
ef, 12 lágur, 14 ensím, 16 ff, 17 ske, 18
enn, 20 at, 21 tina.
LÓÐRÉTT: 1 segl, 3 ró, 4 ameríka, 5
kaf, 7 hráefni, 10 ógn, 13 uss, 15 meta,
16 fet, 19 nn.
ÚTILEGA
Um helgina er hin árlega útilega háskóla-
nema. Í ár er ferðinni heitið í Hallgeirsey
og er stútfull dagskrá alla helgina.
Ferðin kostar 3.900 krónur fyrir
háskólanema, annars 4.500
krónur.
SIRKUSMARKAÐURINN
Í portinu á bak við skemmtistaðinn
Sirkus er starfræktur skemmtilegur
markaður á föstudögum og laugardög-
um í allt sumar. Þar er hægt að finna
skemmtilega hluti á kjaraverði.
FATAHÖNNUNAR-
SÝNING
Í dag opnar sýningin
„Íslensk tískuhönnun“
í Þjóðmenningarhús-
inu. Tilvalið að leggja
leið sína þangað
og berja íslenska
hönnun augum.
TÓNLEIKAR
Í kvöld eru tónleikar á
vegum Grapevine og
Smekkleysu á Kaffi
Amsterdam. Það er
hljómsveitin Hair-
doctor sem stígur
á svið kl. 21 og
kostar 500
kr. inn.
MATUR
Um helgar er alltaf gott að gera vel við
sig og fá sér góðan mat. Sushismiðjan
er staðsett við Reykjavíkurhöfn og hvað
er betra en að gæða sér á hráum fiski í
hafgolunni?
BÍÓ
Ef veðurguðirnir verða í
vondu skapi um helgina
er tilvalið að skella sér
á nýju myndina með
gamanleikaranum Adam
Sandler, CLICK, sem
frumsýnd var fyrir
stuttu.
Góð helgi...
Hljómsveitin Start, með Eirík
Hauksson í fararbroddi, gefur út
nýtt lag á safnplötu sem kemur út
þann 7. júlí.
Lagið nefnist Heilræðavísur
og er það fyrsta frá sveitinni frá
árinu 1981, eða í 25 ár. „Þetta er
lag sem ég fann í Noregi sem ég
á. Ég átti texta síðan 1984 eða ´85
sem smellpassaði fyrir þetta
ákveðna lag. Þannig að við skelltum
því í upptökur,“ segir Eiríkur.
„Þetta er frekar einfaldur
rokkari. Við erum svona rétt að
minna á okkur,“ segir hann. Hann
útilokar ekki að stór plata verði
tekin upp með sveitinni í fram-
tíðinni.
Start spilar á Players í Kópa-
vogi á laugardagskvöld. Sveitin
spilaði síðast á Players í apríl við
mjög góðar undirtektir og ákvað
því að endurtaka leikinn. „Við
höfðum voðalega gaman að þessu
síðast og okkur langaði að prófa
aftur,“ segir Eiríkur. - fb
Fyrsta lag Start í 25 ár
START Hljómsveitin Start spilar á Players í Kópavogi á laugardagskvöld.
FRÉTTIR AF FÓLKI
B irgir Guðmundsson, lektor við Háskólann á Akureyri, fagnar
fimmtugsafmæli sínu á morgun. Búist
er við fjölda gesta í Ketilshúsið þar sem
veislan verður haldin, enda Birgir vina-
margur maður og þekktur fyrir störf sín í
fjölmiðlum. Síðustu misseri hefur Birgir
verið vinsæll gestur í ýmsum spjallþátt-
um og er gjarnan fenginn til að segja
álit sitt á málum í fjölmiðlum. Því hafa
sumir gengið svo langt að uppnefna
hann Álitsgjafa Íslands þó að Birgir vilji
eflaust ekki kannast við
þann titil. Meðal gesta
í veislunni verða gamlir
skólabræður Birgis,
Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra,
Már Guðmundsson
hagfræðingur og
Tryggvi Jónsson,
gjarnan kenndur
við Heklu.
Lokaþáttur Strákanna er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld að loknum fréttum.
Þeir Auðunn Blöndal, Sverrir Þór
Sverrisson, Pétur Jóhann Sigfús-
son auk hjálparmanna hafa haldið
þættinum úti síðan í febrúar á síðasta
ári. Samkvæmt upplýsingum frá Stöð
2 eru þættirnir orðnir 280 talsins, þeir
hafa tekið um 160 áskorunum og
Ofur-Hugi hefur 84 sinnum tekið upp
á ótrúlegustu hlutum. Þá eru ótaldar
allar vakningarnar, földu myndavélarnar
og ólíka stjórnun svo eitthvað sé nefnt.
Strákarnir fara nú í frí og þegar þeir snúa
til baka hefja þeir vinnu við nýja þætti
sem verða á dagskrá Stöðvar 2 næsta
vetur. Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir skemmstu munu
Strákarnir skipta
sér upp og
verða því að
minnsta
kosti
tveir nýir
þættir á
skjánum
í haust.
Gestir skemmtistaðarins Sirkuss duttu sannarlega í lukkupottinn á laugar-
dagskvöldið þegar tónlistarkonan Björk
Guðmundsdóttir hélt veglega veislu á
heimili sínu. Björk er einn af fastagestum
Sirkuss og bauð öðrum fastagestum
og vinum heim til sín í
Vesturbæinn. Partí
Bjarkar stóð fram eftir
nóttu og meðal gesta
voru þeir Heiðar
Örn Kristjánsson og
Ragnar Páll Steins-
son úr hljómsveit-
inni Botnleðju og
leikarinn Benedikt
Erlingsson. - hdm
opið alla laugardaga 11-14
Á GRILLIÐ! NÝR HUMAR, LÚÐA,
VILLTUR LAX, SKÖTUSELUR og KEILA
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
k
u
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
a
fn
a
rf
jö
rð
u
r.
S
tr
a
u
m
u
ri
n
n
!!
!
D
ra
u
m
u
ri
n
n
!!
!