Fréttablaðið - 29.06.2006, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Þegar þú kaupir gjaldeyri fyrir
20 þúsund krónur eða færð þér
MasterCard kreditkort færðu stórt
og fallegt handklæði í kaupbæti.
Farðu í fríið með fjármálin á þurru:
• Kreditkort
- þægilegasti og öruggasti
greiðslumátinn í útlöndum.
• Netbankinn
- yfirsýn og helstu bankaaðgerðir
hvar sem er í heiminum.
• Reglulegur sparnaður
- leggðu drög að næsta fríi.
• Greiðsluþjónusta
- láttu okkur sjá um að borga
reikningana.
Þú færð nánari upplýsingar hjá
þjónustufulltrúum í útibúum Glitnis,
í þjónustuveri í síma 440 4000
og á www.glitnir.is
ÞAU ERU
KOMIN!
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
����������
����������
Nú á dögunum gengu í garð ný lög sem heimila hommum og
lesbíum að búa saman og njóta
sömu réttinda og aðrir hvað það
varðar. Einnig gefst nú samkyn-
hneigðum pörum tækifæri á að
sækja um að ættleiða börn.
ÉG þekki marga homma. Margir
af þeim eru mjög góðir vinir mínir,
mér finnst vænt um þá og er þakk-
látur fyrir að hafa kynnst þeim.
Þeir hafa auðgað líf mitt með til-
veru sinni og vináttu. Ég þekki
líka nokkrar lesbíur.
ÞETTA fólk er ekkert öðru vísi en
annað fólk sem ég hef kynnst á
lífsleiðinni. Ef eitthvað er þá eru
samkynhneigðir vinir mínir á
margan hátt næmari fyrir lífinu
en gengur og gerist. Það er ekki að
ástæðulausu hve margir lista-
menn eru samkynhneigðir. Ég geri
engan greinarmun á vinum mínum
eftir kynhneigðum þeirra.
ÉG held að samkynhneigð sé aðal-
lega meðfædd. Svo held ég líka að
þeir séu til sem kjósa hana sem
lífsstíl. Guð skapaði samkyn-
hneigð. Hann gerði það af ástæðu.
Samkynhneigð er engin synd.
Samkynhneigðir eru eins misjafn-
ir og þeir eru margir. Og á heild-
ina litið eru þeir ekkert öðru vísi
en annað fólk og eiga skilin sömu
réttindi og allir aðrir.
ÉG sé ekkert því til fyrirstöðu að
samkynhneigðir fái að giftast. Þær
kirkjur sem vilja gefa saman sam-
kynhneigð hjón ættu að mega það.
Og þær kirkjur sem vilja það ekki
eiga líka að hafa rétt á því, án þess
að þurfa að þola eitthvað skítkast.
Gagnkvæmrar virðingar er þörf.
HJÓNABAND tveggja karl-
manna hefur engin bein áhrif á
hjónaband mitt. Mér finnst það
ekki gera lítið úr því eða ógna því
á nokkurn hátt. Það hefur hrein-
lega ekkert með það að gera, ekki
frekar en önnur sambönd í kring-
um mig. Að börn alist upp með eða
hjá samkynhneigðum foreldrum
mótar þau minna en innræti for-
eldranna. Ég held að mörg börn
væru betur komin meðal homma
og lesbía en hjá mörgum drykk-
felldum og gagnkynhneigðum,
íslenskum hjónum. Ég sjálfur er
alinn upp af miðaldra keðjureykj-
andi konum í greiðslusloppum. Ég
hvorki reyki né geng í greiðslu-
slopp, né fer reglulega í lagningu.
GUÐ skapar homma og lesbíur
vegna þess að hann elskar þau eins
og annað fólk sem hann skapar.
Vegir Guðs eru órannsakanlegir.
Ég óska hommum og lesbíum inni-
lega til hamingju með þennan
áfanga og samgleðst þeim inni-
lega.
Argasta réttlæti
AUGL†SINGASÍMI
550 5000