Tíminn - 22.01.1978, Blaðsíða 6
6
Sunnudagur 22. janúar 1978
Móðir Carters er
víðförul kona
m
miím$$ yjyfym
♦ ♦••
»♦••
♦ ••♦
♦ ♦♦•
♦ ♦••
• •••
• •♦•
• •••
• ••♦
• ♦••
♦ ♦♦•
• •♦•
♦ ♦♦•
Miss Lillian er hún kölluð, jafnt af
kunnugum sem i blöðum i Bandarikj-
unum, en fréttir af henni birtast
nokkuð oft upp á siðkastið, þvi að
áhugi almennings hefur vaknað á
þessari dugmiklu öldnu konu, þegar
hún komst i sviðsljósið ásamt syni
sinum við forsetakjörið. Carter hefur
m.a. sent hana sem opinberan full-
trúa sinn við ýmis tækifæri og hún
staðið sig með prýði, þrátt fyrir háan
aldur en hún er orðin 79 ára. Nýlega
var frú Carter — eða miss Lillian — á
miklu ferðalagi i írlandi sem fulltrúi
Bandarikjanna og var henni tekið þar
með kostum og kynjum. Hún var
varla komin heim til Bandarikjanna
aftur þegar henni var boðið að taka
þátt i hátið i New York i tilefni af 250
ára afmæli indversku borgarinnar
Jaipur. Miss Lillian vann um tima i
friðarsveit við liknarstörf i Indlandi
í spegli tímans
aðallega i Bombay og þar i nágrenn-
inu. — Ég komst aldrei til Jaipur,
sagði frúin, en mér finnst mjög
gaman að fá tækifæri til þess að halda
hátiðlegt afmæli borgarinnar þvi að
mér finnst svo vænt um Indland og
allt sem indverskt er. Þessu til árétt-
ingar mætti miss Lillian i sari — ind-
verskum þjóðbúningi — sem hún bar
mjög vel.
Afmælishátiðin var haldin i hinu vin-
sæla diskóteki Studio 54 á Manhattan
— en nú var þvi öllu breytt og voru
indverskar skreytingar alls staðar
svo að engu var likara en verið væri i
indverskum furstagarði.
Blaðamaður spurði miss Lillian
hvernig hún kynni við sig á slikum
næturskemmtistað og kvað hún sér
lika ágætlega. Þá spurði blaða-
maðurinn hvort hún héldi að forset-
inn sonur hennar hefði komið á svona
næturklúbb. — Jú liklega, sagði hún
en hann myndi aldrei segja mér frá
þvi. Hinn sonur minn Billy myndi
aftur á móti segja mér það og hafa
gaman af, sagði hún og hló.
♦ ♦♦♦
♦ •♦•
• •♦♦
• •••
• •••
• ♦♦♦
• ♦♦♦
• •••
• ♦♦•
♦ •♦•
• •♦♦
• •♦♦
• ♦♦♦
♦♦♦♦
♦ ♦♦•
♦ ♦♦•i
♦ ••♦f
♦ •♦♦'
með morgunkaffinu
HVELL-GEIRI