Tíminn - 29.01.1978, Síða 16

Tíminn - 29.01.1978, Síða 16
16 Sunnudagur 29. janúar 1978. menn og málefni Hin leiðin út úr orkukreppunni Annar vegurinn er beinn og vandlega skipulagOur. Þaö er vegurinn til hins hátækni. I ... en samt ekki um seinan að halda inn á hina brautina sem ekki er jafnbein en vædda kjarnorkuþjóðfélags með miðstýrt sérfræðingaveldi og strangar llfsskorður | vægir manninum og náttúrunni og býður upp á notalegri og manneskjulegri llfshætti. og eftirlit... Margir visindamenn og hugsuðir viða um heim eru þeirr- ar skoðunar að mannkynið hafi stefnt út i ófæru á siðustu áratug- um. Þar eiga þeir ekki aðeins við það að með ofvæðingu og ofgnótt hinna miklu neyzluþjóðfélaga og fáránlegum herbúnaði stórveld- anna nálgist veröldin óðfluga þá stund, er sú orka sem ekki endur- nýjar sig, verði á þrotum og þekktar birgðir málma á jöröunni uppurnar. Þeir eiga lika við fleira en þaö, að endalaus hagvöxtur sé órökvist og fráleitt hugtak og hraðbraut til tortimingar. Og þeir eiga við fleira en það að mengun- in, reykurinn af réttunum i veizlunni miklu geri út af við borgir og þjóðlönd og eitri höf og andrúmsloft. Ofvæöingunni sem svo fast er sótt, hlýtur einnig að fylgja annað segja þeir: Gerbreytt þjóðfélög, þar sem maðurinn veröur minna peö en hann hefur nokkru sinni áður verið i sögu sinni jafnvel á meðan hann reikaði umkomulaus um sléttur og skóga og bar ekki nema frumstætt skyn á þá jörö er hafði fætt hann af sér. t hinni nýju veröld ofvæðingarinnar veröur maöurinn, einstaklingurinn ekk- ert nema núll i sambýli viö vélar og múgurinn, meginþorri alls fólks eins og maurar i þúfu. Upp munu risa þjóðfélög, allt annarrar gerðar en við nú þekkj- um þar sem iðjuhöldarnir og sér- fræðingarnir, sem einum. veröur fært að skilja þá vélaheima er við taka ef svo fer fram sem horfir, verða drottnandi og hafa ráö allra hinna gersamlega i hendi sér. Viðnáms- hreyfing sænskra jafnaðar- manna Viða um heim, einkum þar sem iðnvæðingin er komin á hæst stig á sér stað mikil umræða um þessi efni og i mótun eru margs konar samtök sem á einni eða annarri forsendu vilja hamla gegn ofvæð- ingu og ofneyzlu. Kannski er það óttinn við mengunina sem er sterkasta driffjöðrin eins og stendur og eru vistfræðingar heilsufræðingar og náttúru- verndarmenn bar viða fremstir i flokki. En aðrir horfa jafnframt eða jafnvel enn frekar á aðrar hættur sem þeir eygja. Þessi nýju viðhorf eru sums staðar tekin að hafa mikil áhrif á stjórnmálaflokka og er nærtækt að vitna i viðhorf forsætisráð- herra Svia, Falldins, og fylgis- manna hans til kjarnorkuvera En einmitt i Sviþjóð eru margvíslég samtök manna, sem á þessa sveif leggjast, og þar á meðal er hreyf- ing sem ekki færri en tólf hundruð flokksbundnir jafnaöarmenn margir hverjir þekktir, eiga aöild að. Þessir sænsku jafnaðarmenn segja sem svo: ,,Það er ekki satt að atvinnullf- ið þarfnistkjarnorku og sifelldrar orkuviðbótar. Þvert á móti er orkan notuð til þess aö fækka vinnandi höndum. Háþróað og yfirvætt orkuþjóðfélag mun siðan fæða af sér sérfræöingaveldi, þar sem hin nýja stétt hálærðra manna mun ráða rikjum. Það er aðeins þessi nýja stétt, ásamt iðjuhöldunum og þeim, sem tök hafa á kaupsýslunni er kemur i kjölfarið er hefur hag af þessu. Það þjóðfélag eitt þar sem orku- væðing er innan hóflegra marka getur jafnaö hlutskipti fólks og deilt lifsgæðum af nokkru réttlæti hvort heldur er innan landamæra rikja eða þjóða á milli. Það er meö öðrum orðum þjóðfélag þar sem ofvæðing leyfist ekki, er eitt getur fætt af sér farsæld og heilla- vænlega lifshætti”. A þessa leið ferst þeim orð, þessum sænsku jafnaöarmönn- um, sem nóg finnst um orku- væðingarákefð ráðandi manna i flokki sinum. Hödd Lovins hins enska Langsterkasta hreyfingin i þessa átt er þó i engilsaxneskum löndum, og oddviti hennar er brezkur eðlisfræðingur, Amory Lovin, sem áður hefur unnið að áætlunum um stórkostleg há- orkuver. Hann segir: ,,Sá vegur sem við höfum varð- að inn i miðstýröa hátæknivædda og áhættusama framtið i krafti kjarnorkuvera og orka sem feng- in er úr kolum, oliu og gasi er vegur glötunarinnar. En það er ekki of seint að velja aðra leið — orkunýtingu sem er einfaldari og smærri i sniðum en meiri að heill- um.” Það eru orkulindir sem endur- nýja sig sjálfar, er Lovin vill, aö nýttar séu og hann telur, að þær gæti nægt til allra raunverulegra almannaþarfa. Hann likir kjarn- orkuverum við það, ef vélknúin stórviðarsög væri notuö til þess að skera smjör. „Viö skulum brjóta hnetur með hnetubrjót og reka niður staura með fall- hamri”, segir hann ,,en ekki öfugt”. Hann segir, að þegar eigi sér stað gifurleg orkusóun, og þar sem það sé i þann veginn að verta kleift að geyma raforku með við- ráðanlegum kostnaði geti orka sólar og vinda nægt til allra venjulegra nota og þar við bætist siöan vatnsorka, sem virkja má án náttúruspjalla gufuorka I jöröu niðri og sjávarföll við strendur og eyjar. Honum finnst fáránlegt að sækja oliu á hafsbotn með ærinni áhættu eöa vinna ben- sin úr kolum, þar sem með auð- veldu móti megi með sama árangri nota afgangsafuröir er til falla við skógaryrkju og búskap sem eldsneyti á bifreiðir. Litlar orkustöðvar affarasælli Lovin segir, að litlar orku- stöövar séu miklu æskilegri en stórar. Þær séu viðráöanlegar fólki.sem eitthvað kann litiö eitt fyrir sér, en sérfræðinga einna aö stjórna kjarnorkuverum. Með skemmdarverkum á stórum orkuverum megi valda öngþveiti á stórum svæðum, og i striði geti óvinurinn sett allt á annan end- ann meö þvi að granda slikum stöðvum. Aftur á móti gerist eng- in stórtiðindi, þótt ein og ein vindrafstöö eða sólfangari á hús- þaki skemmist. Þess vegna telur hann að stór orkuver eigi aöeins að nota þar, sem stóriðja til raun- verulegra þarfa krefst mikillar orku. Notalegri tilvera og betra lif Olfan verður fyrirsjáanlega ur- in upp. Við getum frestaö þvi um skamman tima segir Lovin, með þvi að fullkomna vinnsluaðferðir og reisa skorður við þvi að gálauslega sé farið með hana. En við eigum ekki að biða þess tima að allt sé á þrotum. Við eig- um að hefjast handa um það I tæka tið að breyta orkuvenjum okkar og vikja lika þvi frá okkur að treysta á kjarnorku til fram- búðar. Hann segir það haldlaus rök að slikt hafi i för meö sér svo miklar þjóðfélagsbreytingar að ekki sé leggjandi út á þá braut þess vegna. Kjarnorkuverin muni einnig draga dilk á eftir sér og ekki síður valda þjóðfélags- breytingum. En sá munur sé, að tilhugsunin um víðtæka kjarn- væðingu veki ugg og ótta meðal þeirra sem skyn bera á og vilja ekki loka augunum fyrir hættunni en hin nýju úrræöi séu til þess fallin að gera tilveruna notalegri og veita fleiri einstaklingum llfs- fyllingu. Og Lovin fullyrðir, að úrræði hans séu ekki heldur dýrari i peningum reiknað heldur en bygging og rekstur kjarnorku- vera. Hverjir eru drauniw óramenn? Þeim sem þessu máli tala er oft brugðið um, að þeir séu draum- óramenn eöa hugsjónamenn, sem ekki horfist I augu við veruleik- ann. En hvað mikið af vangavelt- um manna, sem þessu slá fram i trausti þess að þeir standi sjálfir báðum fótum á jörðunni er ekki byggt á þvi, að svo og svo mikið af oliu finnist á svæöum, þar sem aldrei hefur nein olia komið i leitirnar og engum likum verður stutt að hún sé yfirleitt til? Eru þess háttar tilgátur byggðar á einhverju þvi sem hald er aö? Getur verið heppilegt að hafa þær til leiðsagnar.þegar forystumenn stórþjóða eru að móta stefnu sina i orkumálum? En margt af þvi sem þar hefur verið tekið gott og gilt, segir Lovin eru einmitt spá- dómar um það, sem enginn veit hvort rætast eða ekki. Þetta er aðeins sýnishorn af þeirri umræðu sem nú fer fram um það, hvað sé til ráða i yfir- spenntum heimi, þar sem litill hluti mannkyns hefur gerzt svo djarftækur til þess sem lengi átti að endast, að ugg vekur. Þeir sem þó vildu helzt þagga niöur allar slikar raddir, komast ekki hjá þvi að hlusta á Amory Lovin sökum fortiðar hans og óumdeildrar þekkingar á þeim velli er hann hefur haslað sér. En sá maður sem breyta vill rás framvindunnar á þungan róður fyrir höndum, enda ekki i litið ráðizt. Þess vegna verður það hvorki I dag né á morgun, að sjónarmið Lovins og þeirra sem liku máli tala, verða viðurkennd. Þar er við örugðan að etja, þar sem er sjálft það kerfi er iðn- væddar þjóöir búa við. Hættur i öllum áttum En þessari umræðu mun ekki linna. Hún mun þvert á móti fær- ast I aukana á komandi árum og fleiri og fleiri leggja við hlustirn- ar. Margt mun stuöla aö þvi. Sífellt beinist athyglin aö nýj- um og nýjum hættum, sem sigla I kjölfar tækninnar og orkuspenn- unnar. Sumt af þvi eru staöreynd- ir.sem ekki verður lengur á móti mælt annaö getgátur eöa illur grunur. Er mannkynið að kalla yfir sig veðurlagsbreytingar sem munu valda þvi aö jöklar bráðna og lönd færast i kaf? Eru þeir að rjúfa ózónlagið? Hvaða hættur hefur oliuvinnsla og málmnám á hafsbotni I för með sér? Hver hefur á takteinum forsagnir um það hvernig varöveita skal geislavirk efni sem haugast upp, ef kjarnorkuver þjóta upp um all- ar jarðir? Hvernig á að aftra stórslysum, ef margir tugir þjóða geta komiö sér upp kjarnorku- vopnum? Hvað flýgur i hugann þegar hugsað er til stjórnenda eins og þeir gerast nú i fjölda landa i Suður-Ameriku, Afriku og Asiu, margir hverjir miskunnar- lausir fjöldamorðingjar og illa. ábyrgir gerða sinna hvort heldur hvitir eða svartir eða eitthvað þar á milli. Bak við þetta allt glottir svo framtið með þjóðfélög sem eng- inn veit hversu ófrýnilega mynd geta á sig tekið þegar kapp- hlaupið um tæknina hefur verið breytt nógu lengi. Byltingin étur börnin sin, hefur verið sagt. Tæknin getur ekki siður gert það. JH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.