Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 22
22 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR Glitnir greiðir 3.000 kr. fyrir hvern kílómetra sem starfsfólk bankans hleypur í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis. Féð rennur óskipt til góðgerðarfélags sem starfsmaðurinn velur. Yfir 400 starfsmenn hafa nú þegar skráð sig og þannig lagt nöfn sín við góð málefni. Þú getur einnig heitið á starfsmenn Glitnis á www.glitnir.is og lagt þitt af mörkum. ÞÍN VELGENGNI ER OKKAR VERKEFNI Glitnir heitir á starfsfólk sitt og greiðir 3.000 kr. fyrir hvern kílómetra VIÐ LEGGJUM NÖFN OKKAR VIÐ GÓÐ MÁLEFNI Reykjavíkurmaraþon Glitnis fer fram laugardaginn 19. ágúst. Glitnir hvetur starfsmenn sína til að taka þátt og mun gefa 3.000 kr. til góðgerðarmála fyrir hvern hlaupinn kílómetra. Starfsmenn- irnir ákveða sjálfir hversu langt þeir hlaupa og velja sjálfir hvaða góðgerðasamtök fá að njóta fram- lagsins. Á www.glitnir.is er hægt að sjá hvaða góðgerðasamtök starfs- menn hlaupa fyrir og heita á þá. Skemmtiskokkið er ræst kl. 11 og markar upphaf Menningarnætur 2006 en síðari ár hefur Reykja- víkurmaraþonið verið hlaupið sama dag. Gert ráð fyrir að allt að hundrað þúsund manns sæki þessi tvo viðburði og því ljóst að það verður sannkölluð karnival- stemmning í bænum þennan dag. Allar tegundir listgreina og óheft hugmyndaauðgi borgarbúa einkennir dagskrá Menningarnæt með. Fjölmörg fyrirtæki, félög og stofnanir sýna á sér nýja hlið og standa fyrir metnaðarfullri dag- skrá, auk þess sem allar listasto- anir og gallerí í miðborginni eru galopin með óteljandi viðburð- um. Skráning í Reykjavíkurma er í fullum gangmmmi á heimasíðu maraþonsins www.marathon.is og á glitnir.is Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að taka þátt og þeir sem ekki ætla að hlaupa geta verið í klappliðinu því ekki veitir af að styðja þá sem ætla að hlaupa. Eins og undanfarin ár verða veitt verðlaun fyrir skemleg furðufatabúninginn. Gera má ráð fyrir einhverjum truflunum á umferð í Vesturbæ á meðan hlauparar fara þar í gegn, sérstaklega milli kl. 11.10 og 12.00. Reykjavíkurmaraþon biður akandi og gangandi vegfarendur að sýna hlaupurum tillitsemi. Kort af leiðinni er að finna á marathon.is. Afar gott samstarf hefur verið milli Höfuðborgar- stofu og þeirra sem sinna öryggis- og umferðarmálum. Á Menning- nótt verður starfandi aðgerðamiðstöð Lögreglunnar í Reykjavík, Slökkviliðs höfuðborgsvæðisins, Slysa- og bráðavaktar LSH, Reykjavíkur- borgar og fleiri, sem bera ábyrgð á öryggismálum á Menningarnótt. Aðgerðamiðstöð af þessu tagi mun án vafa efla samskipti allra þeirra sem koma að umferðar- og öryggis-málum á Menningarnótt og ekki síður auka öryggi Reykvíkinga og gesta þeirra þennan dag. Auk þess mun lögregla og slökkvilið hafa aðstöðu fyrir viðbragðslið sitt í Ingólfsstræti við Sölvhólsgötu. Lögreglan í Reykjavík mun kapp- kosta að liðsinna ökumönnum og öðrum vegfarendum vegna þessa viðburðar og reyna eftir föngum að sjá til þess að fólk komist leiðar sinnar úr miðborginni eftir hefð- bundna dagskrá. Þó er alveg ljóst að vegfarendur verða að undirbúa sig undir einhverjar umferðartafir. Fjöldi lögreglumanna verður við umferðarlöggæslu og samhliða umferðarstjórnuninni verða um- ferðarljós á Sæbraut og Hring- braut/Miklubraut tekin úr sam- bandi þegar formlegri dagskrá lýkur. Vonast er til að þessi umferðarstýring liðki vel fyrir allri umferð og bindur lögreglan miklar vonir við að ný og endur- bætt Hringbraut skili auknum afköstum á umferðarflæði. Umferðardeild Lögreglunnar í Reyk javík mun sinna eftirliti með lokun gatna í tengslum við áðurnefnda viðburði. Fjölmör gum götum verður lokað, líkt og undanfarin ár, annars vegar í tengslum við maraþonið og hins vegar varðandi Menningarnótt. Útlistun á lokun gatna verður auglýst síðar og sett á vef Lögre- glunnar í Reykjavík. Dagskrá Menningarnætur og Reykjavíkurmaraþonsins er fyrir alla aldurshópa enda hefur það sýnt sig að fjölskyldur halda gjarnan hópinn þennan dag. Mannfjöldinn í miðborginni verður mikill á laugardaginn og er umtalverður viðbúnaður hafður til þess að allt geti farið vel fram. Dagskránni lýkur með stórfenglegri flugeldasýningu við Reykjavíkurhöfn. Reykjavíkurmaraþonið er miðað að því að vera skemmtun fyrir alla fjölskylduna og þess vegna er boðið er upp á fjölskylduafslátt í Skemmtiskokkinu. Afslátturinn eykst eftir því sem fólk skráir fleiri börn (12 ára og yngri). Maraþonhlaupið sjálft er opið öllum 18 ára og eldri. Hálf- maraþonhlaupið er opið hlaup- urum 16 ára og eldri. 10 km og skemmtiskokkið eru öllum opin. Þó er bent á að æskilegt sé að 12 ára og yngri hlaupi 10 km aðeins með góðum undirbúningi. Reykjavíkurmaraþonið skiptist í fimm mislöng hlaup sem henta öllum; fjölskyldum, trimmurum og keppnisfólki. Latabæjar- maraþon er ný vegalengd og er 1,5 km að lengd. Hlaupið hefst í Lækjargötu kl. 14.15. Íþrótta- álfurinn mun tryggja að allir leggi af stað í hlaupið með bros á vör með upphitun sem hefst kl. 13.45. Latabæjarmaraþonið er ætlað börnum yngri en 11 ára og fá allir þátttakendur s érstaka boli og viðurkenningu að loknu hlaupi. Foreldrar sem fylgja börnum í Latabæjarhlaupinu þurfa ekki að skrá sig. Hlaupaleiðin er út Lækjargötu og Fríkirkjuveg yfir tjarnarbrú og farið meðfram litlu tjörninni og út á Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg og endar fyrir framan útibú Glitnis í Lækjargötu. Allir þátttakendur fá stuttermabol þegar þeir sækja keppnisgögn í Laugardalshöllina, föstudaginn 18. ágúst kl. 12.0¬0–21.00. Þátttakendum er boðið í sund í Reykjavík á hlaupadaginn og daginn eftir, sunnudaginn 20. ágúst í boði ÍTR og til pastaveislu, í boði Barilla, föstudaginn 18. ágúst kl. 18.00–21.00 í félagshei- mili Félags eldri borgarara í Reyk- javík í Glæsibæ. Í sjálfu hlaupinu verða drykkjarstöðvar á u.þ.b. 5 km fresti. Þar verður boðið upp á Powerade íþ róttadrykk, vatn og banana. Í Lækjargötu verður auk þess boðið upp á Coca Cola. Færanleg salerni verða nálægt 5 km, 12 km, 18 km, 23 km og 34 km. Læknar og hjúkrunarlið verður til reiðu meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar er hlauparar koma í mark. Félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík veita aðstoð á hlaupaleiðinni og við markið. Verndari hlaupsins er Borgarstjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Aðalsamstarfsaðili Reykjavíkur maraþonsins er Glitnir en aðrir samstarfsaðilar eru Icelandair, mmReykjavíkurborg, ÍTR, Asics, Powerade, Barilla, 365, argt smá Félag fótaaðgerðafræðinga, skáta í Reykjavík, Íslensk getspá og Íslenskar getraunir. Leggðu grunninn að frábærum degi. Skráðu alla fjölskylduna og fáðu allar nánari upplýsingar á www.glitnir.is. Starfsmenn Glitnis hlaupa til góðs Birna Ein arsdóttir Sími: 44 0 4000 Fax: 44 0 46040 www.giltn ir.isKirkjusan di IS-155 R eykjavík Ég hle yp 10 km fy rir Spegil inn - átrösk un Sverrir Sigusveinsson Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp21 km fyrirSpegilinn Helgi Anton Eiríksson Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km fyrir Amnesty International An na S . C ar ls dó tt ir Sí m i: 44 0 40 00 Fa x: 44 0 46 04 0 w w w .g ilt ni r. is 53 7 Ú tib ú Þa ra ba kk a IS -1 55 R ey kj av ík Ég hl ey p 10 k m fy rir Ba rn ah eil l Guðrún Benediktsdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040www.giltnir.is 545 Útibú Hafnarfirði IS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km fyrir Barnaheill Lee Roy Tipto n Sími: 440 40 00 Fax: 440 46 040 www.giltnir.isK irkjusandi IS-155 Reykja vík Ég hleyp 3 km fy rir Blátt áfr am Elmar Svavarsson Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyrirBarnaspítala Hringsins Anna R ósa Rób ertsdótt ir Sími: 440 40 00 Fax: 440 46 040 www.gi ltnir.is Kirkjus andi IS-155 Reykja vík Ég hle yp 3 km fyrir Blátt áfram Benedikt Guðmundsson Sími: 440 4000 Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km fyr ir Blátt áfram Bjarni Ármannsson Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp42,2 km fyrirBlátt áfram Tryggvi Björnsson Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 21km fyrir Blindrafélagið Ólína Bergs veinsd Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir .isKirkjusand i IS-155 Rey kjavík Ég hle yp 3 km fyrir CP fél agið Guðn ý Sigu rðardó ttir Sími: 440 4000 Fax: 440 4 6040 www. giltni r.is Kirkju sandi IS-15 5 Rey kjavík Ég h leyp 10 k m fy rir Eins tök börn Guðmund ur Kristjá nsson Sími: 44 0 4000 Fax: 44 0 46040 www.gilt nir.is525 Útib ú Háaleit isbraut IS-155 R eykjavík Ég hley p 10 km fyrir Félag a ðstand enda alzheim ersjúkl inga Kristín Björg K onráðsdóttir Sími: 440 40 00 Fax: 440 46 040 www.giltnir.is515S Afgreiðsl a Kringlunni IS-155 Reykja vík Ég hleyp 10 km fyrir Félag áhug afólksl um Downs - h eilkenni Kristín Jóna Kristj ánsdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hley p 10 km fyrir Félag h eyrnarl ausra Aðalheiður Lind Þorsteinsdóttir Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km fyrirGeðhjálp Jóh ann Wa thn e Sím i: 44 0 4 00 0 Fax : 44 0 4 60 40 ww w.g iltn ir.i s Kir kju san di IS- 15 5 R eyk jav íkÉg h leyp 10 k m fy rir ABC Bar nah jálp Stefán Eiríks S tefánss on Sími: 440 40 00 Fax: 440 46 040 www.gi ltnir.is Kirkjus andi IS-155 Reykja vík Ég h leyp 21 k m fyr ir Félag heyr narlau sra Auður Gilsdóttir Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 3 km fyrir Sjálfsbjörg Kristján Þ. Davíðsson Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 3 km fyrir Sjálfsbjörg Birna E inarsdó ttir Sími: 440 40 00 Fax: 440 46 040 www.gi ltnir.is Kirkjus andi IS-155 Reykja vík Ég hl eyp 1 0 km fyrir Speg ilinn - átr ösku n Hallgrímur Magnús Sigurjónsson Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is 556 Útibú ÍsafirðiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyrirStyrktarfélag fatlaðra Vestfjörðum Edda Þorsteinsdóttir Sími: 440 4000Fax: 440 46040 www.giltni .is 515S Afgreiðsla Kringlunni IS-155 Reykjavík Ég hleyp 3 km fyrirStyrktarfélag krabbameins- sjúkra barna Sveinn Bjarn ason Sími: 40 4 0 Fax: 440 4 6040 www.giltnir.i sKirkjusand i IS-155 Reyk javík hleyp 21 km fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Ólafur Stefánsson Sím i: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 3 km fyrir Styrktarfélag vangefinna Eiríkur R. Eiríksson Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyrir Umhyggju Guðmu ndur S . Ragn arsson Sími: 440 4 000 Fax: 440 4 6040 www.g iltnir.i s Kirkju sandi IS-155 Reykj avík Ég hley p 3 km fyrir Umsjó narfél ag ein hverfr Kristín Baldursdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyr ir UNIFEM Arnfinnur Teitur Ottesen Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is KirkjusandiIS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyrir Þjót - félag fatlaðra á Akranesi Gu ðn i M ag nú s I ng vas on Sím i: 44 0 4 00 0 Fa x: 44 0 4 60 40 ww w. gil tni r.i s Ki rkj us an di IS -1 55 R ey kja vík Ég h ley p 3 km fy rir Ge ðh já lp A rnfríður A rnardóttir S ím i: 4 4 0 4 0 0 0 Fax: 4 4 0 4 6 0 4 0 w w w .giltnir.is K irkjusandi IS -1 5 5 R eykjavík Ég hleyp 3 km fyrir Hringurinn Valur Ægisson Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km fyrir Hjartavern Brynjólfur Gíslaso Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is 528 Útibú Stórhöfði IS-155 Reykjavík Ég hleyp21 km fyrir Krabbameinsfélag Íslands M argrét Sveinsdóttir Sím i: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km fyrir Umhyggju Ind riði Jó han nss on Sím i: 44 0 4 00 0 Fax : 44 0 4 60 40 ww w.g iltn ir.i s Kir kju san di IS- 15 5 R eyk jav ík Ég hley p 1 0 k m f y ir MN D f élag ið Vignir Þór Sverrisson Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyrirNei tann - Styrktarfélag hjartveikra barna Rósa Guðmundsdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 3 km fyriGeðhjálp Bala Murughan Kamallakharan Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 42,2 km fyrir Samtök sykursjúkra Hjördís Björnsdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjavík Ég hleyp 21 km fyr ir SEM samtökin Arnheiður Edda Rafnsdóttir Sími: 440 4000Fax: 440 46040www.giltnir.is Ég hleyp 10 km fyrir Sjálfsbjörg Klara Ísfeld Árnadóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is 517 Útibú Laugavegi IS-155 Reykjavík Ég hle p3 km fyrir SÁÁBjarni Ármann sson Sími: 440 400 0 Fax: 440 4604 0 www. giltni r.is Kirkj usan di IS-15 5 Re ykjav ík Ég h leyp 42,2 km f yrir Blátt áfra m Sig rún Kj art an sd ótt ir Sím i: 44 0 4 00 0 Fa x: 44 0 4 60 40 ww w. gil tni r.is Kir kju san di IS- 15 5 R eyk jav ík Ég hle yp 42, 2 k m fyr ir MS fé lag ið Í REYKJAVÍKURMARAÞONI GLITNIS Bja rne y H arð ard ótt ir Sím i: 44 0 4 00 0 Fa x: 44 0 4 60 40 ww w. gil tni r.i s Ki rkj us an di IS -1 55 R ey kja vík Ég hl ey p 10 km fy rir Hj ar tav ern d Í Dagbók Þráins Bertels- sonar er meðal annars sagt frá erfiðum degi, ýsunni sem kettir óttuð- ust, spæleggi úr kjarna- kljúfi og tólf flöskum af 75% vodka. ■ FIMMTUDAGUR, 3. ÁGÚST Ekki minn dagur Það er fátt sem mér er eins illa við og að vera vakinn upp um miðjar nætur til að rogast með ferðatösk- ur. Því miður virðast íslenskir ferðamálafrömuðir hafa fengið það á heilann að Íslendingar telji sumarleyfum sínum vel varið í að leggja upp í ferða- lög á ókristilegum tíma. Ég fyrir mitt leyti er þeirrar skoðunar að það sé frámunalega bjánalegt að selja fólki skemmtiferðir sem eiga að hefjast kl. hálfsex að morgni dags. Ég geri mér ljóst að þetta er gert til að ná hámarksflug- tímum út úr einhverjum flugvélabeyglum, en ég er nú einu sinni þeirrar skoðunar að skemmtiferðir eigi að skipuleggja með þægindi fólks í huga - ekki flugvéla. Margar ólystugar máltíðir hef ég séð fram bornar í flugvélum, en það þarf beinlínis snilligáfu til að sulla saman matvælum eins og Futura flugfélagið bauð upp á í þessari ferð og litu út eins og spæl- egg sem lokast hefur inni í kjarn- orkuveri ásamt froski og tekið stökkbreytingum. Eftir ómetið í flugvélinni var ég svangur og hlakkaði til að fá góðan fisk á Íslandi. Þegar við vorum komin heim í Norska bak- aríið skokkaði ég glaður í bragði niður í Austurstræti og keypti ýsubita í 10-11 (1180 kr. kílóið, ættuð frá fyrirtæki sem heitir 200 mílur) og fór með heim heldur glaður. Þegar ég tók ýsuna upp úr inn- kaupapokanum sló megnri ýldu- lykt fyrir vitin - og kettirnir mínir sem venjulega gera aðsúg að fót- unum á mér þegar ég er að mat- reiða fisk - vöknuðu af sætum svefni á miðstöðvarofninum og stukku framúr fleti sínu í ofboði og heimtuðu að ég hleypti þeim út undir bert loft. Þrátt fyrir þetta treysti ég hvorki nefinu á mér né köttunum heldur sótti lesgleraugun mín og las smáa letrið á merkimiðanum. Þar stóð að pökkunardagur hefði verið 31. júlí og síðasti söludagur væri 5. ágúst. Aðeins tvennt forð- aði mér frá því að fara með þessa vöru aftur niður í 10-11 og pína einhverja áhugalausan afgreiðslu- ungling til að útskýra fyrir mér að þessi ýsa hafi ekki verið á hans vegum: Í fyrsta lagi vildi ég ekki eiga sök á því að pakkinn væri settur aftur í hilluna og seldur næsta við- skiptavini. Í öðru lagi nennti ég ekki aftur út í rigninguna. Úldna ýsan lenti í öskutunn- unni bakvið húsið. Þangað til hún verður tæmd munum við og kett- irnir nota aðalinnganginn en ekki bakdyrnar. Sem sagt: Ekki minn dagur í dag. En samt ákaflega gott að vera kominn heim í fríska loftið. ■ FÖSTUDAGUR, 4. ÁGÚST Hlutabréf og vísitölutrygging Í fríinu stóð ég við þá heitstreng- ingu að opna ekki netbankann heldur lifa áhyggjulausu lífi. Þegar maður kemur heim úr fríi bíða áhyggjurnar eftir manni í snyrtilegum umslögum og horfa á mann gegnum gluggann. Þegar ég loks opnaði netbank- ann minn sá ég mér til óblandinn- ar ánægju að í fjarveru minni hafði ég hagnast um 118 evrur á hlutabréfasafninu mínu, já, ég er kapítalisti, en vondu fréttirnar voru að vísitalan hafði hækkað lán sem ég skulda um meira en tífalda þá upphæð. Ég er alltaf í vandræðum með að skilja réttlætið á bakvið þessa vísitölutryggingu. Af hverju eru tekjur fólks ekki vísitölutryggðar svo að það geti staðið í skilum með vísitölutryggð útgjöldin? ■ LAUGARDAGUR, 5. ÁGÚST Rólegur dagur í Reykjavík Þótt ég sé fremur hlynntur náttúr- unni hvarflar ekki að mér að leita á vit hennar um verslunarmanna- helgi. Mér stendur stuggur af úti- samkomum síðan ég var 17 ára og fór í Bjarkarlund þessa helgi með nokkrum félögum mínum og tólf flösk- um af 75% vodka sem í daglegu tali var kallað „gaddavír“ og við héldum að væri ómissandi að hafa við höndina á skemmtun- um. Sá fyrsti í hópnum sofn- aði í Ártúnsbrekkunni. Vonandi hefur unga fólkinu í dag farið fram við þá íþrótt að skemmta sér. ■ MÁNUDAGUR, 7. ÁGÚST Barnakarl Það er stórmerkilegt nú til dags að sjá verslunum lokað í heilan dag og samt lifir fólkið af. Það er eins gott að það skuli vera rólegt í kringum okkur því að nú er fyrirsjáanlegt að litla Sól og Andri verða um kyrrt hjá afa og ömmu þar til annað verður ákveð- ið. ■ ÞRIÐJUDAGUR, 8. ÁGÚST Eiður í Spánarspark Þetta eru tíðindalitlir dagar. Hey- annir hét þessi árstími hér áður fyrr, en heitir núna gúrkutíð. En svo er sagt að blaðamenn hafi fundið upp þetta orð, því að á þess- um árstíma eru flest mikilmenni í sumarfríi og hafa ekki tíma til að búa til fréttir handa blaðamönn- um. Þá verða blaðamennirnir að grípa til þess ráðs að skrifa fréttir um svo ómerkilega hluti sem upp- skeruna, til dæmis um stórar agúrkur. Það er sem sagt frétta- þurrð og helst eru það íþrótta- fréttirnar sem benda til þess að jörðin sé enn þá að snúast. Ég sé til dæmis mér til mikillar ánægju að Eiður Smári er að gera það gott eftir að hann hætti hjá Chelski og fór að vinna hjá Barce- lona við að leika þá fögru íþrótt knattspyrnu - sem Ríkisútvarpið heldur enn í dag að heiti Spánar- spark. ■ MIÐVIKUDAGUR, 9. ÁGÚST Súkkulaðibúningur Þeir sem halda að það sé einfalt mál að fara í Bónus og versla hafa einfaldlega ekki kynnst því að fara í búðir með Andra og litlu Sól. Þau þurfa svo margt að skoða. Smáfólkið var sífellt að týnast þar til mér hugkvæmdist að planta þeim systkinum í leikherbergi Ikea. Áður en ég lét mig hverfa lögðu þau ríka áherslu á að ekki gleymd- ist að kaupa hráefni í eftirrétti, höfðu minni áhuga á aðalréttun- um. Þegar ég kom og sótti þau spurðu þau einskis nema hvort ég hefði ekki örugglega munað að kaupa súkkulaðibúð- ing - sem litla Sól kallar reyndar súkkulaði- búning. Svarið var já. Ég er ekki kalkaðri en það. ■ FIMMTUDAGUR, 10. ÁGÚST Gúrkutíð lýkur Nú er gúrkan greinilega búin. Hryðjuverkamenn komnir úr sumarleyfum sínum og Siv búin að lýsa yfir framboði til formennsku í Framsóknar- flokknum. Mér finnst það hið besta mál. Fólk í stjórnmálaflokk- um á að geta valið um forystu- fólk. Mér segir svo hugur að Siv vinni þessa kosningu. Hún hefur margfalt meiri pólitíska reynslu en mótframbjóðandinn þótt hann sé næstum helmingi eldri en hún. Ég held að Siv gæti siglt flokkn- um upp úr þeim öldudal sem hann er núna staddur í, en ég hef meiri efasemdir um kjörþokka Jóns Sig- urðssonar. Þótt Jón sé ugglaust hinn mætasti maður er hann eins og drungalegri útgáfa af Halldóri Ásgrímssyni - án persónu- töfranna. Breska lögreglan segist hafa komist á snoðir um fyrirætlanir hryðjuverkamanna um að sprengja heilan flugvélaflota í lofti uppi í dag. Ljótt er - ef satt er. Gúrkutíð lýkur - Hryðjuverkamenn og frambjóðendur komnir á kreik Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.