Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 72
Michael Moore segir það vera
vitleysu hjá stóru kvikmyndaver-
unum í Hollywood að niðurhal af
netinu hafi stórvægileg áhrif á
miðasölu á stórmyndirnar. „Mynd-
irnar eru einfaldlega ekki nógu
góðar um þessar mundir,“ sagði
Moore en kvikmyndahátíð hans,
Traverse City Films Festival, sló
heldur betur í gegn og var uppselt
á nánast allar sýningar. „Þetta
sýnir að fólk vill ennþá fara í bíó
en það vill sjá góðar kvikmyndir,“
bætti Moore við.
Árið 2005 var sögulegt því þá
dróst miðasalan saman um
240 milljón færri miða en
árið áður og hagnaður af
miðasölu
dróst
saman
um sex prósent. Kvikmyndaverin
töldu ástæðuna vera þá að netverj-
ar væru duglegri en áður að hala
niður myndum af internetinu en
kvikmyndahúsin óttuðust sam-
keppni frá stórbættum dvd-útgáf-
um kvikmyndaveranna. Moore
segir það fásinnu að skella skuld-
inni á netið og dvd heldur eigi
kvikmyndaverin að einbeita sér
að framleiðslu betri kvikmynda.
Árið í ár hófst heldur ekki með
neinum glæsibrag því stórmyndir
á borð við Poseidon og Mission:
Impossible stóðu engan veginn
undir þeim væntingum sem til
þeirra voru gerðar. Hins vegar
rættist verulega úr sumrinu þegar
þriðja myndin í X Men-flokknum
leit dagsins ljós auk þess sem The
Da Vinci Code naut mikillar hylli
þrátt fyrir misjafna dóma.
Superman Returns og Pirates
of the Caribbean hafa síðan
haldið miðasölunni uppi auk
Miami Vice sem hefur fengið
afbragðs aðsókn.
Ekki netinu að kenna
MICHAEL MOORE Hvetur
kvikmyndaverin til að
framleiða betri kvik-
myndir í stað þess
að skella skuldinni
alltaf á netið þegar
dræm miðasala
er annars vegar.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Ærslabelgurinn Jack Black hefur gert Óskarsverðlaunaleikarann Philp
Seymour Hoffman að helsta
óvini sínum í Hollywood.
Black sakar nefnilega
Hoffman um að stela öllum
draumahlutverkunum sínum
en sá síðastnefndi hefur
farið á kostum í Capote
og Cold Mountain. „Hoffman er kannski
aðeins betri leikari en ég en hann getur
aldrei stolið af mér gríninu,“ sagði Black
en hann var á dögunum ráðinn sem kynn-
ir á verðlaunahátíð MTV í New York.
Paul McCartney fer reglulega til læknis og lætur athuga „stress-
ið“ á sér en mikið gengur á hjá
honum enda er fyrir höndum
erfiður skilnaður við fyrirsætuna
Heather Mills. McCartney hefur
verið umhugað um heilsu sína síðan að
hann hætti að nota öll vímuefni og eru
ferðirnar til læknisins hluti af forvörnum
svo að allt þetta stress skaði ekki heils-
una. McCartney mætti á heilsugæslustöð
í London ásamt dóttur sinni Mary
og þótti sjónarvottum sem bítillinn
fyrrverandi væri full fölur. McCartney
kvartaði undan verkjum í brjósti og fór
í kjölfarið í allsherjar læknisskoðun
en niðurstöðurnar bentu til þess að
hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur.
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MIAMI VICE kl. 2, 5, 8 og 10.50 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.50
THE SENTINEL kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 2, 4 og 6
SILENT HILL kl. 10 B.I. 16 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 2, 4 og 6
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 2, 4 og 8
STICK IT kl. 8 og 10.20
ÓVISSUBÍÓ kl. 8 nánar á www.bio.is
A PRAIRIE HOME COMPANION kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 3 og 6
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
CLICK kl. 3, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 5 og 10 B.I. 14 ÁRA
RAUÐHETTA ÍSL. TAL kl. 3
MIAMI VICE kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 16
THE SENTINEL kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 2, 3.40 og 6
STORMBREAKER kl. 2 og 4
SÍÐUSTU SÝNING
AR
MIAMI V
ICE
KRAFTS
ÝNING K
L. 10.40