Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 10
10 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR
Ég held því fram að Fram-sóknarflokkurinn sé umhverfisvænni flokkur en margir aðrir og það
hefur hann sýnt með stefnumótun í
þessu ráðuneyti, sem ég stýri,“
segir Jónína Bjartmarz, sem tók við
embætti umhverfisráðherra í
sumar. „Í fjölmörgum málum sem
snerta umhverfismál og náttúru-
vernd hefur Framsóknarflokkurinn
í raun verið í fararbroddi þótt ekki
vilji allir viðurkenna það,“ bætir
hún við.
Hún er ósátt við að Framsóknar-
flokkurinn sé bendlaður við sér-
staka stóriðjustefnu og segir þann
áróður runninn undan rifjum
stjórnarandstöðunnar. „Stóriðju-
stefnan er sú mynd sem stjórnar-
andstaðan hefur leitast við að draga
upp af flokknum og það er vissu-
lega kenning sumra í flokknum að
þetta sé ástæða þess fylgistaps sem
flokkurinn hefur orðið fyrir. Mér
finnst þetta ekki sanngjarnt og ekki
rökrétt heldur, því frá því lögum
var breytt 2003 eru breytingar á til-
högun orkumála gerðar í meðförum
Alþingis, það er þingið allt sem
kemur að þessum ákvörðunum eins
og ákvörðuninni um virkjun Kára-
hnjúka.“
Búum við fyrirmyndarþjóðfélag
Jónína hefur ekki sérstakar áhyggj-
ur af stöðu flokksins og lítur björt-
um augum fram á veginn. „Það er
eins í pólitík og í lífi fólks að það ber
ekki allt upp á sama dag og ef við
lítum yfir lengra tímabil er ljóst að
það skiptast á gleði og sorg, vörn og
sókn og sigrar og ósigrar, og Fram-
sóknarflokkurinn hefur áður séð
það svartara í skoðanakönnunum
og kosningum.“
Hún segir einhverja flokksmenn
kenna stjórnarsamstarfinu við
Sjálfstæðisflokkinn um að félags-
hyggjuhlið Framsóknarflokksins
hafi ekki verið nógu sýnileg og enn
aðrir kenna því um að sjálfstæðis-
menn fái einir þakkirnar fyrir þann
mikla árangur sem náðst hafi á
sviði efnahagsmála og þjóðmála-
umbóta almennt. „Stjórnarsam-
starfið hefur hins vegar verið gott,
árangurinn er mikill, við búum við
vaxandi velmegun, auknar ráðstöf-
unartekjur og við búum á margan
hátt við fyrirmyndarþjóðfélag á
Íslandi. Framsóknarflokkurinn á
ekki hvað síst þátt í því og kannski
mestan ef við lítum yfir áratug-
ina.“
Útilokar ekki annað skattþrep
Vaxandi misskipting tekna í sam-
félaginu hefur verið áberandi
umræðuefni síðustu vikurnar, í
kjölfar þess að álagningarskrár
voru lagðar fram. Jónína tekur
undir það að misskiptingin hafi auk-
ist en bendir jafnframt á aukna vel-
megun og aukinn kaupmátt sem
allir hafi sannarlega fundið fyrir.
„Ég velti því samt fyrir mér hvernig
við eigum að jafna þessa misskipt-
ingu og skattkerfið er ein leið.
Spurning hvort ekki megi auka
álögur á fyrirtæki og fjármagnseig-
endur en lækka þær á venjulegt
launafólk. Þá vil ég ekki útiloka að
við tökum á einhvern hátt upp
annað skattþrep og hátekjuskatt á
tekjur sem ná þeim fjárhæðum sem
venjulegt fólk á erfitt með að skilja
sem launatekjur.“
Gamli hátekjuskatturinn var
hins vegar nýverið afnuminn en um
það segir Jónína að hafi verið full
samstaða, fyrst og fremst á þeim
forsendum að hann bitnaði ekki
mest á hátekjufólki sem slíku held-
ur á ungu fólki sem átti ekki ann-
arra kosta völ en að vinna mikið
vegna þungrar greiðslubyrði af
húsnæðis- og námslánum og leik-
skólagjöldum barna sinna. „Slíkur
skattur kom gjörsamlega í bakið á
þessu fólki, þannig að það þurfti
svo sannarlega að gera breytingar á
honum,“ segir hún.
Eðlilegt að skipta um forystu
Framboð Jónínu til embættis vara-
formanns Framsóknarflokksins
beinist að hennar sögn ekki gegn
einum né neinum heldur býður hún
sig fram sem valkost á eigin for-
sendum og vegna þess að hún vill
taka þátt í nýrri sókn flokksins.
„Það á enginn neitt í pólitík. Menn
eiga ekki þingsæti, ekki ráðherra-
stóla og menn eiga ekki forystusæti
í stjórnmálaflokkum. Við sækjum
umboð okkar til kjósenda með
reglulegu millibili.“
Hún lítur þannig á að framsóknar-
menn standi nú frammi fyrir því
að vega og meta hvernig til hafi
tekist hjá þeirri forystu sem hefur
setið síðastliðin fimm ár. „Ég er
einn valkostur og er í raun að segja
að nú sé ég tilbúin að taka á mig
meiri vinnu, axla meiri ábyrgð,
vegna þess að ég lít fyrst og fremst
á þetta sem starfsheiti og vinnu-
stöðu, ekki sem heiðurssæti. Með
brotthvarfi Halldórs eru kaflaskil í
sögu flokksins og margir telja eðli-
legt að við þessi kaflaskil sé alveg
skipt um forystu. Þeir sem þar eru
hafa haft til þess fimm ár að axla
þá ábyrgð og koma sínum málum
fram, og því eðlilegt að nýtt fólk
komi til starfa núna.“
Hættir ekki nái hún ekki kjöri
Jónína segir það vissulega hafa
komið sér á óvart að Guðni Ágústs-
son skyldi ekki gefa kost á sér til
formennsku í flokknum en segist
treysta sér að vinna hvort heldur
sem er með Guðna eða Jóni
Sigurðssyni og í rauninni með öllum
í flokknum. Niðurstaða varafor-
mannskjörsins breyti engu þar um,
hver sem hún verði. „Ég get að
minnsta kosti sagt að nái ég ekki
kjöri þá hætti ég ekki í pólitík eins
og Guðni hefur sagt, en ég held
reyndar að hann hafi sagt þetta í
geðshræringu augnabliksins. Ég
gef að minnsta kosti engar slíkar
yfirlýsingar. Ég mun eftir sem áður
vinna með þeirri forystu sem kosin
verður, annað hvort í forystusveit-
inni eða með henni í að byggja upp
fylgi Framsóknarflokksins. Þær
fyrirætlanir mínar munu ekkert
breytast né metnaður minn fyrir
hönd flokksins.“
Pólitíkin óvægnari
Tiltölulega stutt er síðan Jónína hóf
bein afskipti af stjórnmálum og hún
er reyndar þeirrar skoðunar að
menn eigi ekki að gera stjórnmál að
ævistarfi. „Ég ætla ekki að vera í
pólitíkinni fram á grafarbakkann,
það er ekki markmið mitt. Mér
finnst að störf í stjórnmálum eigi
ekki að vera ævistörf, það er eðli-
legt að menn komi og fari, afli sér
lífsreynslu og starfsreynslu áður
en menn fara í pólitík og eigi sér líf
eftir hana.“
Hún hefur hins vegar áhyggjur
af því að hin pólitíska umræða sé að
verða óvægnari og persónulegri.
„Það hefur færst í vöxt að vegið sé
að fólki úr launsátri á bloggsíðum
og þetta er áhyggjuefni gagnvart
lýðræðisþróuninni því þetta hefur
meiri áhrif á konur en karla, þær
veigra sér frekar við því að eiga
það á hættu að standa frammi fyrir
persónulegum árásum. Þetta er líka
áhyggjuefni í ljósi þess markmiðs
að konur og karlar starfi hlið við
hlið á öllum sviðum samfélagsins
og getur orðið til þess að erfiðara og
erfiðara verður að fá fólk til starfa í
pólitík. Þetta hefur aukist og tilfinn-
ing mín er sú að þetta hefur orðið til
þess að ákveðið fólk hefur hætt í
pólitíkinni og fundið sér annan
starfsvettvang, ákveður að setja
fjölskyldu sína og önnur áhugamál
hærra á forgangslistann og yfir-
gefa vettvang stjórnmálanna. Þetta
er ekki góð þróun,“ segir Jónína.
JÓNÍNA BJARTMARZ „Með brotthvarfi Halldórs eru kaflaskil í sögu flokksins og margir telja eðlilegt að við þessi kaflaskil sé alveg skipt um forystu. Þeir sem þar eru hafa haft til þess fimm
ár að axla þá ábyrgð og koma sínum málum fram, og því eðlilegt að nýtt fólk komi til starfa núna.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
fréttir og fróðleikur
FRÉTTAVIÐTAL
SIGURÐUR ÞÓR SALVARSSON
ssal@frettabladid.is
„Ég get að minnsta kosti
sagt að nái ég ekki kjöri
þá hætti ég ekki í pólitík
eins og Guðni hefur sagt,
en ég held reyndar að
hann hafi sagt þetta í
geðshræringu augna-
bliksins...”
Guðrún Benediktsdóttir
Sími: 440 4000
Fax: 440 46040
www.giltnir.is
545 Útibú Hafnarfirði
IS-155 Reykjavík
Ég hleyp
10 km fyrir
Barnaheill
Va
ld
im
ar
H
all
dó
rss
on
Sí
m
i:
44
0
40
00
Fa
x:
44
0
46
04
0
ww
w.
gi
ltn
ir.
is
Ki
rk
ju
sa
nd
i
IS
-1
55
R
ey
kj
av
ík
Ég
hl
ey
p 3
km
fy
rir
Ba
rn
as
pít
ala
hr
ing
sin
s
Auður Gilsdóttir
Sími: 440 4000
Fax: 440 46040
www.giltnir.is
Kirkjusandi
IS-155 Reykjaví
k
Ég h
leyp
3 k
m
fyri
r S
jálfs
björ
g
Kristjá
n Þ. D
avíðss
on
Sími:
440 4
000
Fax: 4
40 46
040
www.g
iltnir.i
s
Kirkju
sandi
IS-155
Reykj
avík
Ég hle
yp 3 k
m
fyrir S
jálfsb
jörg
Kristín Björg K
onráðsdóttir
Sími: 440 40
00
Fax: 440 460
40
www.giltnir.is515S Afgreið
sla Kringlunn
i
IS-155 Reykj
avík
Ég hleyp 10
km fyrir
Félag áhug
afólksl um
Downs - h
eilkenni
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segist leggja
áherslu á mikla varfærni í umgengni við náttúruna
og vill ná víðtækri sátt um hvaða landsvæði verði
friðlýst og hvaða auðlindir eigi að nýta. Hún útilokar
ekki að tekið verði upp annað skattþrep til að sporna
við vaxandi misskiptingu tekna í samfélaginu.
Jónína býður sig fram til embættis varaformanns
Framsóknarflokksins á flokksþinginu um aðra helgi.
Það á enginn neitt í pólitík