Fréttablaðið - 12.08.2006, Side 10

Fréttablaðið - 12.08.2006, Side 10
10 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR Ég held því fram að Fram-sóknarflokkurinn sé umhverfisvænni flokkur en margir aðrir og það hefur hann sýnt með stefnumótun í þessu ráðuneyti, sem ég stýri,“ segir Jónína Bjartmarz, sem tók við embætti umhverfisráðherra í sumar. „Í fjölmörgum málum sem snerta umhverfismál og náttúru- vernd hefur Framsóknarflokkurinn í raun verið í fararbroddi þótt ekki vilji allir viðurkenna það,“ bætir hún við. Hún er ósátt við að Framsóknar- flokkurinn sé bendlaður við sér- staka stóriðjustefnu og segir þann áróður runninn undan rifjum stjórnarandstöðunnar. „Stóriðju- stefnan er sú mynd sem stjórnar- andstaðan hefur leitast við að draga upp af flokknum og það er vissu- lega kenning sumra í flokknum að þetta sé ástæða þess fylgistaps sem flokkurinn hefur orðið fyrir. Mér finnst þetta ekki sanngjarnt og ekki rökrétt heldur, því frá því lögum var breytt 2003 eru breytingar á til- högun orkumála gerðar í meðförum Alþingis, það er þingið allt sem kemur að þessum ákvörðunum eins og ákvörðuninni um virkjun Kára- hnjúka.“ Búum við fyrirmyndarþjóðfélag Jónína hefur ekki sérstakar áhyggj- ur af stöðu flokksins og lítur björt- um augum fram á veginn. „Það er eins í pólitík og í lífi fólks að það ber ekki allt upp á sama dag og ef við lítum yfir lengra tímabil er ljóst að það skiptast á gleði og sorg, vörn og sókn og sigrar og ósigrar, og Fram- sóknarflokkurinn hefur áður séð það svartara í skoðanakönnunum og kosningum.“ Hún segir einhverja flokksmenn kenna stjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn um að félags- hyggjuhlið Framsóknarflokksins hafi ekki verið nógu sýnileg og enn aðrir kenna því um að sjálfstæðis- menn fái einir þakkirnar fyrir þann mikla árangur sem náðst hafi á sviði efnahagsmála og þjóðmála- umbóta almennt. „Stjórnarsam- starfið hefur hins vegar verið gott, árangurinn er mikill, við búum við vaxandi velmegun, auknar ráðstöf- unartekjur og við búum á margan hátt við fyrirmyndarþjóðfélag á Íslandi. Framsóknarflokkurinn á ekki hvað síst þátt í því og kannski mestan ef við lítum yfir áratug- ina.“ Útilokar ekki annað skattþrep Vaxandi misskipting tekna í sam- félaginu hefur verið áberandi umræðuefni síðustu vikurnar, í kjölfar þess að álagningarskrár voru lagðar fram. Jónína tekur undir það að misskiptingin hafi auk- ist en bendir jafnframt á aukna vel- megun og aukinn kaupmátt sem allir hafi sannarlega fundið fyrir. „Ég velti því samt fyrir mér hvernig við eigum að jafna þessa misskipt- ingu og skattkerfið er ein leið. Spurning hvort ekki megi auka álögur á fyrirtæki og fjármagnseig- endur en lækka þær á venjulegt launafólk. Þá vil ég ekki útiloka að við tökum á einhvern hátt upp annað skattþrep og hátekjuskatt á tekjur sem ná þeim fjárhæðum sem venjulegt fólk á erfitt með að skilja sem launatekjur.“ Gamli hátekjuskatturinn var hins vegar nýverið afnuminn en um það segir Jónína að hafi verið full samstaða, fyrst og fremst á þeim forsendum að hann bitnaði ekki mest á hátekjufólki sem slíku held- ur á ungu fólki sem átti ekki ann- arra kosta völ en að vinna mikið vegna þungrar greiðslubyrði af húsnæðis- og námslánum og leik- skólagjöldum barna sinna. „Slíkur skattur kom gjörsamlega í bakið á þessu fólki, þannig að það þurfti svo sannarlega að gera breytingar á honum,“ segir hún. Eðlilegt að skipta um forystu Framboð Jónínu til embættis vara- formanns Framsóknarflokksins beinist að hennar sögn ekki gegn einum né neinum heldur býður hún sig fram sem valkost á eigin for- sendum og vegna þess að hún vill taka þátt í nýrri sókn flokksins. „Það á enginn neitt í pólitík. Menn eiga ekki þingsæti, ekki ráðherra- stóla og menn eiga ekki forystusæti í stjórnmálaflokkum. Við sækjum umboð okkar til kjósenda með reglulegu millibili.“ Hún lítur þannig á að framsóknar- menn standi nú frammi fyrir því að vega og meta hvernig til hafi tekist hjá þeirri forystu sem hefur setið síðastliðin fimm ár. „Ég er einn valkostur og er í raun að segja að nú sé ég tilbúin að taka á mig meiri vinnu, axla meiri ábyrgð, vegna þess að ég lít fyrst og fremst á þetta sem starfsheiti og vinnu- stöðu, ekki sem heiðurssæti. Með brotthvarfi Halldórs eru kaflaskil í sögu flokksins og margir telja eðli- legt að við þessi kaflaskil sé alveg skipt um forystu. Þeir sem þar eru hafa haft til þess fimm ár að axla þá ábyrgð og koma sínum málum fram, og því eðlilegt að nýtt fólk komi til starfa núna.“ Hættir ekki nái hún ekki kjöri Jónína segir það vissulega hafa komið sér á óvart að Guðni Ágústs- son skyldi ekki gefa kost á sér til formennsku í flokknum en segist treysta sér að vinna hvort heldur sem er með Guðna eða Jóni Sigurðssyni og í rauninni með öllum í flokknum. Niðurstaða varafor- mannskjörsins breyti engu þar um, hver sem hún verði. „Ég get að minnsta kosti sagt að nái ég ekki kjöri þá hætti ég ekki í pólitík eins og Guðni hefur sagt, en ég held reyndar að hann hafi sagt þetta í geðshræringu augnabliksins. Ég gef að minnsta kosti engar slíkar yfirlýsingar. Ég mun eftir sem áður vinna með þeirri forystu sem kosin verður, annað hvort í forystusveit- inni eða með henni í að byggja upp fylgi Framsóknarflokksins. Þær fyrirætlanir mínar munu ekkert breytast né metnaður minn fyrir hönd flokksins.“ Pólitíkin óvægnari Tiltölulega stutt er síðan Jónína hóf bein afskipti af stjórnmálum og hún er reyndar þeirrar skoðunar að menn eigi ekki að gera stjórnmál að ævistarfi. „Ég ætla ekki að vera í pólitíkinni fram á grafarbakkann, það er ekki markmið mitt. Mér finnst að störf í stjórnmálum eigi ekki að vera ævistörf, það er eðli- legt að menn komi og fari, afli sér lífsreynslu og starfsreynslu áður en menn fara í pólitík og eigi sér líf eftir hana.“ Hún hefur hins vegar áhyggjur af því að hin pólitíska umræða sé að verða óvægnari og persónulegri. „Það hefur færst í vöxt að vegið sé að fólki úr launsátri á bloggsíðum og þetta er áhyggjuefni gagnvart lýðræðisþróuninni því þetta hefur meiri áhrif á konur en karla, þær veigra sér frekar við því að eiga það á hættu að standa frammi fyrir persónulegum árásum. Þetta er líka áhyggjuefni í ljósi þess markmiðs að konur og karlar starfi hlið við hlið á öllum sviðum samfélagsins og getur orðið til þess að erfiðara og erfiðara verður að fá fólk til starfa í pólitík. Þetta hefur aukist og tilfinn- ing mín er sú að þetta hefur orðið til þess að ákveðið fólk hefur hætt í pólitíkinni og fundið sér annan starfsvettvang, ákveður að setja fjölskyldu sína og önnur áhugamál hærra á forgangslistann og yfir- gefa vettvang stjórnmálanna. Þetta er ekki góð þróun,“ segir Jónína. JÓNÍNA BJARTMARZ „Með brotthvarfi Halldórs eru kaflaskil í sögu flokksins og margir telja eðlilegt að við þessi kaflaskil sé alveg skipt um forystu. Þeir sem þar eru hafa haft til þess fimm ár að axla þá ábyrgð og koma sínum málum fram, og því eðlilegt að nýtt fólk komi til starfa núna.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA fréttir og fróðleikur FRÉTTAVIÐTAL SIGURÐUR ÞÓR SALVARSSON ssal@frettabladid.is „Ég get að minnsta kosti sagt að nái ég ekki kjöri þá hætti ég ekki í pólitík eins og Guðni hefur sagt, en ég held reyndar að hann hafi sagt þetta í geðshræringu augna- bliksins...” Guðrún Benediktsdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is 545 Útibú Hafnarfirði IS-155 Reykjavík Ég hleyp 10 km fyrir Barnaheill Va ld im ar H all dó rss on Sí m i: 44 0 40 00 Fa x: 44 0 46 04 0 ww w. gi ltn ir. is Ki rk ju sa nd i IS -1 55 R ey kj av ík Ég hl ey p 3 km fy rir Ba rn as pít ala hr ing sin s Auður Gilsdóttir Sími: 440 4000 Fax: 440 46040 www.giltnir.is Kirkjusandi IS-155 Reykjaví k Ég h leyp 3 k m fyri r S jálfs björ g Kristjá n Þ. D avíðss on Sími: 440 4 000 Fax: 4 40 46 040 www.g iltnir.i s Kirkju sandi IS-155 Reykj avík Ég hle yp 3 k m fyrir S jálfsb jörg Kristín Björg K onráðsdóttir Sími: 440 40 00 Fax: 440 460 40 www.giltnir.is515S Afgreið sla Kringlunn i IS-155 Reykj avík Ég hleyp 10 km fyrir Félag áhug afólksl um Downs - h eilkenni Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segist leggja áherslu á mikla varfærni í umgengni við náttúruna og vill ná víðtækri sátt um hvaða landsvæði verði friðlýst og hvaða auðlindir eigi að nýta. Hún útilokar ekki að tekið verði upp annað skattþrep til að sporna við vaxandi misskiptingu tekna í samfélaginu. Jónína býður sig fram til embættis varaformanns Framsóknarflokksins á flokksþinginu um aðra helgi. Það á enginn neitt í pólitík

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.