Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 68
 12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR48 utlit@frettabladid.is SMEKKURINN KOLFINNA MJÖLL ÁSGEIRSDÓTTIR KENNARI Elskar að gera góð kaup og Kisan í uppáhaldi MÓÐUR VIKUNNAR > ÁLFRÚN FER YFIR MÁLIN HIN NÝJA PEACHES GELDOF Lily Allen er hressandi söngkona með frábæran fata- stíl. Með litagleði sinni og tilrauna- kennds fatastíl er hún ferskur blær inní tískuheiminn. Hvernig kæmust við af án þess að hafa ákveðnar konur til að leiða okkur í gegnum hina varfærnu stíga tísk- unnar. Það eru nefnilega ákveðn- ar konur sem geta klæðst hverju sem er og verið flottar. Oftar en ekki leggja þær línurnar fyrir komandi tískutíma. Allt fer þess- um konum vel og þær hafa efni á að klæðast dýrustu hönnunarvör- um á meðan við hinar verðum oftar en ekki að láta okkur linda eftirlíkingarnar sem fylla hillur tískuvöruverslana. Ofurfyrirsætan Kate Moss og leikkonan Siennna Miller hafa verið góðar og flottar tískufyrir- myndir síðustu ára en auðvitað eldast þær eins og venjulegt fólk. Því erum konar nýjar og ferskar hugmyndir um arftaka þeirra og annarra kvenna sem hafa verið áberandi síðastliðin ár vegna fata- stíls þeirra. alfrun@frettabladid.is HIN NÝJA NAOMI WATTS Kate Bosworth kemur sterk inn sem nýtt tískutákn. Hefur vakið athygli undanfar- ið fyrir geggjaða kjóla á rauða dreglinum. Leiðandi í tískuheiminum PEACHES GELDOF Hefur efni á því að ganga um í nýjustu hönnunarvörunum og hefur vakið athygli fyrir ferskan og rokkaðan stíl. Nú er önnur búin að taka við. HIN NÝJA MAGGIE GYLLENHALL Abi Harding úr hljómsveitinni The Zutons er með flotta sviðsframkomu og nýtur þess að klæðast barnaleg- um og notuðum kjólum á tónleikum. Hún á fyllilega skilið að verða tískutákn framtíðarinnar. SIENNA MILLER Hefur gert mikið fyrir tísku- heiminn síðan hún skaust upp á stjörnu- himininn og hún á heiðurinn af mörgum tískubylgjum síðasta árs. Nú telja spekingar hins vegar að önnur sé að fara að velta henni af stalli. HIN NÝJA SIENNA MILLER Natalie Press er ung leikkona á uppleið og hefur nú þegar vakið athygli fyrir afbragðsgóðan fatastíl. Það verður gaman að fylgjast með henni í fram- tíðinni. HIN NÝJA DITA VON TEESE Alison Goldfrapp er þekkt fyrir flottan stíl. Hún kemur oft fram í undirfötum einum klæða ásamt því að vera dúkkuleg í útliti eins og Dita Von Teese. DITA VON TEESE Þessi skemmtilegi strippari og fyrir- sæta er með alveg svakalega góðan smekk og svipar til gamallar kvik- myndastjörnu frá fjórða áratuginum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY HIN NÝJA KATE MOSS Fyrirsætan Gemma ward er þrátt fyrir ungan aldur búin að vera lengi í bransanum og er því ekki ama- legt að spekingar telja hana erfa flottan fatastíl Kate Moss. MAGGIE GYLLENHALL Þessi unga leikkona hefur vakið mikla athygli fyrir stíl sinn. Hún er mikið fyrir second hand kjóla og „baby- doll“ kjóla. Nú er hins vegar önnur búin að taka yfir stíl Gyllenhall. HIN NÝJA ANISTON Leikkonunni Ellen Pompeo svipar mjög til Aniston að því leyti að hún er mjög klassísk og mikið fyrir jarðliti og hinn klassíska svarta lit. DROTTNINGIN Kate Moss hefur ávallt trónað á toppnum hvað varðar fatasmekk og stíl. Nú telja spekingar hins vegar að hún sé að verða eldri og nýtt andlit verði að taka við. JENNIFER ANISTON Þessi fallega leikkona hefur ekki síst lagt línurnar fyrir okkur hinar í fatastíl og þá sérstaklega í hár- klippingum. Klipping hennar í Friends- þáttunum vakti mikla athygli í þá daga. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES NAOMI WATTS Þessi ástralska leikkona er mikið fyrir fallega kjóla og er með hið týpíska sætu stelpu útlit. Önnur leikkona hefur nú tekið yfir þann stall. Spáir þú mikið í tískuna? Bara svona passlega mikið. Ég hef vissulega gaman af því að spá í og klæðast fallegum flíkum. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Litríkur, blanda af gömlu og nýju, kven- legur,glys og glamúrskotinn. Breytilegur eftir dögum og tilefni. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki: Ég á mér í raun engan uppáhaldshönnuð sem slíkan, ég spái frekar í falleg efni og snið. Flottustu litirnir: Fjólublár, grænn, brúnn, appelsínugulur og gylltir tónar. Litir eru af hinu góða. Hverju ertu veikust fyrir: Fallegum fylgihlutum, skarti, töskum og skóm. Setja algjörlega punktinn yfir i-ið. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Nokkrar vel valdar flíkur á útsölu, þeirra á meðal grænan kjól á spottprís. Ég elska að gera góð kaup. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Fjölbreytileikinn. Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir sumarið? Ég keypti mér nokkra kjóla, hálsmen og armbönd. Uppáhaldsverslun: Gyllti kötturinn, Spútnik, Kolaportið og Kisan. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Mjög misjafnt. Stundum engu en aldrei hættulega miklu. Það er helst að maður missi sig í útlöndum. Mér finnst líka mjög gaman að breyta göml- um fötum og sauma ný. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Ekkert er algjörlega ómissandi en svartar þykkar leggings og hettupeysan mín eru ofarlega á listanum þessa dagana. Uppáhaldsflík: Ljós kápa úr fataskáp tengdamömmu minnar er mjög vel heppnuð flík, vel sniðin og klæðileg. Hvert myndir þú fara í versl- unarferð? Kaupmannahöfn er kósí en ég væri líka alveg til í að skreppa til New York. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér: Buffaloskórnir eru klassísk mistök sem fjöldi fólks þarf að horfast í augu við.En svo verð ég kannski búin að grafa þá upp eftir nokkur ár og spranga stolt um á þeim. Hver veit? > Við mælum með ... ... fjólubláum lit. Þessi litur hefur ekki verið áberandi upp á síðkastið en kemur sterkur inn í hausttískuna. Við lestur á helstu tískuritum heimsins sér maður gjarnan eitthvað sem hugurinn girnist. Sérstaklega núna þegar allar nýju tískubólurnar fylla síðurnar og maður gjörsamlega slefar yfir nýjustu uppfinningum helstu fatahönnuða. En oftast eru þetta bara draumórar því það liggur við að það kosti morðfjár að bara horfa á flíkina hún er svo dýr. En þess vegna eru búðir eins og Hennes & Mauritz, Topshop og 17 svo hentugar því þær gera fólki eins og mér kleift að eiga nýjustu tískuflíkurnar án þess að þurfa að lýsa sig gjaldþrota við kaup á einu Chanel belti eða klút frá Alexander McQueen. Þessar búðir eru snögg- ar að finna út hvaða litir og hvaða snið eru heitust þá stundina. Eini gallinn er samt sá að til þess að geta haft vöruna jafn ódýra og H&M og Topshop þarf að panta vörurnar í milljónatali, sem þýðir að maður situr alls ekki einn að góssinu. Aldeilis ekki, heldur á fatnaður Reykja- víkurmeyja það til að einkennast af nákvæmlega sömu litum og snið- um. En gott er að gera góð kaup þótt því fylgi vissulega gallar. Ef maður vill kaupa sjaldgæfar flíkur er nauðsynlegt að borga fyrir þann munað. Frænka mín, sem hefur mikinn áhuga á tísku og öllu sem því teng- ist, sagði einu sinni við mig að það að eiga eftirlíkingu eða „fake“ merkjavöru væri eins og að vera með sílíkonbrjóst. Að reyna að vera eitthvað sem maður er ekki. Þykjast hafa efni á einhverju sem maður hefur ekki efni á. Mér finnst þetta vera merkilegt því ég hafði aldrei hugsað út í málið frá þeirri hlið. Er maður virkilega gervilegur þegar maður sprangar um göturnar með „fake“ Chaneltösku og í eftirlíkingunni af Burberry-kjólnum sem Sienna Miller klæddist í Vogue og fæst fyrir smápeninga í Kringlunni? Ég virkilega vona ekki því að þangað til ég hef efni á hinum raunverulegu merkjavöru klæðist ég eftirlíkingum með glöðu geði. Þannig get ég tollað í tískunni án þess að fara á haus- inn. Máttur eftirlíkinganna Þú sendir SMS skeytið BT FBT á númerið 1900. Þú færð spurningu og þú svarar með því að senda SMS skeytið BT A, B eða C á númerið 1900. Þú gætir unnið! SMSLEIKUR *Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu. Fullt af aukavinningum! PANASONIC Myndvélar • GSM símar • PSP tölvur • SONY stafrænar myndavélar • Medion borðatölvur • PS2 tölvur • DENVER DVD spilarar • Gjafabréf á Tónlist.is • SONY MP3 spilarar • iPod • Fullt af af Pepsi, DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleira Aðalvinningur C. Dregin út 18.ágúst 32” MEDION LCD TV Aðalvinningur A. Dregin út 8.sept. FujitsuSimens fartölva Aðalvinningur B.Dregin út 31.ágúst MEDION tölva + 19” flatskjár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.