Fréttablaðið - 12.08.2006, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������
���������������
TRAUSTUR FERÐAFÉLAGIEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Á FERÐ
OG FLUGI
‒ með ferðatösku frá FAXE
60 02 .V .B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Skóladagar
490,-
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
4.950,-
STEFANO skrifstofustóll
m/ gaspumpu
LYCKLIG taska
með hólfum. Rúmar fartölvu
LINGO tímaritahirsla
5 stk. 295,-
DOKUMENT
pennastandur 2 stk.
LACK hillueining
35x190 cm 8.990,-
DOKUMENT blaðabakki
30x26x27 cm
Skóladagar 3. - 20. ágúst
MIKAEL tölvuborð m/ hjólum
77x50x76 cm 4.450,-
EMU kassi m/loki
2 stk. 590,-
KLIPPAN sófi 2ja sæta
m/ALMÅS rauðu áklæði 22.900,-
KASSETT kassar m/ loki
37x29x17 cm, ýmsir litir 890,-
RABALDER fjöltengi
2 stk. 1,5 m snúra 795,-
LYCKLIG geisladiskataska
20 vasar, ýmsir litir 195,-
TERTIAL vinnulampi
stillanlegur 790,-
MAGNESIT standur 790,-
190,-
790,-
895,-
DEKAD veggklukka
Ø22 cm 890,-
Það er staðreynd, sem stundum er vanmetin, að sumir hafa
meiri áhuga á peningum en aðrir.
Margt fólk leitar annars í lífinu en
að eiga ofsalega mikið fé, þótt
flestir vilji jú eiga nóg að bíta og
brenna. Sumir telja veraldlegan
auð mikinn hégóma. Aðrir eru
kapítalistar. Kapítalisti er sam-
kvæmt minni skilgreiningu mann-
eskja sem á nóga peninga, en vill
samt alltaf meira. Þannig eru
sumir kapítalistar, en aðrir ekki.
Nákvæmlega eins og sumir eru
alkóhólistar, en aðrir ekki. Alkó-
hólisti drekkur alltaf meira en
hann þarf.
EINHVERJIR kunna að lesa úr
þessari skilgreiningu ákveðið
virðingarleysi gagnvart auðmönn-
um, líkt og ég telji auðsöfnun
þeirra bera vitni um fíkn. Kannski
er það of langt gengið, en þó ekki
fjarri lagi. Einu sinni sá ég viðtal
við auðmann. Hann var spurður
hvað drifi hann áfram. Hvers
vegna vildi hann alltaf meira? Átti
hann ekki nóg? Hann svaraði með
því að líkja sér við íþróttamann.
Hann vildi alltaf stökkva hærra.
Hlaupa hraðar.
Á ákveðnu stigi hætta peningar að
vera peningar. Venjulegt fólk
notar peninga sem gjaldmiðil.
Maður fær þá fyrir að gera eitt-
hvað ákveðið. Og maður notar þá
til þess að kaupa sér eitthvað
ákveðið. Á vissu stigi auðsöfnunar
hættir þetta að vera svona. Magn
peninganna verður slíkt að tilvist
þeirra er ekki lengur fyrst og
fremst spurning um að geta keypt
eitthvað – það er orðið aukaatriði
– heldur eru peningarnir orðnir að
tákni um vissa tegund af afmark-
aðri velgengni. Sumir eru góðir í
bridge. Aðrir eru góðir í að kaupa
og selja.
ÞETTA er þó aðeins önnur hliðin á
peningnum. Í umræðu um ofur-
laun forstjóranna undanfarið hafa
margir hlaupið til og fordæmt mis-
skiptingu auðsins. Launabilið er
orðið tvöhundruðfalt. Nú er ég
einn af þeim sem telja ekkert sér-
staklega eftirsóknarvert að eiga
skrilljón trilljónir, átta einkaþotur
og fimmtíuogfimm sportbíla.
Hver á að fara með alla þessa bíla
í smurningu? Aukinheldur tel ég
að það sé ekki eftirsóknarvert að
sitja heima hjá sér með fimm
tölvuskjái og fylgjast með þróun
markaða í því augnamiði að græða
sem mest fé. Betra er að vera ham-
ingjusamur með minna fé en
stressaður með mikið.
EN þó vil ég segja eftirfarandi:
Misskiptingin er áhyggjuefni. Ekki
vegna þess að sumir eru orðnir
ofsalega ríkir, heldur vegna þess
hversu margir eru fátækir. Það er
ekki ástæða til að fordæma há laun
ef þeirra er réttlátlega aflað – sem
er reyndar ekki alltaf raunin – held-
ur er meiri ástæða til að fordæma
það að fátækt líðist í landinu. Þá
fordæmingu skortir stundum og
aðgerðir að sama skapi. Niðurstað-
an er þessi: Ef enginn þarf að búa
við skort og ef allir eiga jöfn tæki-
færi á því, ef þeir svo kjósa með
mikilli vinnu og menntun að verða
ríkir, þá er mér slétt sama um það í
hversu mörgum heimsálfum sumir
eiga hús. Nokkuð skortir hins vegar
upp á að þessum skilyrðum sé full-
nægt.
Ofurlaun