Fréttablaðið - 12.08.2006, Side 51
LAUGARDAGUR 12. ágúst 2006
�������������
���������������
Upphaf skipulegrar náttúruverndar
má rekja til stofnunar Yellowstone-
þjóðgarðsins í Bandaríkjunum árið
1872. Aðdragandinn að stofnun hans
er afar forvitnilegur, ekki síst vegna
þess að þá kom hugmyndin um þjóð-
garð í raun fyrst fram.
Yellowstone fyrsti þjóðgarður
heims
Bandaríski jarðfræðingurinn Ferd-
inand V. Hayden var frumkvöðull í
landmælingum og vann fyrir Geol-
ogical and Geographical Survey of
the Territories. Hann var nýkom-
inn úr leiðangri til Klettafjallanna
haustið 1871 þegar honum barst
eftirfarandi bréf frá manni að
nafni A. B. Nettleton hjá Northern
Pacific Railroad Company:
„Kæri doktor:
Kelley dómari hefur sett fram til-
lögu, sem mér virðist stórgóð,
nefnilega: Látum þingið sam-
þykkja lög sem vernda Mikla-
hvers dalinn sem garð fyrir
almenning um alla framtíð – rétt
eins og það hefur samþykkt að
vernda Yosemite-dalinn, sem ekki
er nærri eins stórbrotinn, og
risatrén. Væri við hæfi að hafa
slíka tillögu í opinberri skýrslu
þinni ef þú ert sammála þessu?“
Hayden var öldungis sammála
þessu og ári síðar hafði fyrsti þjóð-
garður í heimi, Yellowstone-þjóð-
garðurinn, verið stofnaður. Í lögum
um hann segir meðal annars:
„Stórbrotna fossa og undursam-
lega goshveri í ofanverðum Yell-
owstone-garði, sem nú hafa vakið
heimsathygli, ætti eingöngu að
nýta um ókomna tíð sem griðastaði
náttúrufræðinga og náttúruunn-
enda.“
Línur lagðar í náttúruvernd
Stofnun Yellowstone-þjóðgarðsins
lagði um margt línurnar fyrir aðra
þjóðgarða, bæði innan Bandaríkj-
anna og utan. Með tilkomu hans og
fleiri friðlanda í Bandaríkjunum
festist í sessi hugmyndin um þjóð-
garð, það er friðað náttúrusvæði
sem er griðastaður þeirra sem
vilja fræðast um náttúruna og
njóta hennar.
Í kjölfar þess að vaxtarsvæði
risafurunnar í Yosemite-dalnum í
Kaliforníu voru friðuð árið 1864
og að þjóðgarðurinn í Yellowstone
var stofnaður 1872 voru gerðar
margvíslegar ráðstafanir til að
friða eða vernda ýmis svæði í
Bandaríkjunum, einkum skóg-
lendi, en sérstök lög voru sett um
verndun skóga árið 1891.
Forseti Bandaríkjanna fær
heimild til friðlýsingar
Árið 1906 samþykkti bandaríska
þjóðþingið sérstök fornminjalög
sem veittu forseta Bandaríkjanna
heimild til að friðlýsa afmörkuð
svæði, svokölluð þjóðarminnis-
merki (national monuments), ef þar
væri að finna fornminjar eða svæð-
in hefðu sérstakt vísindalegt eða
fagurfræðilegt gildi. Þessi heimild
hefur mikið verið notuð, meðal ann-
ars vegna þess að forsetinn getur
friðlýst svæði án þess að til komi
sérstakt samþykki þingsins. Á árun-
um 1906 til 1999 voru stofnuð 105
þjóðarminnismerki og einungis þrír
forsetar létu hjá líða að nýta þenn-
an möguleika til að friðlýsa svæði:
Nixon, Reagan og Bush eldri.
Tilgangur náttúruverndar
Tilgangurinn með náttúruvernd er
margvíslegur. Oftast er þó einhver
yfirvofandi vá sem mótar náttúru-
verndarstefnu og knýr hana áfram.
Á upphafsárum náttúruverndar í
Bandaríkjunum var það einkum
ótæpilegt skógarhögg sem kallaði á
aðgerðir, friðun eða verndun. Nátt-
úruvernd hefur hins vegar fleiri
markmið sem komu fram strax í
hugmyndum manna um þjóðgarð-
inn í Yellowstone, til dæmis að varð-
veita tiltekin verðmæti handa kom-
andi kynslóðum hvort sem þau eru í
bráðri hættu eða ekki.
Nytjagildi og verndargildi
Að forða verðmætum frá eyðilegg-
ingu hefur alla tíð verið brýnasta
ástæða friðunar, ef til vill vegna
þess að það hefur verið viðtekin
venja að nýta til fjár allar tiltækar
auðlindir, svo sem skóga, fallvötn
og nytjategundir, nema tilteknar
séu mjög sérstakar ástæður fyrir
því að gera það ekki. Hér má segja
að nytjagildi – fjárhagslegt nota-
gildi tiltekinna auðlinda – hafi alger-
an forgang fram yfir verndargildi
– verðmæti sem felast í því að
vernda eða friða tilteknar auðlindir
með framtíðina í huga. Ein ástæða
er sennilega sú að fjárhagslegt
nytjagildi til skamms tíma knýr
hagkerfi heimsins og það kallar því
á slíkt fyrirkomulag. Á síðari árum
hefur þó mátt greina að menn eru
farnir að gera sér ljóst að verndun
og varðveisla verðmæta í náttúr-
unni muni tengjast fjárhagslegu
nytjagildi þegar fram líða stundir.
Náttúruvernd svo mannlíf
geti þrifist
Á seinni árum hefur dregið úr því að
menn leggi áherslu á nytjagildi ein-
göngu, og margir halda því fram að
verndun náttúrunnar sé í raun for-
senda fyrir því að yfirleitt sé hægt
að hagnýta hana. Tilgangurinn með
náttúruvernd er þá ekki einungis að
setja til hliðar eða taka frá tiltekin
verðmæti sem veita mannfólkinu
ánægju, bæði núlifandi og komandi
kynslóðum, heldur er hann ekki
síður sá að stuðla að því að mannlífið
fái yfirleitt þrifist. Þessi hugsun er
að vísu ekki alveg ný af nálinni.
Þannig fjallar bandaríski vistfræð-
ingurinn og umhverfisverndarsinn-
inn Aldo Leopold (1887-1949) um
þetta í bókinni Round River frá 1953
og segir meðal annars:
„Sú vísindauppgötvun sem ber
af á tuttugustu öld er hvorki sjón-
varp né útvarp, heldur fjölbreytni
vistkerfa landsins. Aðeins þeir
sem þekkja þau best gera sér
grein fyrir hversu lítið við vitum
um þau. Hámark fáviskunnar er
maðurinn sem segir um dýr eða
jurtir: „Hvaða gagn er að þessu?“
... Ef gangvirki landsins í heild er
gott, þá er hver hluti þess góður,
hvort sem við skiljum hann eða
ekki. Ef lífríkið hefur á óratíma
byggt upp eitthvað sem okkur
geðjast að en við skiljum ekki,
hver nema fáráðlingur mundi þá
losa sig við þá hluta sem virðast
gagnslausir? Að geyma hvern nót-
artappa og hvert hjól er fyrsta
varúðarráðstöfun listasmiðsins. „
Ólafur Páll Jónsson,
lektor í heimspeki við
Kennaraháskóla Íslands
Hver er megintilgang-
ur náttúruverndar?
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefnast. Að jafnaði
birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem glímt hefur verið við að und-
anförnu eru: Hversu mikið er vitað um heimspekinginn Díógenes í tunnunni, er möguleiki
á því að vísindamenn hafi rangt fyrir sér um allar sínar uppgötvanir, eru til kakkalakkar á
Íslandi, hver var röksemdafærsla Jóns Sigurðssonar fyrir aukinni sjálfstjórn Íslendinga og
hvaðan er upprunnið ‚að skoða eitthvað út í ystu æsar‘? Hægt er að lesa svör við þessum
spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is.
KÁRAHNJÚKAR Eru náttúruverndarsinnum
ofarlega í huga.
HUGMYNDASAMKEPPNI
Um nafn á nýrri Íþróttamiðstöð að Engjavegi 7
(Samrekin byggingasamstæða Ármanns og Þróttar)
Í september næstkomandi mun verða tekið í notkun stórt glæsilegt mannvirki
sem er að rísa að Engjavegi 7 í Laugardal. Ármenningar eru þar að fá nýtt
íþróttahús og jafnframt bætist við sameiginleg tengibygging Ármanns og Þróttar
við núverandi félagshús Þróttar í Laugardal. Að þessu tilefni hefur verið stofnað
sérstakt rekstrarfélag þessara tveggja félaga með aðkomu ÍTR og
Reykjavíkurborgar. Rekstarfélagið mun sjá um rekstur íþróttamiðstöðvarinnar, sem
tekur til mannvirkjanna og vallarsvæðisins í Laugardal.
Það er við hæfi að þessi glæstu mannvirki hljóti nýtt nafn sem mun þá verða
samheiti yfir byggingarsamstæðuna.
Það er tillaga okkar að valið verði á milli eftirfarandi nafna, en þau eru gömul
staðarheiti hér í Laugardalnum. Þó er heimilt að koma með aðrar tilögur.
Listinn er þessi:
Hálogaland Laugarholt Laugatunga
Engjabær Laugalækur Múli
Dalur Laugaból Reykjaborg
Austurhlíð Sólbakki Laugabrekka
Álfheimar Álfabrekka Jaðar og Klettur
Vinsamlegast sendið tillögur ykkar fyrir kl. 12:00 föstudaginn 25. ágúst
á netfangið: gvo@trottur.is merkt: “hugmyndasamkeppni”.
Stjórn sameiginlegs rekstrarfélags mun fara í gegnum tillögurnar og velja nafn með
hliðsjón af þeim tillögum sem bárust. Tilkynnt verður um nýtt nafn á opnunar−
hátíðinni sem fyrirhugað er að fari fram 23. september n.k.
Aðalstjórnir Ármanns og Þróttar
ÁRMANN
ÞRÓTTUR