Fréttablaðið - 12.08.2006, Blaðsíða 28
Þetta var eitthvað sem mig hafði langað til að gera í mörg ár. Ég hef alltaf verið
mikill áhugamaður um tungumál
og framandi menningu og ákvað
að fara út og sjá hvernig mér litist
á. Svo leið mér bara svo vel og
fannst þetta svo spennandi að ég
fór í fullt BA-nám í kínversku, með
áherslu á bókmenntir og menning-
arfræði,“ segir Arnar Steinn Þor-
steinsson, 28 ára Vesturbæingur,
sem lauk prófi frá kínverskum
háskóla nú í júlí.
Arnar Steinn bjó í borg sem heit-
ir Guang Zhou (borið fram Gvong
Djó) í Suður-Kína. Borgin er í
Guang-héraði sem er stutt frá Hong
Kong og Macau, sem er fyrrverandi
portúgölsk nýlenda. Svæðið er kall-
að Pearl River Delta eða Perluár
óshólmar og giskar Arnar Steinn á
að á svæðinu hafi búið um tíu millj-
ónir manna. „Það er í raun ekki vitað
hvað það búa margir á svæðinu þar
sem straumurinn af fólki í atvinnu-
leit er svo mikill en það fólk er ekki
endilega skráð með búsetu þar svo
opinberar tölur um íbúafjölda segja
eitthvað allt annað.“
Kínverskan opnaði nýja heim
Arnar Steinn segist lítið sem ekkert
hafa vitað um Kína áður en hann fór
út. „Upphaflega fór ég út af forvitn-
inni einni saman. Mig langaði í útrás
og til að hvíla mig á Íslandi en það
sem heillaði mig þegar ég kom til
Kína var kúltúrinn, fólkið og þær
gífurlegu hræringar sem eiga sér
stað í landinu. Guang Zhou er mjög
fjölþjóðlegt umhverfi og það hefur
færst í aukana síðustu ár. Þegar ég
kom út voru um tvö hundruð erlend-
ir nemendur í skólanum en nú eru
þeir um þúsund.“
Arnar Steinn segir Kína vera gíf-
urlega frábrugðið Íslandi. „Það er
voðalega erfitt að lýsa samfélaginu
og mjög misjafnt hvernig menningar-
sjokki fólk verður fyrir. Fólksfjöld-
inn þar er til dæmis gríðarlegur og
það er eins og það sé 17. júní á hverj-
um einasta degi. Kínverjar haga sér
allt öðruvísi en við og hugsunarhátt-
urinn og siðirnir eru allt aðrir – fólk
hagar sér til dæmis allt öðruvísi við
matarboðið, það talar á annan hátt
við hvert annað, snertist á annan
hátt og hefur önnur prinsipp,“
útskýrir Arnar Steinn sem lenti í
töluverðum vandræðum til að byrja
með og þá ekki síst vegna tungu-
málaörðugleika. „Þetta var mjög
erfitt í upphafi en ég eignaðist strax
vini sem hjálpuðu mér mjög mikið
– bæði Kínverja og aðra sem kunnu
kínversku. Ég kom mér síðan hægt
og rólega inn í þetta. Þegar ég var
orðinn nokkuð sleipur í kín-
verskunni, eftir hálft til eitt ár, opn-
aðist nýr heimur fyrir mér. Ég gat
tjáð mig betur og fór að skilja landið
betur og af hverju fólkið er eins og
það er.“
Kína eins og Ameríka
Arnar Steinn segist ekki hafa
fundið mikið fyrir ofríki komm-
únistastjórnarinnar í Kína enda
sé Guang Zhou nokkuð langt frá
miðstjórninni í Peking. „Komm-
únistaflokkurinn ræður náttúru-
lega öllu og er líka við völd í sveit-
ar- og borgarstjórnum. Ég myndi
samt ekki segja að það væri til
kommúnismi í Kína nema það að
alræðisstjórnin er við völd og
verður það um ófyrirsjáanlegan
tíma. Kína er frekar orðin eins og
Ameríka, þú þarft að borga fyrir
spítalavist og það er dýrt að fara í
háskóla. Maður finnur samt ekki
mikið fyrir stjórninni í Guang
Zhou, maður finnur meira fyrir
henni í Peking. Andrúmsloftið í
Peking er miklu áþreifanlegra
enda er herinn á götum úti,“ segir
Arnar Steinn. Hann segir að í eina
skiptið sem hann hafi fundið fyrir
alræði kommúnistastjórnarinnar
hafi verið þegar hún ritskoðaði
heimildarmynd sem hann ætlaði
að sjá. „Myndin fjallar um fólks-
flutninga við stóru stíflugerðina.
Milljónum manna hefur verið gert
að flytja þar sem það á að láta
flæða yfir bæi og borgir. Myndin
fjallar um þessa fólksflutninga og
það var margt af fólki komið
saman til að sjá þessa mynd. Allt í
einu stendur kvikmyndagerðar-
maðurinn upp og segir að stjórnin
hafa bannað sýninguna. Áhorf-
endur urðu mjög hissa yfir þessu
og spurðu hvort stjórnin væri
ekki hætt að gera svona lagað,“
segir Arnar Steinn.
Arnar Steinn segir að í Kína sé
ekki til neinn frjáls, óháður kín-
verskur fjölmiðill. „Fréttirnar þar
eru vægast sagt mjög skondnar. Í
Guang Zhou er hægt að sjá sjón-
varpsstöðvar frá Hong Kong en ef
þar voru fluttar viðkvæmar eða
neikvæðar fréttir í garð Kína kom
allt í einu upp stillimynd af fallegu
fjalli. Ef maður vildi hins vegar
sjá fréttina til enda þurfti ég að
leita hana uppi á netinu.“
„Internetið er í Kína er gott og
ódýrt. Það eru samt ákveðnar síður
sem ekki er hægt að komast inn á,
til dæmis vefur BBC. Svo eru aðrir
einstaka miðlar sem er búið að
taka út,“ segir Arnar Steinn sem
nýtti sér netið óspart á meðan dvöl
hans í Kína stóð.
Farfuglinn á kínversku
Arnar Steinn segist hafa lagt mikla
vinnu á sig strax frá byrjun við að
læra málið. „Kínverska er annars
mjög gamalt tungumál og er
ofboðslega ríkt í málnotkun og
orðaforða. Það tekur tíma að vinna
sér upp orðaforða og sum orðin
eru svo forn að ef maður þekkir
ekki menningarlegu tengslin veit
maður ekki hina raunverulegu
merkingu þeirra.“
Á þeim fimm árum sem Íslend-
ingurinn ungi dvaldi í Kína tókst
honum að ná þó nokkru valdi á
hinu flókna tungumáli. „Helsta
markmið mitt var að geta lesið og
skrifað kínversku. Nú er ég eigin-
lega orðinn allæs á málið þó það
komi fyrir að ég rekist á tákn sem
ég hef ekki séð áður. Táknin eru
samt lógískt uppbyggð þannig að
ég skil nokkurn veginn hvað þau
12. ágúst 2006 LAUGARDAGUR28
Arnar Steinn Þorsteinsson var einn af bestu
hjólabrettaköppum landsins um árabil. Forvitnin
rak hann hins vegar til Kína þar sem hann ákvað
að leggja fyrir sig kínverskar bókmenntir og
menningarfræði. Í samtali við Kristján Hjálmars-
son segir Arnar Steinn frá hræringunum í Kína,
öðruvísi siðum og smásögu eftir Guðberg Bergs-
son sem hann snaraði yfir á kínversku.
Þýddi Farfugl
Guðbergs á
kínversku
ARNAR STEINN OG SONOKO Þau kynntust í Kína. Hann frá Íslandi en hún frá Japan. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
ÓLÍKIR HEIMAR Arnar Steinn segir margt ólíkt með Kína og Íslandi.
Ég myndi samt ekki segja að það væri til kommúnismi í Kína nema það að alræðisstjórn-
in er við völd og verður það um ófyrirsjáanlegan tíma. Kína er frekar orðið eins og Amer-
íka, þú þarft að borga fyrir spítalavist og það er dýrt að fara í háskóla.ME‹
Í FRÍINU
ÁSKRIFT
LOTTAR‹U
NÚ
lotto.is
Me› LOTTÓ Í ÁSKRIFT
gætir flú líka unni› einn
af 30 stórglæsilegum
aukavinningum
í áskriftarleiknum.
LOTTÓ
ÁSKRIFTAR
LEIKUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
6
3
9