Tíminn - 23.03.1978, Blaðsíða 6

Tíminn - 23.03.1978, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 23. marz 1978 BSRB: Starfsmenn fái frádrátt bættan úr verkf allssj óði JB —Fundur var haldinn i BSRB sl. þriðjudag og voru þar mættir — auk stjórnar bandalagsins — formenn aðildarfélaga þess, er búsettir eru á höfuðborgarsvæð- inu. A fundinum var samþykkt ályktun með samhljóða atkvæð- um. í ályktuninni er mótmælt þeirri ákvörðun rikisstjórnarinnar og borgarstjóra Reykjavikur, að draga yfirvinnukaup i stað dag- vinnu af þeim starfsmönnum, sem þátt tóku i mótmælaaðgerð- um gegn kjaraskerðingu launa- fólks i byrjun marzmánaðar. Tel- ur stjórnin refsifrádrátt launa ekki samrýmanlegan niitima sjónarmiðum varðandi samskipti launafólks og vinnuveitenda. Var á fundinum samþykkt, að þeir starfsmenn, sem beittir verða refsifrádrætti launa sem svarar yfirvinnukaup vegna fjarveru i mótmælaskyni, skuli eiga kost á greiðslu úr Verkfallssjóði BSRB. Beinir stjórnin þeim tilmælum til aðildarfélaga bandalagsins að þau leggi viðbótarfé i Verkfalls- sjóð i þessu skyni. Það sem á kunni að vanta fyrir þessum út- gjöldum, skuli greitt úr sjóði BSRB. A fundinum var einnig sam- þykktað afla lögfræðilegrar álits- gerðar um það hvort riftun k jara- samninga með lögum brjóti ekki i bágavið 67. gr. stjórnarskrárinn- ar. Vinnu- véla- eigendur Notaðar vinnuvélar ti/ söiu: International TD 24 jarðýta m/spili International TD 8 B jarðýta árg. 1971 og 1976. International BTD 20 jarðýta árg. 1964. Priestman 120 beltagrafa árg. 1972. Broyt X 2 grafa, 3500 vinnustundir. Massey Ferguson MF 50 traktorsgrafa árg. 1971. Einnig nýjar véiar: Jarðýtur TD 8 B m/hallabúnaði. Traktorgrafa 3434 m/venjul. skóflu. Traktorgrafa 3500 m/opnanlegri skóflu. Payloder 500 0,5 rúmm. skófla. Payloder 510 1,15 rúmm. skófla. Payloder 540 3 rúmm. skófla. Traktorlyftari 2530 F 3 tonna. Upplýsingar hjá sölumönnum. $ Samband islenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD Ármúla 3 Reykjavik simt 38900 RARIK: Lausnarbeiðnir samþykktar KEJ — Iðnaðarráðherra þakkaði i gær þeim Helga Bergs, Birni Friðfinnssyni og Tryggva Sigur- bjarnarsyni fyrir störf þeirra i þágu RARIK og hyggst skipa nýja stjórnarmenn strax eftir páska, segir i fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. Frétta- tilkynningin fer hér á eftir: Að undanförnu hefur af hálfu iðnaðarráðuneytis verið unnið að þvi að finna lausn á fjárhags- vandamálum Rafmagnsveitna rikisins. Fyrir um viku fól rikis- stjórnin þeim Helga Bergs, bankastjóra, Gisla Blöndal, hag- sýslustjóra og Páli Flygenring, ráðuneytisstjóra, að gera tillögur til lausnar, og i samræmi við greinargerð þeirra gerði iðnaðar- ráðherra ákveðnar tillögur á rikisstjórnarfundi, þriðjudaginn 21. þ.m. um leiðir til að leysa þennan vanda i heild. Málið er til meðferðar i rikis- stjórninni. Varðandi pöntun efnis i stofn- linu til Véstfjarða (Vesturlínu) taldi iðnaðarráðherra það skyldu sina að framfylgja þeirri ákvörð- un Alþingis, sem kemur fram i fjárlögum og lánsfjáráætlun, að lagður verði fyrsti kafli þessarar linu nú i ár. Til þess að það mætti verða, var óhjákvæmílegt að draga ekki lengur að panta efni til þessarar framkvæmdar, og hefur það nú verið gert. Þegar stjórnarformaður og tveir stjórnarmenn Rafmagns- veitna rikisins afhentu iðnaðar- ráðherra i morgun, 22. marz, lausnarbeiðni sina, tjáði ráðherra þeim, að honum þætti miður að þeir skyldu velja þennan kost og þakkaði þeim störf þeirra i þágu rafmagnsveitna rikisins. Iðnaðarráðherra mun þegar eftir páska skipa nýja stjórnar- menn. Fyrsta íslenzka sjónvarpsleikritið í lit: „Mikill heiður — segir höfundurinn dr. Jakob Jónsson FI — Mér er mikill heiður sýnd- ur með þvi að fyrsta islenzka leikritið, sem tekið er I lit i sjón- varpssal skuli vera min smið, og ht» ég verið ákaflega heppinn með samstarfsfóik, leikara og starfslið sjónvarpsins i heild, sagði dr. Jakob Jónsson I sam- taliviðTimannigær, en á föstu- daginn langa mun sjónvarpið sýna eitt leikrita dr. Jakobs, sem hann hefur kallað „Maður- inn,sem sveik Barrabas”. Leik- ritið var skrifað i striðslokin og var flutt i útvarp á sinum tima. Það hefur nú verið endurskoðað með tilliti til nýrrar tækni og breytzt i þessari endurskoðun höfundar frá upphaflegri gerð. Leikurinn gerist i Jerúsalem ognágrenni siðustu dagana fyr- ir krossfestingu Krists og segir dr. Jakob einu sögulegu heimildirnar vera Nýja testa- mentið og þá þekkingu, er finna má i almennum fræðibókum um aldaranda og sögu þessa ti'ma. Mönnum til viðvörunar, skal fram tekið, að engar sögulegar heimildir eru fyrir þvi, að nokk- ur maður hafi svikið Barrabas. Höfundur er fáorður um boð- skap, eins og höfundum er gjarnt og svaraði um það efni eins og Benedikt Gröndal skáld áaðhafa gert forðum: „Mitt er að yrkja, ykkar að skilja” — ,,Ég hef alla mina ævi fengizt við ihugun Bibliunnar, þar á meðal pislarsögunnar, þar sem Barrabas kemur við sögu. Er ekki óliklegt að hjá manni vakni hugmyndir viðvikjandi fólki, sem þar er nefnt og ýmsar spurningar leiti á hugann. Hvað aðrir kunna að gera úr þvi, er þeim algjörlega frjálst. Ég get hins vegar sagt, að Barrabas er i leikritinu eins konar skæruliði, og hugsa ég mér hann tilheyra „Selótum”, en svo voru þeir menn kallaðir, sem berjast vildu fyrir komandi Guðsriki með vopnavaldi. Vist er að i lærisveinahópnum voru menn, sem höfðu tiheyrt þeim flokki. Svikarinn verður til á striðsárunum siðustu, enda var hugsunin um slikar persónur þá ákaflega rik i hugum manna.” „Maðurinn, sem sveik Barra- bas”. Arnar Jónsson og Jón Hjartarson i hlutverkum upp- reisnarmanna I liði Barrabasar, Efraims og Abidams. Þessmá geta, að vonir standa til, að stærsta leikrit dr. Jakobs Jónssonar „Tyrkja-Gudda” verði flutt í Þjóðleikhúsinu inn- an tiðar, en þar er leikritið nú til athugunar. Vorlaukar í póstkröfu 3.500 kr. pokinn. — í pokanum eru 5 mismunandi tegundi af laukum: Dahlíur, anemónur, begóníur, bóndarósir og gladíólur. Blómaval — Sigtúni — Reykjavík Undirrit. óskar eftir að fá sendan í póstkröfu ________poka af vorlaukum. Nafn _ Heimili Sigtúni - Símar 3-67-70 & 8-63-40 Leiðrétting og þakkir 1 blaðinu miðvikudaginn 15. marz hefur misritazt i framhaldi af fyrirsögninni Blindrakvöld. Þar segir, — ein af stúlkum ís- lenzkra Ungtemplara, en efsta yfir skriftin átti að vera: IOGT og siðan: heldur stúkan Framtiöin sitt árlega Blindrakvöld. Enn- fremur biður æðsti templar stúk- unnar Ingþór Sigurbjörnsson fyr- ir eftirfarandi þakkarkveðjur: Stúkan Framtiðin sendir sinar innilegustu þakkir til allra þeirra, er lögðu sitt lið til Blindrakvölds- ins i Templarahöllinni 19.3’78, reglufélaga sem annarra er lögðu til matarföng, skemmtiatriði og fé. Vegna veikindaforfalla gátu þau hjónin Sigurður Björnsson ó- perusöngvari og frú ekki komið, en fengu i sinn stað listamennina Svölu Nielsen og Carl Billich, sem leystu hlutverk sin mjög vel af hendi, og menntamálaráðherra og frú heiðruðu lika samkomuna með virkri og ljúfmannlegri þátt- töku. Grétar Dalhoff og hljóm- sveit hússins létu heldur ekki sitt eftir liggja, enda var dansað af almennri þátttöku og fjöri. Kon- urnar sáu um matarmál og þjón- ustu, og vonum við að hamingjan launi öllum vel fyrir störfin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.