Tíminn - 23.03.1978, Page 7
Fimmtudagur 23. marz 1978
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsiiiír Siðumúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Askriftargjald kr. 1700 á
mánuði’ Blaðaprenth.f.
Eftirlit Alþingis
Meðal athyglisverðustu mála, sem Alþingi
hefur til umfjöllunar, má hiklaust telja frumvarp
Halldórs Ásgrimssonar um Rikisendurskoðun.
Meginbreytingin, sem felst i þvi, er sú, að Rikis-
endurskoðun verður stofnun, sem heyrir undir
Alþingi, en ekki fjármálaráðuneytið, eins og nú
er. Tilgangurinn með þessari breytingu er að
tryggja sem bezt eftirlit Alþingis með þvi,
hvernig opinberu fé er ráðstafað.
í greinargerð færir höfundur glögg rök fyrir
frumvarpinu. Nokkur þeirra verða talin hér á
eftir:
„Fjárlög eru sett af Alþingi eftir mikla umfjöll-
un og umræður. Eftirlit með þvi hvernig fjárlög
eru framkvæmd, er að litlu leyti i höndum
Alþingis. Umræða og umfjöllun um rikisreikn-
inginn, þ.e. hina raunverulegu framkvæmd fjár-
laga, er litil sem engin. Alþingi fær takmarkaðar
skýrslur um þær staðreyndir, er þar koma fram,
og þær eru gerðar á vegum framkvæmdavalds-
ins...Það er skoðun flutningsmanns, að Alþingi
eigi að efla eftirlits- og aðhaldshlutverk sitt og
fylgjast betur en nú er með þvi, hvort upphaf-
legum vilja fjárlaga og annarra laga er fram-
fylgt. Auk þess verður að vinna að bættum af-
köstum og nýtingu þeirra útgjalda, sem ráð-
stafað er með fjárlögum og öðrum lögum....
Hið opinbera hefur smám saman fengið aukin
verkefni að fást við. Hluti hins opinbera i þjóðar-
tekjum landsins hefur aukizt verulega á undan-
förnum árum, samtimis þvi að litið svigrúm er til
að auka umsvif rikisins. Með þetta i huga er
mikilvægt að endurskipuleggja og auka hag-
kvæmni og aðhald i opinberum rekstri. Æski-
legast er að Alþingi beri höfuðábyrgð á þessu
starfi og fái þannig aukna ábyrgð og vitneskju
um það, hvernig fjárlög eru framkvæmd.
Alþingi getur ekki sinnt þessu hlutverki nema
hafa yfir að ráða stofnun sem hefur i þjónustu
sinni sérþjálfað starfslið til þeirra starfa. Rikis-
endurskoðun er stofnun sem getur þjónað
Alþingi, en til þess að ná tilgangi frumvarpsins
þarf hún að lúta Alþingi, en ekki framkvæmda-
valdinu. Einnig er nauðsynlegt að efla stofnunina
og endurskipuleggja miðað við nýtt hlutverk og
aðstæður.
Auk þess að færa rikisendurskoðun undir vald
Alþingis er aðaltilgangurinn að færa alla endur-
skoðun á vegum rikissjóðs og stofnana hans á
eina hönd og leggja þá skyldu á hendur rikis-
endurskoðunar, að mat sé á það lagt, hvort fjár-
hagsleg og rekstrarhagfræðileg sjónarmið séu i
heiðri höfð við ráðstöfun fjármagns og rekstur
þeirra fyrirtækja og stofnana, sem reikningsskil-
in ná yfir. Með þessu er lögð áherzla á það hlut-
verk rikisendurskoðunar að auka hagkvæmni og
árangur i rikiskerfinu. Grundvallarskylda hvers
ráðuneytis og stjórnsýslustofnunar á að vera að
halda uppi hagkvæmu og skilvirku stýrikerfi.”
í greinargerðinni er það svo rifjað upp, hvemig
niðurstaðan hafi orðið önnur á rikisreikningi en
fjárlögum siðustu árin. Þannig var gert ráð fyrir
rekstrarjöfnuði á fjárlögum 1974-1977, en rekstr-
arhalli varð verulegur öll árin. Þetta hafi stafað
af ýmsum ástæðum, eins og óstöðugu verðlagi og
ónákvæmni i fjárlagaafgreiðslu, en án efa megi
draga úr slikri öfugþróun með bættu eftirliti.
Eðlilegra sé, að yfirstjórn sliks eftirlits sé i hönd-
um Alþingis en framkvæmdavaldsins, enda sé
það eitt af verkefnum Alþingis að hafa eftirlit
með þvi. Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Sigur Indiru flýtti
dómnum yfir Bhutto
Zia er að verða mesti harðstjóri Asíu
SITTHVAÐ bendir til þess, a6
kosningasigur Indiru Gandhi
fyrri þessum mánuði hafiorð-
ið til þess að flýta fyrir því, að
dauðadómur var kveðinn upp
yfir Ali Bhutto, fyrrverandi
forsætisráðherra í Pakistan.
Einræðisherra Pakistan, Zia
ul-Haq, virðist hafa dregið þá
ályktun af sigri Indiru, aö
Bhutto kynni að reynast ekki
siður sigurvænlegur i kosning-
um enhún,efZia stæði við það
fyrirheit sitt að efna til þeirra.
Þess vegna væri honum
hyggilegast að ryðja Bhutto
sem fyrst úr vegi. Vikuna áöur
en dauðadómurinn var kveð-
inn upp yfir Bhutto hafði her
og lögregla unnið skipulega að
þvi að handtaka helztu stuðn-
ingsmenn hans og mátti af þvi
ráða, hvað i vændum var.
Fljótlega eftir að Zia hers-
höfðingi steypti Bhutto Urstóli
i júlimánuði siðastliðnum varð
það ljóst að hann stefni mark-
visst að því að ryðja honum úr
vegk Lengi vel þótti þó liklegt,
að hann myndi láta sér nægja
að láta dæma hann og helztu
fylgismenn hans til fangelsis-
vistar, en við nánari athugun
hefur það ekki þótt öruggt.
Fangavistin hefði getað aflað
Bhutto vinsælda, einkum þó ef
stjórn Zia gengi laklega. ör-
uggasta ráðið var að losan við
hann endanlega.
ÞEGAR Zia hershöfðingi
greip völdin i julímánuði sið-
astl., máttihann heita óþekkt-
ur og óreyndur sem stjórn-
málamaður. Ilann hafði þótt
traustur og samvizkusamur
hermaður, sem léti sig pólitik
litlu eða engu varða, heldur
hugsað um það eitt að gegna
skyldum sinum innan hersins.
Þetta mun hafa ráðið mestu
um, að Bhutto gerði hann að
yfirmanni hersins fyrir tveim-
ur árum. I fyrstu var Zia ekki
áfelldur fyrir það, að hann lét
herinn taka völdin, þvi að
hálfgert stjórnleysi hafði rikt i
landinu um skeið. Zia tók Uka
skýrt fram, að hann ætlaði sér
eingöngu að stjórn til bráða-
birgða eða þangað til kosning-
ar hefðu farið fram, en hann
kvaðst stefna að þvi að hafa
þær i október. Brátt kom þó
annað hljðð i strokkinn.í sept-
ember varð höfðað mál gegn
Ali Bhutto.
Zia ul—Haq.
Bhutto og hann settur i varð-
hald. Sakir þær, sem voru
bornar á hann, voru stöðugt
þyngdar, en þyngst var sú, að
hann hefði gefið fyrirmæli
um að láta myrða einn
helzta andstæðing sinn,
Ahmed Raza Khan, en
þegar þaö mistókst, hafði
hann látið myrða föður
hans. Réttarhöldin gegn
Bhutto báru stöðugt meiri og
meiri keim pólitiskra réttar-
halda. Þá lýsti Zia yfir þvi, að
kosningunum yrði frestað
þangað til réttarhöldum yfir
Bhutto væri lokið, og siðar
hefúr verið tilkynnt að þeim
hafi verið frestað um óákveð-
inn tima. Flest bendir orðið til
þess, að Zia hugsi sér að fara
með völd til frambúðar og
efna þvi aðeins til kosninga ,
að úrslitin verði hagstæð hon-
um og skoðanabræörum hans,
en það þykir komið i ljóst, að
hann sé mjög ihaldssamur
Múhameðstrúarmaður og þvi
andstæður hinni róttæku um-
bótastefnusem Bhuttofylgdi á
mörgum sviðum. Zia hefur
unnið skipulega að þvi að
brjóta flokk Bhuttos á bak
aftur og m.a. látið setja konu
hans i stofufangelsi eftir að
hún tók við stjórn flokksins i
fráveru Bhuttos. Þá hafa
flestar refsingar verið þyngd-
ar, og má segja að ógnaröld
hafi rikt i Pakistan siðustu
mánuðina. Stefni þannig
áfram, bendir margt til að Zia
eigi eftir að veröa mesti harð-
stjórinn i Asiu.
BHUTTO hafði farið með völd
i 5 1/2 ár, þegar Zia hrakti
hann frá völdum. Þótt vafa-
laust hafi margt mátt finn að
stjórn hans, er hann vafalltið
einn mikilhæfasti og athafna-
samasti stjórnandi, sem Pak-
istan hefur haft. Þegar hann
kom til valda, mátti landið
heita I rústum eftir ósigurinn i
styrjöldinni við Indverja, sem
leiddi til þess, að Austur-Pak-
istan varð sjálfstætt riki,
Bangladesh. Hann rétti landið
við á margan hátt og greip til
ýmissaróttækraaðgerða, sem
unnuhonum hylli almennings.
einkum i sveitunum. AiAstétt-
in leit á hann sem svikara, þar
sem hann var úr hópi hennar.
Það var lika rétt, að ýms spill-
ing þreifst i skjoli hans, enda
hefur hún verið fylgifiskur
allra stjórnai Pakistan Bhutto
áleit vinsældir sinar slikar, að
hann efndi til þingkosninga i
marzmánuði i fyrra. Allir
andstæðingar hans sameinuð-
ust þá gegn honum, en eflaust
þykir samt að flokkur hans
hefði unnið kosningarnar.
Hins vegar varð sigur hans
með óHkindum, og þótti þvi
sýnt, aðýmsirflokksmenhans
hefðu beitt kosningasvikum.
Þetta leiddi til stöðugra
óeirða, þvi að stjórnar-
andstæðingar heimtuðu nýjar
kosningar, en Bhuttovildi ekki
fallast á það. Öeirðirnar gáfu
Zia tækifæri til að taka völdin
með aðstoð hersins. Þ.Þ.
V.