Tíminn - 23.03.1978, Síða 8
8
Fimmtudagur 23. marz 1978
FORD FAIRMONT
einn með öllu 1. apríl
Áskrífendagetraun
VÍSIS
Nemendaleikhús f jóröa bekkjar
S frumsýndi leikritið „Fansjen”
eöa „Umskiptin” eftir David
Hare i Lindarbæ miövikudaginn
15. marz sl. i leikstjórn Brietar
Héöinsdóttur. Leikmynd og bún-
inga hannaði Guörún Svava
Svavarsdóttir.
Næstu sýningar veröa i Lindar-
bæ kl. 20.30 sem hér segir:
Fimmtudaginn 23. marz.
Mánudaginn (annan i páskum)
27. marz.
Alþjóðleg
sýning á
smávefnaði
Þriöja alþjóölega sýningin á
„smávefnaði” (Miniature
Textiles) verður haldin i London i
ágúst — september 1978, og mun
brezka Listiðnaðarmiðstööin
(British Crafts Centre) standa
fyrir þessari sýningu.
Stærð verka má mest vera 20
cm á hvern veg, en efnisval er
frjáls.Senda þarf til vals sýn-
ingarmuna 8 litskyggnur (35 mm)
af mest fjórum verkum. Tvö verk
geta veriö valin, eða öllum hafn-
aö. Höfundar eiga að senda
upplýsingar um sjálfa sig meö
litskyggnunum fyrir 15 april nk.
Dómnefndin veröur alþjóöleg, og
er ráögert aö sýningin fari fram i
Portúgal, Austurriki, Sviss,
Noregi, Islandi og Sviþjóö. Aö
loknum sýningum, veröur öllum
óseldum verkum skilaö, svo og
skyggnum og greiðslu fyrir seld
verk.
Nánari upplýsingar veita
Heimilisiðnaöarfélag Islands,
Hafnarstræti 3, pósthólf 1359 og
Listiön (c/o Myndiön) Mikla-
torgi, pósthólf 5064.
Einn
meðöllu!
Ford Fairmont hefur allt til brunns að bera
sem hœ%t er að œtlast til af farkosti á fjórum hjólum.
• 6 cyl. vél • Stuðarahlífar
• Sjálf8kipting • Tau áklæði á sœtum
• Vökvastýri • Vinyltoppur
• Heilt sæti m. skiptu baki • Sílslistar
• Hitaelement í afturrúðu
Enda stóðst Vísir ekki freistinguna og býður Ford Fairmont
í Á8krifendagetraun sinni.
Freistaðu gœfunnar og vertu með, hver veit, kannski verður
þú 8á lukkunnar pamfíll sem fcerð einn með öllu 1. apríl
Borgfirðinga-
vakan í apríl
FI — Borgfirðingavaka veröur
haldin i fimmta sinn dagana
19.—23. april nk. Efni vökunnar
veröur fjölbreytt og líklegt að
sem flestir finni þar eitthvað við
sitt hæfi. vakan hefst meö tónleik-
um Sinfóniuhljómsveitar tslands
undir stjórn Páls P. Pálssonar.
Kvöidvökur verða haldnar á
Ferðadiskótekin
Disa og Maria
Fjölbreytt danstónlist
Góð reynsla — Hljómgæði
ilagstætt verö.
Leitiö upplvsinga — Simar
50513 — 53910 — 52971.
þremur stöðum. Lyngbrekku,
Heiðarborg og i Logaiandi og
verður kappkostaö að hafa efni
þeirra sem fjölbreyttast aö þvi er
segir i' frétt frá undirbúnings-
nefnd.
Tvær sýningar verða á Borg-
firðingavöku, sýning á grafik og
teikningum i eigu Listasafnsins i
Borgarnesi og bilasýning á veg-
um hins nýstofnaða Bifreiða-
iþróttaklúbbs Borgarfjarðar og
veröa þar sýndir gamlir og nýir
bilar af ýmsum gerðum. ,
Borgfirðingavaka er sameigin-
legt verkefni Ungmenna-
sambands Borgarf jarðar,
Búnaðarsambands Borgarfjarö-
ar, Kvenfélagasambands Borgar-
fjaröar og Tónlistarfélagsins.
Formaður undir-
búningsnefndar er Haukur
Ingibergsson,Bifröst.
Hrísey:
Vonast er til i Hrfsey, aö straumhvörf veröi i simamálum eyjarinnar með vorinu. Timamynd: Karl
Símamálin í
miklum ólestri
F1 — Hriseyingar segja ailt guit
af sér þessa dagana — að undan-
skildum simamálunum, sem eru i
hinum mesta ólestri. Að sögn
Björgvins Jónssonar hreppstjóra
kastaði tólfunum um daginn, þeg-
ar eyjarskeggjar urðu sambands-
lausir við umheiminn i heila fjóra
daga og náðu engu sambandi
nema I gegnum taistöðvar.
Strengurinn, sem lagður var til
Hriseyjar fyrir nokkrum árum
var vist heidur veigalitill I upp-
hafi og hverfur stundum aiveg yf-
ir um. Fregnazt hefur, aö sima-
málum Hriseyinga veröi kippt i
lag, þegar vora fer og frost leysir
I jörðu.
Björgvin kvaö næga atvinnu
hafa verið i Hrisey aö undanförnu
og nægan fisk að fá. Snæfelliö
landaöi siðast á mánudaginn 65
tonnum eftir mjög stutta útivist.
Mannlif i Hrisey er i þokkalegu
ástandi og hefur leikklúbburinn
Krafla skemmt nágrönnum sin-
um meö leiknum „Afbrýðisamri
eiginkonu” við góöar undirtektir.
Aö ööru leyti sér séra Kári Vals-
son um andlega velferö Hris-
eyinga yfir páksana. Þess má og
geta, aö séra Kári er jafnframt
prestur Arskógstrendinga, en
hefur búsetu i Hrisey.