Tíminn - 23.03.1978, Qupperneq 9
Fimmtudagur 23. marz 1978
9
Gönguferðir
Ferðafélags
*
Islands
Auðveldar fjallgöngur hafa
unnið sér vaxandi vinsældir hjá
almenningi hin siðustu ár. Um
það ber vitni hin mikla þátttaka
sem var i Esjugöngum Ferða-
félags Islands á sl. sumri. Með
hliðsjón af þeirri reynslu sem þá
fékkst, ákvað stjórn Ferðafélags-
ins að efna til nokkurra göngu-
ferða á Vifilsfellið á þessu sumri
og kynna þaðfjall með þeim hætti
á sama hátt og Esjan var kynnt i
fyrra. Má segja að þannig sé
Víf ilsfellið orðið „fjall ársins
1978” hjá Ferðafélagi Islands. A
ferðaáætlun F.I. 1978 eru 5 göngu-
ferðir á fjallið. Fyrsta ferð-
in er samkvæmt þvi n.k. laug-
ardag, 25. marz kl. 13.00. En
ætlunin er að bæta við ferðum
siðar og verður það auglýst i fjöl-
miðlum hverju sinni.
Til minningar um þessa göngu
á „fjall ársins” hefur Ferða-
félagiðlátið prenta litið skjal sem
verður afhent öllum þátttak-
endum að gögu lokinni. A sama
hátt og i fyrra geta menn valið
um hvort þeir koma með hóp-
ferðabil frá Umferðarmiðstöðinni
eða á eigin bilum að þeim stað er
ganganhefsten gengið verður frá
skarðinu i mynni Jósefsdals.
Göngumenn á eigin bilum greiða
þátttökugjald en börn i fylgd full-
orðinna fá fritt. Allir göngumenn
verða skráðir og þegar göngu-
ferðunum er lokið verður dregiö
um nöfninog nokkrum veitt bóka-
verðlaun.
Gönguferðum á Esju verður
haldið áfram i sumar eftir að-
stæðum, þótt þær séu ekki allar
nefndar i Ferðaáætlun 1978.
Verða þær auglýstar i fjölmiðlum
jafnóðum. Næsta Esjuferð verður
á sumardaginn fyrsta en ganga á
Esju þann dag er orðin fastur
liður i starfsemi félagsins og hef-
ur verið svo i langan tima.
(Fréttatilkynning)
Skátar skoða
eldstöðvar
Bandalag islenzkra skáta mun i
sumar gangast fyrir 10 daga
rannsóknarleiðangri á öskju-'
svæðinu i samvinnu við skáta frá
hinum Norðurlöndunum og Nor-
rænu eldfjallastöðina.
Um 100 skátar, 18 ára og eldri,
frá Danmörku, Finnlandi, Fær-
eyjum, Islandi, Noregi og Sviþjóð
munu ferðast um og kanna svæöi
sem afmarkast af Mývatni,
Jökulsá á Fjöllum, Vatnajökli og
Skjálfandafljóti.
A leið sinni munu þeir vinna að
athugun á gróðri og dýralifi svo
og kanna jarðsögu svæöisins.
Verkefni þetta, sem hlotið hefur
nafniö „Vulcan Projekt 1978”, er
framhald á þeirri samvinnu eldri
skáta á Norðurlöndum sem hvaö
hæst bar er þeir stóðu saman að
alheimsmóti skáta, Nordjamb
1975.
Nórdisk ungdomsfond hefur
veitt styrk til þessa verkefnis og
verður hann notaður til að jafna.
ferðakostnað erlendra þátttak- ‘
enda.
,,Gengið
á reka”
ÞH — Húsavfk. Ungmennafélagið
Gaman og Alvara í Ljósavatns-
hreppi frumsýndi sl. föstudags-
kvöld i Ljósvetningabúð gaman-
leikinn „Gengið á feka” eftir
irská höfundinn McConnell.
Leikstjóri er Ingimar Jónsson,
Húsavik.
Með hlutverk i leikritinu fara
Margrét Sigtryggsdóttir Jón A.
Baldvinsson, Haraldur Þórarins-
son, Hildur Traustadóttir, Bald-
vin Kr. Baldvinsson, Einar
Kristjánsson, Óttar Viðarsson,
Jónina Björgvinsdóttir, Kolbrún
Bjarnadóttir, Þorgeir Böðvar-
sson og Hlöðver P. Hlöðversson.
Leikhúsgestir skemmtu sér
ágætlegavelá frumsýningunni og
þótti leikstjórum og leikurum vel
hafa tekizt.
DATSUN 180 B 1978
Stór bíll á smábila verði
en er þó i /úxus-útgáfu
Athugið
Verð miðað við gengi i dag
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 8-45-10 & 8-45-1 1
SPARIÐ BENZÍN OG KAUPIÐ
DATSUN