Tíminn - 23.03.1978, Blaðsíða 16
16
Fimmtudagur 23. marz 1978
Ungur f j áraf lamaður í Ítalíuferð
Þaö bar á góma i haust. Þau
fóru að ræða um það sin á milli,
ungu hjónin, aö leggja land und-
ir fót og fara til ltaliu. Guð-
mundur Pétur, sem er ekki
nema sex ára, hlustaði á, dálitið
áhyggjufullur. llonum hraus
hugur við þvi að veröa cftir
heima, og svovartalað þannig
um þessa ttalíuferð, að hann
langaði óðar til þess að fara
lika. En pabbi hans sagði hon-
um, að þetta væri svo dýrt, að
hann yrði að vera heima.
Guðmundur Pétur varð hugsi.
En ungt fólk hefur blessunar-
lega mikiö hugmyndaflug, og
Guðmundi Pétri kom ráð i hug.
— Égsafna bara fyrir ferðinni
sjálfur.
Þá var hlegið. Þaö þurfti nú
meira til en það, sem yrði gripið
upp úr steinunum. En Guð-
mundur Pétur lét sig ekki. Þaö
var hann einn, sem trúði þvi, að
hann gæti safnað fyrir ferðinni.
Til var á heimilinu geysilega
stór kókflaska, tuttugu og fimm
litra. Þessa flösku gerði piltur
að fjárhirzlu sinni. Hann fór
með hana fram i forstofú og lét
hana blasa viö allra augum, og
lá þá ekki heldur á þvi, hvers
vegna þessi flaska var þarna.
Þegar dyrabjöllunni var hringt,
fór hann sjálfur fram i forstofu,
ef hann var við látinn og lét orð
falla um flösku sina og ferða-
áætlun. Og það hrutu i hana
krónur. Smátt og smátt hækkaði
i henni. Sjálfur steinhætti hann
að bragða sælgæti, þótt honum
væri boðið það, en fór þess aftur
á móti vinsamlega á leit, að
andvirðið rynni i peningaflösk-
una.
Nú bar það upp á, að Guð-
mundur Pétur átti afmæli. Boö-
iðvar i afmælið eins og titt er á
merkisdögum svona ungra
manna, ogfylgdi það boðinu, að
afmælisbarniö vildi engar aðrar
gjafir en þær sem smeygja
mátti i flöskuna i forstofunni.
Það létu sér allir skiljast, enda
þegar farið að vitnast um þessa
merkilegu flösku meðal kunn-
ingjanna. Það var drjúgur
slatti, sem draup i hana þennan
dag, enda ekki laust við, að
pabbi og mamma og afi og
amma væru dálitið skattlögð.
Loks kom þar nú á dögunum,
að kókflaskan var oröin full upp
i stút. Þá rann upp merkileg
stund. Hvolft var úr flöskunni á
gólfteppið i stofunni og talning
hafin. Pabbi var skipaður að-
stoðartalningarmeistari. Úr
flöskunni komu 89.830 krónuj,
talsvert. betur en þriðjungur i
fimmtiu, tiuog fimm króna pen-
ingum, en hitt i seðlum..
Guðmundur Pétur hefur öngl-
að saman i ferðakostnaðinn, og
nú kemst hann af sjálfsdáðum
til Italíu.
HIM BO-veggsamstæður
fyrir hljómflutningstæki
Tilvaldar fermingargjafir
Húsgögn og
innréttingar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiösla
Rafvörur og verkfæri
Byggingavörur
0SAMVIRKI
VERZLUN
Þverholti í Mosfellssveit Sími 6-66-90
Lóðaúthlutun —
Hafnarfjörður
Hafnarfjarðarbær úthlutar á næstunni
þremur tvibýlishúsalóðum við Hólabraut
og Ásbúðartröð.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkfræðings,
Strandgötu (i.
Umsóknum skal skilaö á sama staö eigi siöar en þriðju-
daginn 11. april 1978.
Eldri umsóknir þarf aö endurnýja.
Bæjarverkfræðingur.