Tíminn - 23.03.1978, Qupperneq 25
Fimmtudagur 23. marz 1978
25
Málmnemar í
Búlgaríu fyrir
fimm til sex
þúsund árum
- gullsmiðir við
Svartahaf
Meira en fimm þiisund ára gamall gullhafur úr táknrænni gröf viO
Varna viö Svartahaf.
~ BUlgariu, sem hvað mesta at-
hygli hafa vakið. Þar hafa fund-
izt minjar bændaþjóðflokks
þess, sem stundaði námagröft
svo miklu fyrr en áður þótti
hugsanlegt, svo sem áður var
vikið að. Þetta fólk átti heima á
bökkum Dónár, ekki fjarri
Svartahafi, og meðal þess voru
frábærir málmsmiðir.
Þettaernúskýlaust talin upp-
finning þessa fólks sjálfs. Þeirr-
ar skoðunar er til dæmis Sovét-
maðurinn Jevgenej Tjemych,
sem er viðurkenndur sér-
fræðingur i frumsögu málm-
iðnaðar. í ritinu Priroda hefur
verið sagt frá rannsóknum á lifi
og háttum þessa dularfulla
þjóöflokks.
Hann átti heima á belti þvi’ frá
Indlandshafi til Karpatafjalla,
sem akuryrkjufólk byggði.
Fólkið átti heima i stórum bæj-
um eða þorpum, og hafa um-
merki um þessi þorp fundizt i
hundraða tali. Hægt er að gera
sér allgóða grein fyrir þvi,
hvernig hibýli þess hafa verið,
og frá þessum dögum hafa fund-
izt lituð leikfóng, þar á meðal
briiður. A öllu svæðinu frá
Karpatafjöllum til nyrðri fjalla
á Balkanskaga hefur fundizt
mikið af verkfærum lír kopar,
og má i rauninni tala um kopar-
öld á þessum slóðum. Lengi vel
þorðu fornleifafræðingar ekki
aðfesta trúnaðá,að þessi verk-
færi ættu þarna uppruna sinn —
þau hlutu að vera komin að
austan, þar sem „vagga menn-
ingarinnar” stóð. Þau gátu til
dæmis verið minjar um menn
frá Litlu-Asíu, sem komið höfðu
til þess að leita að gulli, kopar
eða öðru verðmæti.
Aldursákvarðanir hafa koll-
varpað fyrri hugmyndu um
aldur þessara verkfæra. Kn
endanleg sönnun þess, að þau
eru ekki aðflutt, fannst við
rannsóknir búlgarskra og
sovézkra fornleifafræðinga og
jarðfræðinga árið 1971. Þá var
tekið að leita skipulega að forn-
um námum i fjallahéruðum
Suður-Búlgariu, og i Aj-búnar
var gerð merkileg uppgötvun.
Þar fannst námasvæði frá
fjórðu öld fyrir Krist, þar sem
þúsundir smálesta af kopar-
grýti höfðu verið brotnar úr
jörðu á hálfs kilómetra löngu
svæði. Yfirleitt hafði ekki verið
farið lengra i' jörðu niður en tvo
til þrjá metra, en þó fundust
dæmi um allt að tuttugu metra
löng námagöng. Af einhverjum
ástæðum höfðu námugöngin
verið fyllt á ný með venjulegu
grjóti, og i þvi fundust leirmun-
ir, sem nota mátti til aldurs-
ákvörðunar. Hér hafði auðsjá-
anlega verið stundaður mikill
og skipulegur námagröftur af
mönnum, sem þekkingu höfðu.
Og það hafði ekki verið tekinn
einvörðungu hreinn kopar, held-
ur málmgrýti, sem jafnframt
þýðir, að þetta fólk hefur stund-
að málmbræðslu.
Með nákvæmum rannsóknum
tókst að fylgja eftir þeim mun-
um, sem úr málmgrýtinu voru
unnir, og hafa þeir komið i
leitirnar i Moldaviu og Vest-
ur-úkrainu. Hér hefur með öðr-
um orðum verið stunduð milli-
landaverzlun. Loks má geta
þess, að i' leitirnar hafa komið
eins konar skriftákn, sem þetta
fólk hefur þekkt og notað, þótt
ekki hafi enn tekizt að lesa úr
þeim.
Haustið 1972 komu i leitirnar
elztu gulldjásn, sem vitað er um
i veröldinni. Það gerðist einmitt
við Varna i Búlgariu á strönd
Svartahafsins. Það var
jarðýta, sem opnaði þar forna
gröf, fimm til sex þúsund ára
gamla, og í henni reyndur gull-
gripir, sem voru tvö pund að
þyngd.
Þess sáust þó engin merki, að
nokkur maður heföi verið lagð-
ur i þessa gröf. Hallast menn að
þvi, aðhún hafi þess vegna ver-
ið táknræn. Slikar grafir hafa
fleiri fundizt og er það einkenni
þeirra, að gullgripir hafa verið
lagðir i' þær. En innan um þess-
ar grafir hafa svo fundizt aðrar
með beinaleifum.
I táknrænu gröfunum er yfir-
leitt mikiðaf munum — leirker,
steinaxir, tinnuhnifar og alls
konar verkfæri úr kopar, auk
gullmunanna, sem eru arm-
bönd, skildir, hjól, gullgeitur og
gullhafrar. 1 sumum grafanna
hefur gulldjásnunum verið rað-
að á þá lund, að þau mynduðu
andlit: enni, augu, munn og
tennur.
Hvers vegna urðu þessar
tákngrafir til? Voru þær til
dýrðar guði eða mönnum? Mik-
ið hefur verið i þær borið, þó að
gripirnir í þeim séu ekki jafn-
fágaðir og siðar varð. Samt er
handbragðið oft fallegt, og hafa
vafalaust verið þar að verki
menn, sem höfðu tileinkað sér
mikla kunnáttu.
Islensk húsgögn
Fyrir táninga á öllum aldri
Sérstaklega smekkleg og þægileg
Hönnun: Gunnar Magnusson, húsgagnaarkitekt.
Sjón er sögu ríkari
....
Verið
velkomin
SMIIWJVF.GI 6 SÍMI 44544
□AIHATSU
JAPANSKUR GÆÐINGUR
# •
SJON ER SOGU RIKARI
DAIHATSU
ÁRMÚLA 23 slmi 81733