Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 4
4 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 18.8.2006
Bandaríkjadalur 69,47 69,81
Sterlingspund 130,85 131,49
Evra 89,07 89,57
Dönsk króna 11,937 12,007
Norsk króna 11,014 11,078
Sænsk króna 9,681 9,737
Japanskt jen 0,6006 0,6042
SDR 103,25 103,87
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
122,9028
Gengisvísitala krónunnar
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Nánari upplýsingar
á marathon.is.
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GLITNIS
19. ÁGÚST
GÓÐA SKEMMTUN
OG GANGI ÞÉR VEL
Í HLAUPINU Í DAG!
SVÍÞJÓÐ, AP Göran Persson forsæt-
isráðherra og samherjar hans í
sænska Jafnaðarmannaflokknum
bættu í gær við nýjum kosninga-
loforðum í viðleitni þeirra til að
fá fleiri kjósendur á sitt band en
sögðust tilbúnir til að styðja
flokkinn í síðustu skoðanakönn-
unum. Í þeim mældust borgara-
flokkarnir með nokkurt forskot á
jafnaðarmenn og bandamenn
þeirra á vinstri vængnum.
Helstu nýju kosningaloforðin
snúa að því að hækka atvinnu-
leysisbætur, að gera tannlækna-
þjónustu ódýrari og að fjárfesta
meira í rannsóknum. Persson
sagðist hafna tillögum borgara-
flokkanna um skattalækkanir;
þær auknu skatttekjur sem hag-
vöxturinn skilaði í ríkiskassann
bæri að nýta til að útvíkka vel-
ferðarþjónustu og styrkja opin-
bera geirann.
Kosningabandalag borgara-
legu flokkanna hefur heitið Svíum
því að lækka skattbyrðina sem á
herðum þeirra hvílir, en hún er sú
þyngsta í heimi, vinni þeir kosn-
ingarnar þann 17. september.
Í niðurstöðum skoðanakönn-
unar Temo, sem birt var í gær,
mældist fylgi borgaraflokka-
bandalagsins 50,1 prósent en
vinstriflokkanna 45,2 prósent.
- aa
GÖRAN PERSSON Sænski forsætisráðherr-
ann kynnir kosningastefnuskrá jafnaðar-
manna í Stokkhólmi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Kosningabaráttan fyrir þingkosningar í Svíþjóð:
Jafnaðarmenn bæta í loforðin
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson,
fráfarandi formaður Framsókn-
arflokksins, harmaði einhliða
ákvörðun Bandaríkjamanna um
að draga varnarlið sitt heim frá
Varnarstöðinni á Keflavíkurflug-
velli. Í ræðu sinni á flokksþingi
Framsóknarflokksins í gær sagð-
ist Halldór alltaf hafa reiknað
með verulegum breytingum en
ekki einhliða ákvörðun sem skap-
aði trúnaðarbrest. Sagði hann
ljóst að ekki væri hægt að treysta
Bandaríkjunum í einu og öllu og
ofurtrú á samstarfi við þá hafa
verið mistök.
Þegar Halldór ræddi Evrópu-
sambandsaðild sagði hann því
hafa verið haldið fram að hann
hefði farið offari í þeirri umræðu.
Hún hafi ekki verið tímabær.
Sagði hann að í hans huga væri
ávallt tímabært að ræða framtíð-
ina. Hann varaði við tómlæti og
kæruleysi í Evrópumálum en
kvað mikilvægt að ákvarðanir
sem varða framtíð þjóðarinnar
yrðu teknar á eigin forsendum
og þegar okkur hentar en ekki
þegar við getum ekki annað.
Benti hann á reynsluna af varn-
arsamstarfinu við Bandaríkin,
máli sínu til stuðnings, og sagði
Sjálfstæðisflokkinn hafa farið
fremst þeirra sem haft hafi ofur-
trú á samstarfinu við Bandaríkin
og skynsamir menn á þeim bæ
hljóti að sjá að nú þurfi að skoða
margt í nýju ljósi.
Í ræðu sinni staldraði Halldór
við ýmis pólitísk deiluefni síð-
ustu áratuga. Hann sagði það sitt
mat að ekki væri skynsamlegt að
hrófla mikið við skattkerfinu en
brýndi þó skattayfirvöld til að
fylgja anda skattalaga og gefa út
viðmiðunarreglur um skattskil
fólks sem aðeins nýtur fjár-
magnstekna. Sagði hann því vart
trúað að þeir sem eingöngu hafi
tekjur af fjármagnstekjum vinni
ekkert að öflun teknanna og sé
iðjulaust fólk. Þá gerði hann hátt
matvælaverð að umtalsefni,
sagði óásættanlegt að það væri
mun hærra hér en í viðmiðunar-
löndunum og kvaðst telja aug-
ljóst að vörugjald yrði fellt niður,
skattur á matvæli samræmdur
og að innflutningsverndinni
verði breytt svo samkeppni auk-
ist. Hann spurði hvað réttlætti að
við borgum miklu hærra verð
fyrir kjúklinga og svínakjöt en
aðrir neytendur í Evrópu.
Halldór gerði mikið úr
almennum sáttaumleitunum rík-
isstjórnarinnar og sagði meiri
sátt ríkja um sjávarútveginn nú
en oftast áður. Aldrei verði þó
hægt að gera svo öllum líki þegar
miklir hagsmunir séu í húfi. Þá
sagðist hann viss um að mikill
meirihluti þjóðarinnar verði
ánægður með Kárahnjúkavirkj-
un þegar upp verði staðið.
bjorn@frettabladid.is
Mistök að hafa ofurtrú á
samstarfi við Bandaríkin
Varnarsamstarfið var meðal þess sem Halldór Ásgrímsson fjallaði um í ræðu sinni á þingi Framsóknar-
flokksins í gær. Hann sagði Sjálfstæðisflokkinn hafa farið fremst þeirra sem haft hafa ofurtrú á samstarfi við
Bandaríkjamenn og að skynsamir menn á þeim bæ hljóti að sjá að nú þurfi að skoða margt í nýju ljósi.
����������������������������������
�������������
�������
����
�������� ��
���������
������
�����
���������
���������������
������
��������
��������
�������
����
������� ��
�������������
���������������
�������������
�����������������
��������������
������������
�����������
�����������
��������������
��������������
��������������
��������������
���������������
��������������
��������������
����������
���������
�������������������
������������ ������������
����� ������� ��� ����
� ������������� �� �����
����� ������� ��������
����� ���������������� ���
����� ��� �������� ����
�����������������
����� ��������������
������������������ �� �
����� ���� ����������������
����������������������
���� ���������� � �������
������������� �������
����������������
����������������������
������������������
������������
��� ���� ����� ��
����������� �������������
����� ���� ���������������
��������� �������������� ����
���� ��
���������������������
�� ������ �� ����������
������� �� ���
��
�� ��
��
��
��
��
��
�� ��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
� �
�
�
��
�
�
�
�
�
��
Óformlegar viðræður um myndun
vinstri stjórnar áttu sér stað í kring-
um alþingiskosningarnar 1995.
Halldór Ásgrímsson upplýsti
þetta í ræðu sinni á flokksþinginu
í gær. Sagði hann að þáverandi
formaður Alþýðuflokksins (Jón
Baldvin Hannibalsson) hefði kveð-
ið upp úr með það að hann vildi
fremur áframhaldandi samstarf við
Sjálfstæðisflokkinn, en kjörtíma-
bilið á undan sátu Alþýðuflokkur
og Sjálfstæðisflokkur í ríkisstjórn.
Úr varð að Framsóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur mynduðu stjórn
eftir kosningarnar 1995 og sagðist
Halldór ekki í vafa um sú ákvörðun
hefði verið rétt og farsæl.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 25
menn kjörna í kosningunum 1995
og Framsóknarflokkurinn fimmtán.
Alþýðubandalagið hlaut níu menn,
Alþýðuflokkurinn sjö, Þjóðvaki
fjóra og Samtök um kvennalista
þrjá. Stjórnarsamstarf án Sjálfstæð-
isflokksins hefði því verið ómögu-
legt nema með samstarfi fjögurra
flokka.
Halldór sagði sjálfstæðismenn
hafa verið höfuðandstæðinga
framsóknarmanna frá fornu fari
en samstarfið síðustu ellefu árin
hafi verið einstaklega farsælt.
Sagði hann því stundum fleygt
á vinstri væng stjórnmálanna að
Framsóknarflokkurinn hefði gerst
hækja íhaldsins en það væri fjarri
öllu sanni. Sín skoðun væri að áhrif
framsóknarmanna í samstarfinu
væru meiri ef eitthvað væri.
Vinstri stjórn
rædd 1995
DAVÍÐ OG HALLDÓR mynduðu ríkis-
stjórn eftir kosningarnar 1995 eftir að
ekkert varð úr þreifingum um myndun
vinstri stjórnar.
Eldur í bíl Eldur kom upp í vél sendi-
bíls á Biskupstungnavegi á sjöunda
tímanum í gærkvöldi. Slökkvilið náði
að slökkva eldinn en bíllinn skemmdist
mikið og er talinn ónýtur. Engin meiðsl
urðu á fólki. Eldsupptök eru ókunn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Í Fréttablaðinu seinasta miðvikudag
var fjallað um varnarliðsmann sem er
nú fyrir rétti vegna morðs. Í fréttinni
var maðurinn kallaður „morðingi“ en
hið rétta er að hann hefur ekki verið
dæmdur. Fréttablaðið biðst velvirðingar
á þessum mistökum.
LEIÐRÉTTING
Blönduós Hraðakstur erlendra
ökumanna var áberandi í umdæmi
lögreglunnar á Blönduósi, en fimm af
tólf ökumönnum sem teknir voru fyrir of
hraðan akstur voru erlendir ferðamenn.
Þeir voru einnig á mestum hraða, en sá
sem hraðast fór var á 130 km/klst.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON varaði meðal annars við tómlæti og kæruleysi í Evrópumálum í ræðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins í
gær. Þá gerði hann hátt matvælaverð að umtalsefni og sagði óásættanlegt að það væri mun hærra hér en í viðmiðunarlöndunum. Halldór
vill að vörugjald verði afnumið og að innflutningsvernd búvara verði breytt. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN