Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 8
 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR ÍSRAEL, GAZA-STRÖNDIN, AP Þótt áform um að Ísraelsher yfirgefi hernumin svæði á Vesturbakkan- um hafi ekki verið gerð ógild, hefur ríkisstjórnin engin áform um að draga herinn til baka um fyrirsjáanlega framtíð. Talsmaður Ehuds Olmert, forsætisráðherra Ísraels, staðfesti þetta í ísraelsk- um fjölmiðlum í gær, en Olmert mun hafa tilkynnt ráðherrum sínum þetta í vikunni. Þó hillir undir vopnahlé milli stríðandi fylkinga, því Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, tilkynnti á fimmtudag að palestínskir skæruliðar hefðu lofað að hætta hernaði gegn Ísrael, í von um að ljúka tveggja mánaða herferð Ísraela á Gaza-svæðinu. Ibrahim Abu Naja, sem leiðir viðræður stjórnarinnar og mis- munandi hópa uppreisnarmanna innan Palestínu, staðfesti fregn- irnar, en talsmenn einstakra hópa skæruliða neituðu þeim. Naja bætti við að hugsanlegt vopnahlé ráðist hins vegar algjör- lega af afstöðu Ísraels. Talsmaður Ísraelsstjórnar, David Baker, sagði að Ísrael myndi bregðast vel við stöðvun árása Palestínumanna á Ísrael. Talsvert hefur dregið úr árás- um á Ísrael undanfarna daga. - smk Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs: Vopnahlé í augsýn á Gaza PALESTÍNA Ismail Haniyeh, forsætisráð- herra Palestínu, t.v., og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, á fundi í Gaza-borg. RÉTTABLAÐIÐ/AP MENNINGARNÓTT Löggæsla verður hert á Menningarnótt í kvöld og verða fleiri lögreglumenn á vakt en sama kvöld í fyrra. Miðað er að því að koma í veg fyrir hópamyndun og drykkju unglinga eftir að dagskrá hátíðarinnar lýkur. Stórum hluta gatna miðborgar- innar verður lokað fyrir bílaum- ferð. Búist er við að allt að hundrað þúsund manns leggi leið sína í mið- borgina á meðan á hátíðinni stend- ur. Meðal uppákoma eru tónlistaratriði á Ingólfstorgi, dans í Alþjóða- húsi, listsýningar í Gallerí Fold og Reykjavíkurmar- aþon. Fulltrúar þeirra sem koma að öryggismálum á Menningarnótt hittust í Skógar- hlíð á miðvikudag og fóru yfir helstu mál. Þar kom fram að hátt í sjötíu lögregluþjónar verða á vakt á Menningarnótt í ár, en þeir voru um fimmtíu í fyrra. Einnig verða tut- tugu björgunarsveitarmenn lög- reglunni til aðstoðar ef þurfa þykir. Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn segir dæmi um að hópar ungl- inga hafi myndast í miðborginni eftir að dagskrá Menningarnætur lýkur, enda oft um seinustu fríhelgi að ræða hjá skólafólki. Það var raunin eftir seinustu Menningar- nótt og fylgdu drykkjulæti og slags- mál þeim mikla fjölda unglinga sem safnaðist saman í miðborginni eftir að hátíðahöldum lauk. „Menningarnóttin sjálf hefur gengið tiltölulega vel fyrir sig og ekki þurft neinn sérstakan viðbún- að lögreglu vegna þeirrar dagskrár. Það er síðan sveiflukennt hvað tekur við í framhaldi af því. Það hefur borið við að mjög stórir hópar unglinga hafa komið í miðborgina. Það sem gerðist í fyrra var eitthvað sem við viljum ekki sjá gerast.“ Hann segir lögregluna höfða fyrst og fremst til unga fólksins og foreldra þeirra að láta slíkt ekki koma fyrir aftur. „Ungt fólk er almennt til mikillar fyrirmyndar í dag. Það vill ekki að fréttir af því þegar ungt fólk kemur saman verði eins og gerðist í fyrra,“ segir hann. Bára Benediktsdóttir, hjúkrun- arfræðingur á slysa- og bráðadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss, segir heimsóknum á slysadeild eftir Menningarnótt ekki hafa farið fjölg- andi undanfarin ár. „Þetta hefur verið svipað undanfarin ár en við erum með aukaviðbúnað, það er ekkert vit í öðru. Við höfum alltaf aukið örlítið mönnun hjá okkur á Menningarnótt og gamlárskvöld.“ Menningarnótt í ár einkennist af mörgum smærri uppákomum. Ekki verða haldnir stórtónleikar við Reykjavíkurhöfn en á Mikla- túni verða klassískir söngtónleik- ar um kvöldið. salvar@frettabladid.is Viðbúnaður lögreglu mun meiri en í fyrra Hátt í sjötíu löregluþjónar verða á vakt vegna Menningarnætur í kvöld. Yfirlög- regluþjónn segir að stemma eigi stigu við hópamyndun og unglingadrykkju eftir að dagskrá lýkur. Búist er við allt að hundrað þúsund gestum í miðborgina í dag. GEIR JÓN ÞÓRISSON LISTASÝNING UNDIRBÚIN Einn af viðburðum Menningarnætur er sýning á vegglistaverkum í porti Hins Hússins. Hátíðin verður sett þegar skemmtiskokk Reykjavíkurmaraþons hefst klukkan ellefu. VIÐSKIPTI Skortur á nær öllum kjöttegundum dró úr sölumögu- leikum hjá Sláturfélagi Suður- lands á fyrri hluta ársins. Steinþór Skúlason, for- stjóri SS, telur að velta hefði orðið tíu til fimmtán pró- sent meiri ef ekki hefði komið til þessa skorts, sem var einkum á nauta- kjöti. „Það hefur verið verulegur skortur á nautakjöti á innanlandsmarkaði. Svínakjöt hefur okkur vantað líka.“ Þá hefur verið lítið framboð af lambakjöti að sögn Steinþórs. „Það eina sem er nóg af er hrossakjöt.“ Tekjur SS námu 2.259 milljón- um króna á tímabilinu og jukust aðeins um tvö prósent á milli ára. Reiknað er með að framboð og velta aukist á næstu mánuð- um með haustslátrun. Steinþór segir stöðuna mjög óvenjulega því árin 2002-2003 var alltof mikið framleitt af kjöti sem olli verðfalli. Þetta sé að sumu leyti orsök vandans í dag. Hækkun fjármagnsgjalda og minni söluhagnaður eigna veld- ur tapi hjá SS upp á 25 milljónir króna á fyrri hluta ársins. Þetta er mikil breyting frá sama tíma í fyrra en þá nam hagnaður félags- ins 182 milljónum króna. Fjár- magnsgjöld hækkuðu umtals- vert vegna hærri vaxta, lækkunar á gengi krónu og auk- innar verðbólgu. Efnahagur SS er traustur; eig- infjárhlutfall var 46 prósent um mitt ár og hækkaði um fimm prósentustig milli ára. Heildar- eignir voru 3.243 milljónir króna. - eþa STEINÞÓR SKÚLA- SON Sláturfélag Suðurlands tapaði 25 milljónum króna : Tap vegna kjötskorts LÍBANON, AP Hizbollah-samtökin í Líbanon hófu í gær að útdeila skaða- bótum til fólks sem missti heimili sín í loftárásum Ísraelshers. Í skóla í suðurhluta Beirút fengu fyrstu fjölskyldurnar tólf þúsund banda- ríkjadali hver í reiðufé. Leiðtogi Hizbollah, Sjeik Hass- an Nasrallah, hét því í sjónvarps- ávarpi á mánudag að samtökin myndu endurbyggja Líbanon og að þau myndu útvega fólki sem missti heimili sín fé til að greiða fyrir húsaleigu og innbú. Líkum er að því leitt að það sé ættað úr fjárhirslum Íransstjórnar. - aa Hizbollah-samtökin í Líbanon: Útdeilir skaða- bótum í reiðufé 12.000 DALIR HVER Íbúi telur 100-dala- seðla sem hann fékk úthlutað í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.