Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 52
10 | LISTAGÓÐ MENNINGARNÓTT 2006 | Lækjargata 2a 101 Reykjavík sími 511-5001 opið 9.00 - 22.00 alla daga Landsþekktir höfundar koma og lesa. Einar Már Guðmundsson, kl. 16.00 Ævar Örn Jósepsson, kl. 17.00 Guðrún Eva Mínervudóttir, kl. 20.30 Menningarnótt í IÐU Fáum spæjaramús í heimsókn Geronmino Stilton. Einnig verða víkingar í IÐU kl. 15.15 og kl. 17.15 kl. 14.00 til 14.30 og 15.00 til 15.30 Allar nýjustu upplýsingar og fréttirá ensku á vefnum reykjavik.com og í blaðinu Reykjavikmag Dagskrá Menningarnætur í Þjóðminjasafninu við Suður- götu er tileinkuð konum sem ekki eru alltaf mjög sýni- legar. Dagskráin verður mest á blíðlegum nótum þótt stöku tröllskessa stingi upp kollinum. Íslenskar konur, huldar og aðrar sýnilegri, eru viðfangsefni dagsins í leiðsögnum, söng og sögum sérfróðra um sýningar safnsins. Kl. 13 og 16 mun Hildigunnur Þráinsdóttir leikkona segja sögur af tröllskessum, álfkonum og huldukonum. Kl. 14 og 17 mun Hrafnhildur Schram listfræðingur leiða gesti um sýninguna Huldukonur í íslenskri myndlist í Bogasal. Kl. 15 og 20 verður Þorgerður Þorvaldsdóttir sagn- og kynjafræðingur með leiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins sem nefnist Kvennafans. Kl. 13.30 og 16.30 flytur Bára Grímsdóttir tónlistarmaður tónlist sem hæfir tilefninu. Kvikmyndin Gilitrutt frá árinu 1957 verður sýnd í fyrirlestrarsal korteri fyrir heila tímann frá kl. 14.45 til 19.45. Þar fá gestir einnig tækifæri til að rækta skáldagáfu sína. Allan daginn er boðið upp á ratleikinn: Hvar eru konurnar? Fyrir börn og fullorðna. Sögukefli verður á Veggnum þar sem gestir sameinast um að semja álfa- og tröllasögur. „Með gullband um sig miðja“ er sýning á íslenskum búningum og búningaskarti og núna stendur yfir síðasta sýningarhelgin á sýningunni „Huldukonur í íslenskri myndlist“. Kvenlegar dyggðir finnast í safnbúðinni og í Kaffitári er boðið upp á ástríðukaffi. Aðgangur er ókeypis. Safnið opnar kl 10, en dagskráin hefst kl. 13 og stendur óslitin fram að lokun safnsins kl. 21. UPPLÝSINGAR VEITA SIGRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR FAGSTJÓRI SAFNFRÆÐSLU OG ARNDÍS ÁRNADÓTTIR VAKTSTJÓRI Í SÍMA 530 2200. Margslungnar meyjar í Þjóðminjasafninu Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík stendur fyrir útibíói á Menningarnótt frá kl. 22 til miðnættis. Þrjár íslenskar stuttmyndir verða sýndar en myndunum verður varpað fjórum sinnum á Héraðsdóm Reykjavíkur við Lækjartorg. Sú fyrsta heitir Töframaðurinn eftir leikstjórann Reyni Lyngdal. Sú mynd hlaut mikið lof gagnrýnenda þegar hún var frumsýnd fyrr á árinu. Slavek the Shit er athyglisverð mynd eftir Grím Hákonarson sem hann gerði þegar hann var við nám í kvik- myndaskólanum FAMU í Prag. Myndin fjallar um almenning- sklósettvörðinn Slavek og breytinguna sem verður á lífi hans þegar ný kona tekur við klósettvörslu á kvennaklósettinu. Hér er á ferðinni afskaplega falleg, fyndin og skemmtileg mynd. Goodbye, Cruel World er eftir hálfíslenska kvikmyndagerðar- manninn Vito Rocco en hann er búsettur í London. Goodbye, Cruel World hefur aldrei komið fyrir sjónir Íslendinga áður. Myndin segir frá ungum dreng sem tekst á við dauða besta vinar síns, gamalmennisins Herra Carter, með óvenjulegum og skemmtilegum hætti. Myndin hlaut aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Pifan í Kóreu, Emden í Þýskalandi og á Kodak/BAFTA hátíðinni í London, auk þess sem hún hefur verið tilnefnd til verðlauna á fjölda annarra hátíða. Hér er um að ræða einstakt tækifæri til þess að sjá íslenskar stuttmyndir á heimsmælikvarða, en engin þessara mynda hefur verið sýnd í íslensku sjónvarpi né í almennum bíósýningum. Útibíó á Lækjartorgi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.