Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 48
6 | LISTAGÓÐ MENNINGARNÓTT 2006 |
60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004
MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu.
HANN ER GRIMMUR!
MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER
- VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár
- Útvegum notaða skotbómulyftara
- Úrval notaðra lyftara á lager
Fjórhjóladrifinn
Fjórhjólastýrður
Lyftigeta: 3.400 KG
Lyftihæð: 6.050 MM
Gafflar: 1.200 MM
Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ
LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar
án aukins snúningshraða vélar.
SKOTBÓMULYFTARI
PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf.
Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður
Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, skáld og
tónlistarmaður, heldur Stofutónleika í bókasal
Þjóðmenningarhússins kl 16, 17, 18 og 20.
HVAÐ ERU STOFUTÓNLEIKAR?
Það eru heimilislegir tónleikar. Þessir heita það af því að þeir
byrjuðu í stofunni heima hjá mér fyrir nokkrum árum. Anna
Pálína, konan mín, var með mér þá en ég hef haldið uppi
merki tónleikanna síðan. Nafnið hefur því haldist þó ég hafi
flutt mig um set í aðra stofu. Þetta er með heimilislegum brag
og mikilli nánd við áhorfendur. Ég sé reyndar að fleiri eru að
taka þetta nafn upp og það er gaman að það skuli vera að festa
sig í sessi.
HVERT ER UPPHAFIÐ AÐ ÞESSUM TÓNLEIKUM?
Við hjónin vorum búsett í miðbænum og þetta var bara
einhver hugdetta einn daginn að halda tónleika heima í stofu.
Þannig að þetta var bara skyndiákvörðun sem okkur fannst
ekki hægt að snúa til baka með. Við seldum síðan húsið árið
eftir fyrstu tónleikana og fluttum okkur í Hljómskálann í
Hljómskálagarðinum en þar höfðu þá ekki verið haldnir tón-
leikar í áratugi og svo varð Þjóðmenningarhúsið fyrir valinu
og ég er mjög ánægður með samstarfið við það. Við verðum
að sjálfsögðu á þjóðmenningarlegum nótum, sem fylgir nát-
túrlega stemningunni við húsið.
HVAÐ HAFA VERIÐ HALDNIR MARGIR STOFUTÓNLEIKAR?
Þetta eru sjöttu tónleikarnir í röð, en þeir fylgja þessu árhund-
raði þar sem fyrstu tónleikarnir voru árið 2001. Mætingin
verið mjög góð og troðfullt öll árin þannig að það hefur verið
alveg úrvalsmæting.
KEMURÐU TIL MEÐ AÐ FLYTJA FRUMSAMIÐ EFNI?
Þetta er að stórum hluta frumsamið efni og ýmsir tónlistar-
menn eru með mér og þeir tengjast mér allir á einhvern hátt.
Fólk, sem maður þekkir eins og á að vera heima í stofu, eins
og Guðrún Gunnarsdóttir, sem ég hef starfað talsvert með í
gegnum tíðina; Sigurður Flosason, einn af mínum helstu sam-
starfsmönnum í tónlistinni en við sendum frá okkur tvöfaldan
geisladisk fyrr á árinu sem heitir Hvar er tunglið? Þar söng
Kristjana Stefánsdóttir tónsmíðar Sigurðar við ljóð eftir mig.
Gunnar Gunnarsson píanóleikari er líka með mér og hann
hefur starfað mikið með mér að barnaefni sem verður einnig
að finna á þessum tónleikum en þeir eiga einmitt að spanna
allan aldurshópinn.
MEGA GESTIR TAKA UNDIR Í SÖNGNUM?
Já, þeir mega taka undir allt sem þeir kunna, enda lagt upp úr
því að það sé þægileg og heimilisleg stemning.
HVAÐ ERU HVERJIR TÓNLEIKAR LANGIR?
Hverjir tónleikar eru ekki nema rúmur hálftími, enda fólk á
ferðinni um miðbæinn og vill kannski ekki stoppa mjög lengi
á hverjum stað. Tónleikarnir eru ólíkir innbyrðis. Það er mis-
jafnt hverjir koma fram og hvaða efni er notað. Við horfum
yfir hópinn og sjáum hvað passar samsetningu gestanna hverju
sinni. Talsvert af fólki kemur á hverju ári og það er gaman að
sjá en eins er alveg frábært að sjá ný andlit þannig að gamlir og
nýir gestir eru hjartanlega velkomnir.
VELKOMIN
TIL STOFU
Undanfarið hefur staðið yfir heljarinnar lestrarmaraþon á
vegum Borgarbókasafns Reykjavíkur og á Menningarnótt
verður haldin uppskeruhátíð í Grófarhúsinu þar sem góðir
gestir líta við.
Hildur Baldursdóttir og Þorbjörg Mímisdóttir lesa og segja
sögur fyrir alla fjölskylduna. Félagarnir Einar Kárason og Árni
Johnsen syngja Göllavísur Ása í Bæ. Landsliðskonur úr Val og
KR mæta ferskar beint af leik Íslands og Tékklands og lesa úr
uppáhaldsbókunum sínum fyrir gesti.
Tvær sýningar standa yfir í safninu, annars vegar „Skáldin á
götunni“ sem eru klippiljóð sem gestir safnsins settu saman
á Safnanótt og ljósmyndasýningin „Lesið í landslagið“ eftir
Guðmund Guðmundsson og Þráin Þorvaldsson sem hafa tekið
ljósmyndir af alls konar kynjaverum í náttúrunni á leið sinni
um landið.
Félagar úr hljómsveitinni Loftvarnir mæta síðan kl. 18 og
flytja frumsamda tónlist við ritverkin Kristnihald undir
jökli, Hringadróttinssögu og Vesturfarann en hinn ungi og
upprennandi leikari Bragi Árnason les.
Klukkan hálf átta afhendir rithöfundurinn Sjón verðlaun í
lestrarmaraþoninu og spjallar um lestraríþróttina.
BORGARBÓKASAFN / TRYGGVAGÖTU 15 / 101 REYKJAVÍK
Hið mikla maraþon ...
í lestri