Fréttablaðið - 19.08.2006, Síða 62
19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR16
Samskipti manna og dýra hafa allt frá fyrstu tíð heillað
kvikmyndagerðarmenn og þegar best lætur er fjallað um
þau í jákvæðu ljósi. Á seinni hluta tuttugustu aldar fór hins
vegar að bera meir á kvikmyndum þar sem dýrin snúast af
einhverjum ástæðum gegn mannskepnunni, en margir vilja
rekja þá þróun til vaxandi umhverfisvitundar. Slíkar myndir
flokkast oftast sem hryllingsmyndir, þar sem skilaboðin eru
skýr: Ef þú atast í Móður náttúru er úti um þig.
1. Birds (1963). Óútskýranleg árásargirni hleypur í fugla
um heim allan þar til enginn er óhultur, ekki einu sinni fyrir
meinleysislegum kanarífuglum. Af mörgum talin vera með
betri myndum leikstjórans Alfreds Hitchcock. Sérstaklega
ógeðfellt atriði er þegar fiðurfénaðurinn ræðst gegn hópi
saklausra skólabarna.
2. Jaws (1975). Morðóður hákarl gengur berserksgang við
strendur Amnity Eyjar, á Nýja-Englandi, og étur allt og alla
sem á vegi hans verður þar til bæjarfógetinn ræður niðurlög-
um óargadýrsins. Jaws náði fyrst allra mynda 100.000 millj-
óna dollara hagnaði og telst því vera fyrsti stórsmellurinn
(blockbuster), en hún þótti svo ógnvekjandi að eftir sýningu
hennar tæmdust bandarískar strendur.
3. Cujo (1983). Meinleysislegur Sankti Bernharðs-hundur
fær hundaæði þegar hann er bitinn af leðurblöku og snýst
gegn eigendum sínum. Myndin er byggð á sögu rithöfund-
arins Stephens King, en þess má geta að blanda eggjahvítu
og sykri var smurð á skolt hundsins svo að hann liti út fyrir
að froðufella. Bragðið gafst ekki vel því hundurinn sem lék í
myndinni sleikti hana í sífellu í burtu, þar sem honum þótti
hún svo góð.
4. Arachnophobia (1990). Afrísk risakönguló, með smekk
fyrir mannakjöti, er fyrir slysni flutt úr sínu náttúrulega
umhverfi til bandarísks smábæjar, þar sem hún tekur að
fjölga sér. Fyrr en varir er bærinn undirlagður af blóðþyrstum
áttfætlingum.
5. Day of the Animals (1977). Umhverfisáróðurinn hefur
sjaldan verið eins áberandi eins og í þessari mynd, þar
sem göngugarpar berjast fyrir lífi sínu í skógi uppfullum af
dýrum sem hafa orðið mannskæð í kjölfar umhverfisslyss.
„Náttúran snýr vörn í sókn!“, var ein setning sem var látin
lýsa myndinni.
TOPP 5: DÝRAHROLLVEKJUR
„Uppáhaldsstaðurinn er Vest-
mannaeyjar í tuttugu stiga
hita og sól. Ég er frá Eyjum og
þar býr öll mín fjölskylda og
vinir,“ segir Margrét Lára Við-
arsdóttir knattspyrnukona og
er þá spurð hvers hún sakni
mest frá Eyjum. „Ég sakna
náttúrulega fjölskyldunnar og
þess að vera frjáls í Eyjum og
geta labbað út um allt. Svo
sakna ég Hásteinsvallar sárt
og fjallanna í kring. Ég reyni
að sjálfsögðu að fara alltaf á
Þjóðhátíð,“ segir Margrét Lára.
UPPÁHALDSSTAÐURINN
Heima hjá fjölskyldunni
Margrét Lára, knattspyrnukona
sem spilar með Val, saknar
Hásteinsvallar í Eyjum.
... að þegar breski heimspekingur-
inn Jeremy Bentham dó árið 1832
gaf hann líkama sinn sjúkrahúsi
Lundúnaborgar? Hann setti hins
vegar það skilyrði fyrir gjöfinni að
beinagrind hans og vaxmynd af
andliti hans yrði viðstatt alla fundi
stjórnar sjúkrahússins. Þessari hefð
hefur verið viðhaldið í yfir 170 ár.
... að þegar rithöfundurinn Thomas
Hardy lést árið 1928 var aska hans
grafin í Westminster Abbey? Hins
vegar stal köttur fjölskyldunnar
hjarta hans. Þegar það fannst
nokkru síðar var það jarðað í Stin-
son á Englandi.
... að á Viktoríutímanum voru gestir
kirkjugarðs New York borgar rukk-
aðir um aðgangseyri og gátu fengið
leiðsögn í gegnum garðinn?
... að í gæludýrakirkjugarðinum í
Hanover Park í Illinois ríki í Banda-
ríkjunum, geta eigendur gæludýr-
anna fengið að láta jarða sig við
hlið vina sinna?
... að í Hamilton grafhýsinu í
Skotlandi er fimmtán sekúndna
langt bergmál? Ein rödd getur því
hljómað líkt og heill kór.
... að til eru margar skondnar setn-
ingar á legsteinum?
... að á legsteini í Moultrie í Georg-
íuríki stendur: „Hér liggur faðir 29
barna. Hann hefði getað átt fleiri
en hafði ekki tíma til þess.“
... að á legsteini Friðriks prins af
Wales stendur: „Hér liggur Fred ...
Sem lifði, og er nú dáinn, um það
er ekki meira að segja.“
... að á legsteini í Uniontown í
Pennsylvaníuríki stendur: „Hér
liggur líkami Johnathon Blake, sem
steig á bensínið í stað bremsunn-
ar.“
... að á legsteini leikkonunnar Joan
Hackett stendur: „Joan Hackett:
1934-1983. Farðu burt – ég er
sofandi.“
... að á legsteini í Oak Woods
kirkjugarðinum í Chicago stendur:
„Sko, ég var víst veikur.“
... að á legsteini í Huddersfield
kirkjugarðinum á Englandi stendur:
„Hér liggur líkami Emily White, sem
gaf stefnuljós til vinstri og beygði
til hægri.
... að á legsteini í kirkjugarði í París
stendur. „Eiginmaður: Ég bíð þín
með óþreyju, 1827.“ „Eiginkona:
Hér er ég, 1867.“
VISSIR ÞÚ...
Jazzballett – Almenn braut
Eigum nokkur pláss laus fyrir byrjendur og
framhaldsnemendur.
Innritun stendur yfir í síma 5813730.
Einnig er hægt að nálgast umsóknir og frekari
upplýsingar á vefnum www.jsb.is
Nemendur athugið!
Kennsla hefst 6. september samkvæmt stundarskrá.
Stundaskrá verður birt á www.jsb.is 21.ágúst.
D
an
sl
is
ta
rs
kó
li
JS
B
Kennslustaðir:
● Danslistarskólinn í Kópavogi, Íþróttahúsi Digraness.
Almenn braut.
● Danslistarskólinn í Reykjavík, Lágmúla 9
og Laugardalshöll.
Almenn braut og listdansbraut.
Danslist
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT
... sem flig vantar í
n‡ja húsnæ›i›
N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT