Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 34
Xiamen er meðalstór hafnar-borg um það bil miðja vegu milli Shanghai og Hong Kong. Þar býr um ein og hálf millj- ón manns, margir af taívönskum uppruna enda er eyjan Taívan ein- ungis í 180 km fjarlægð handan sundsins sem skilur að eyjuna og meginland Kína. Langaði að breyta til „Við vorum búin að vera að fást við ýmislegt hér heima undanfarin ár, tónlist, fatahönnun og fleira en svo ákváðum við að breyta til og prófa að búa annars staðar en á Íslandi og Kína varð fyrir valinu. Okkur langaði til að prófa eitthvað algjörlega nýtt og Kína er rosa- lega forvitnilegt, öll þessi stærð og þessi menning sem við þekkj- um ekki, það er svo margt að sjá þarna,“ segja þau Rúnar og Elín, sem eru í stuttri heimsókn til Íslands þessa dagana. Og þau völdu að setjast að í Xiamen vegna þess að þau þekktu til Íslendings sem verið hefur í borginni. Sá er Sigurður Guð- mundsson myndlistarmaður sem hefur verið með annan fótinn í Kína síðustu ár ásamt konu sinni. „Pabbi minn þekkir Sigurð og þess vegna ákváðum við að skoða okkur um þar,“ segir Elín. Könnunarferð til Kína Þau fluttu þó ekki umsvifalaust heldur fór Rúnar í könnunarferð til Kína í fyrrasumar og í beinu framhaldi af því ákváðu þau að drífa sig út. Með þeim fluttu líka faðir Elínar og tvær hálfsystur hennar og nú stendur til að fleiri úr fjölskyldu þeirra flytji út til lengri eða skemmri dvalar. „Ætli við verðum ekki um tuttugu Íslend- ingar í Xiamen um jólin,“ segir Elín og hlær að tilhugsuninni. Hún rifjar upp í framhaldinu að íslenski hópurinn hélt 17. júní hátíð í sumar og Norðmenn, Svíar og Danir á svæðinu komu líka og vildu fá að vera með. „Við bökuð- um pönnukökur, spiluðum íslenska tónlist og sungum Maístjörnuna og þetta vakti allt svo mikla lukku að Skandinavarnir vildu bara gera 17. júní að þeirra þjóðhátíðardegi líka.“ Tekið opnum örmum Tónlist er reyndar stór þáttur í því sem Elín og Rúnar eru að fást við í Kína. Rúnar gaf út plötu á Íslandi í fyrra en náði ekki að fylgja henni eftir þar sem þau voru á förum til Kína. „Ég fylgdi henni bara eftir í Kína í staðinn og hún hefur örugg- lega selst betur þar en á Íslandi,“ segir hann og brosir breitt. Rúnar og Elín hafa gert nokkuð af því að halda tónleika í Kína og þau segja það mjög sérstaka upp- lifun. „Það hefur verið mjög erfitt að koma vestrænni tónlist á fram- færi þarna, en af því að við búum þarna er okkur tekið opnum örmum,“ segir Elín. Hún lýsir því svo hvernig Kín- verjar séu allt öðruvísi áheyrend- ur en þau eigi að venjast. „Þeir eru svo opnir, einlægir og ósnobbaðir að þeir hika ekki við að fagna og klappa í miðju lagi ef þeim finnst ástæða til og eftir tónleikana kemur fólk í hópum og vill fá eig- inhandaráritanir og segja okkur hvað því finnst þetta allt frá- bært.“ Kínverjar yndislegt fólk Þau upplifa Kínverja reyndar almennt sem ákaflega opið og glað- lynt fólk. „Það er eitt það besta við að vera þarna hvað fólkið er gott, afslappað og rólegt,“ segja þau og viðurkenna að þau hafi gert sér allt aðra mynd af Kínverjum áður en þau komu til landsins. „Þetta voru ekki beint fordómar heldur hafði maður búið sér til einhvern ramma sem Kínverjarnir áttu að passa inn í en svo gerðu þeir það ekki. Kínverjar eru eitthvert jákvæðasta og fallegasta fólk sem ég hef kynnst á ævi minni, þeir eru svo góðir og yndislegir við mann,“ segir Elín af hjartans ein- lægni. Rúnar bætir því við að viðmót fólksins hafi eiginlega haft úrslita- áhrif á þá ákvörðun að flytja til Kína. „Auðvitað vekur maður athygli þarna sem hvítur Evrópu- maður en fólkið er bara svo jákvætt, brosmilt og viðkunnan- legt að manni getur ekki annað en líkað vel við það.“ Vekja mikla athygli Strákarnir þeirra Elínar og Rún- ars, sem eru níu og tveggja ára, hafa líka vakið óskipta athygli Kín- verjanna að þeirra sögn. „Þegar við erum einhvers staðar á ferð- inni er stundum eins og sirkus í kringum þá, sumir þarna hafa aldrei séð hvítan mann eða mjög fáa að minnsta kosti og hvað þá hvít börn þannig að þau vekja gíf- urlega forvitni. Stundum safnast 50-60 manns í kringum okkur úti á götu og það hefur gerst að fólk eltir okkur en þetta er jákvæð athygli og okkur líður ekkert illa með þetta,“ segja þau. Rúnar sem dvalið hefur í Banda- ríkjunum segir að þetta sé gjör- ólíkt því að vera hugsanlega eltur af hópi fólks í New York. „Þá yrði maður hræddur en þetta er bara forvitni sem maður skilur alveg.“ Komin í viðskipti Tónlistin er ekki eina lifibrauð Rúnars og Elínar í Kína því þau eru að hasla sér völl á viðskipta- sviðinu. „Við erum búin að stofna fyrirtæki þarna úti sem heitir Trade Time (www.trade-time.com) sem sérhæfir sig í að aðstoða íslensk fyrirtæki og einstaklinga sem eru að leita sér að vörum og varningi í Kína,“ segja þau. Trade Time tekur þannig við fyrirspurnum frá fyrirtækjum hér heima, til dæmis byggingafyrir- tækjum sem vantar kannski mikið magn af tilteknu byggingarefni, steini eða hverju sem er. „Við leit- um svo tilboða í Kína, finnum besta verðið og komum á viðskipt- um. Við tryggjum líka að öll gæði standist kröfur og þess háttar og sjáum svo um að varan sé send til viðtakanda hér heima,“ útskýrir Elín. Hún hefur líka verið að hanna föt í Kína en hún hefur fengist við slíka hönnun undanfarin fjögur ár. „Ég hef verið að hanna kjóla meðal annars og það gengur mjög vel og verslunin Húfur sem hlæja á Skólavörustígnum er meðal ann- ars að selja kjóla eftir mig.“ Kínverjar miklir kaupmenn Viðskipti er nokkuð sem á vel við Kínverja segja þau. „Kínverjar eru einhverjir mestu kaupmenn í heimi. Þrátt fyrir að hafa búið við kommúnískt skipulag í áratugi þá eru viðskipti þeim í blóð borin, það eru allir þarna að reyna að selja eitthvað,“ segir Rúnar og hlær. En það þýðir ekki, segir Elín, að þeir séu ósáttir við sitt þjóðskipu- lag og orðnir afhuga kommúnism- anum heldur er fólk farið að átta sig betur á því að það á rétt á að fá sinn skerf af efnahagskökunni sem er sífellt að stækka í Kína. „Það má segja að hjarta Kínverja tilheyri kommúnismanum en hug- urinn kapítalismanum. Þetta er mjög sérstakt ástand sem er þarna og ég held að það sé alveg ljóst að Kína verður orðið stærsta efna- hagsveldi heims eftir nokkur ár,“ segir Elín og bætir við að þau verði ekki vör við að yfirvöld séu að skipta sér mikið af lífi fólks dags daglega og viðskipti virðast mjög frjáls. Vestræn borg Xiamen er raunar mikil viðskipta- borg enda fríverslunarsvæði og ein af stærri útflutningshöfnunum í Kína. Þar gætir því meiri vest- rænna áhrifa en víða annars stað- ar á þessu svæði, þar er meðal annars talsvert um háhýsi, tísku- vöruverslanir og aðrar vestrænar verslanir. „Þetta er ekki stór borg á kínverskan mælikvarða en þetta er talin ein fallegasta og hreinasta borgin í Kína,“ útskýrir Rúnar og nefnir sérstaklega í því sambandi að borgaryfirvöld hafi bannað umferð mótorhjóla í borginni. „Svo er líka bannað að flauta þannig að þetta er ekki eins og í mörgum öðrum borgum í Kína þar sem hávaðinn er gífurlegur,“ skýtur Elín inn í. Tónleikar og plötuupptaka Þau Elín og Rúnar hafa ekki tekið neina ákvörðun um það hversu lengi þau ætla að dvelja í Kína. „Það kemur bara í ljós, við erum ekki mikið fyrir að skipuleggja hlutina langt fram í tímann og höldum þessu bara opnu,“ segja þau og eru bjartsýn á framtíðina. Framundan eru líka spennandi verkefni, þeim hefur verið boðið að koma fram á stærstu svokall- aðri „indie“ tónlistarhátíð Kína sem haldin verður í Beijing næsta vor og svo er plötuupptaka og tón- leikaferð í bígerð þegar þau koma aftur til Kína. „Fyrst ætlum við þó að troða upp hér heima, því við munum hita upp í kvöld fyrir hljómsveitina Mínus og Langa Sela og skuggana í Sirkusportinu á menningarnótt,“ segja þau Elín og Rúnar og hvetja sem flesta Íslend- inga til að kynna sér Kína. ■ 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR34 Í borginni Xiamen á suðausturströnd Kína er að myndast lítil íslensk ný- lenda. Þar býr nú þegar tæpur tugur Íslendinga og þeim fer fjölgandi. Þau Elín Ólafsdóttir og Rúnar Sigurbjörnsson fluttu til Xiamen fyrir tæpu ári ásamt sonum sínum og sögðu Sigurði Þór Salvarssyni frá reynslu sinni af því að búa í Kína. Kína verður næsti efnahagsrisi heims FÓLK Á GÖTU Í XIAMEN Kínverjar eru einstaklega brosmilt og vingjarnlegt fólk, segja þau Elín og Rúnar um kynni sín af heimamönnum í Xiamen. FRÉTTABLAÐIÐ/RÚNAR SIGURBJÖRSSON GÖTUMYND FRÁ XIAMEN Farartæki eru fjölbreytt í Kína og menn víla það ekkert fyrir sér að draga kerrur með þungu hlassi á eftir sér langar leiðir. FRÉTTABLAÐIÐ/RÚNAR SIGURBJÖRNSSON FREISTA GÆFUNNAR Í KÍNA Þau Elín Ólafsdóttir og Rúnar Sigurbjörnsson hafa búið í Kína í tæpt ár og láta vel af dvölinni. Kínverjar séu eitt jákvæðasta og hlýlegasta fólk sem þau hafi kynnst um dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.