Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 78
 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR50 menning@frettabladid.is ! Jómfrúin slær ekkert af og nú er komið að elleftu tónleikum sumarkonsertraðarinnar í Lækjargötunni. Söngkonan Kristjana Stefáns- dóttir flytur nýjar og gamlar söngperlur ásamt kvartett saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar í dag. Auk Sigurðar skipa kvartettinn þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Leikin verður tónlist af nýlega útkomnum geisladiski hópsins, „Hvar er tungl- ið“, en diskurinn hefur að geyma tónsmíðar Sigurðar og ljóðskáldsins Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og fara jafnan fram utandyra enda er nú um svo hugljúfar tónsmíðar að ræða að veður- guðirnir hljóta að stilla sig. Ef í harðbakkann slær mun hljómlistarfólkið þó flytja sig í skjól. Þess má einnig geta að Kristjana og Sigurður leika á Stofutónleikum Aðalsteins Ásbergs í Þjóðmenningarhúsinu klukkan 18. KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR, SÖNGKONA Syngur á sumar- tónleikum Jómfrúarinnar í Lækjargötunni. Djass undir berum himni > Ekki missa af... grasrótartónlistarmönnum og vonarstjörnum framtíðarinnar sem leika á Vegamótastíg í dag milli 14-19.30. Tónlistarþróunar- miðstöðin tjaldar því sem til er. leikritunum Drekaskógi og Afgöngum eftir Agnar Jón Egils- son sem sýnd eru í Austurbæ. Eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Berjadögum í Ólafsfirði. Eðal- músík og einstakur félagsskapur á fögrum stað. Svo er líka hægt að týna ber þar. Kl. 20:00 Páll Óskar og Monika halda tónleika í Listasafni Einars Jónssonar á Menningarnótt. Tumi Magnússon og pólska lista- konan Aleksandra Signer opna sýningu í Listasafni ASÍ klukkan 15 í dag. Sýningin ber heitið „Vídeó-innsetningar“ og ber nafn með rentu. Tumi útskýrir að á sýningunni séu verk þeirra; innsetningar, vídeóverk og inn- setningar sem eru vídeóverk, en þetta er í fyrsta sinn sem þau sýna saman. „Við erum búin að þekkjast í nokkur ár og höfum talað um að sýna saman, nú er tækifærið og þetta small saman,“ segir Tumi og útskýrir að viss samhljómur sé með verkum þeirra. „Það er samt erfitt að segja, það er eitt- hvað svipað í hugsuninni, kannski húmorinn og einfald- leikinn líka.“ Tumi og Signer vinna verkin hvort í sínu lagi en þau eru sýnd saman í Ásmundarsal og í Gryfj- unni. Signer vinnur mest með vídeóinnsetningar en mörg verk- anna spegla pólitíska afstöðu hennar. Verkin á sýningunni eru unnin á árunum 1997-2006. Tumi sýnir vídeóverk á fjór- um skjám ásamt litlum tölvu- unnum ljósmyndum en hann hefur unnið talsvert með ljós- mynda- vídeó og tölvutækni á síðustu árum. „Verkið mitt er fyrir fjóra flatskjái en það er tekið úr bíl á ferð – á fjórar tökuvélar sam- tímis, í fjórar áttir. Þessar mynd- ir eru síðan sýndar samtímis en sjónarhornið er á sjóndeildar- hringinn í fjarlægð.“ Í Arinstofu Listasafns ASÍ verða ennfremur sýnd verk eftir Gunnlaug Scheving, Jóhann Briem og Jóhannes S. Kjarval, en sýningarnar tvær standa til 10. september. - khh TUMI MAGNÚSSON Opnar sýningu í Lista- safni ASÍ á Menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR List fyrir fjóra flatskjái Engu er til sparað í sextugs- afmæli BM-Vallár sem býður Menningarnæturgestum upp á stórsöngvara og há- punkta bestu ópera tónbók- menntanna á einum fyrstu óperutónleikum sem haldnir eru utanhúss hér á landi. „Hér eru samankomnir fimm ein- söngvarar sem hver um sig myndi standa auðveldlega undir heilu prógrammi, og það yrði bravúr- prógramm,“ segir Guðmundur Óli Gunnarsson hljómsveitarstjóri sem stýrir söngvurunum og Sin- fóníuhljómsveit Norðurlands í kvöld. Einsöngvararnir eru þau Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Kristinn Sig- mundsson, Kolbeinn Ketilsson og Sigríður Aðalsteinsdóttir, sem eru öll í sérflokki íslenskra söngvara. „Það er stór hópur íslenskra söngvara sem er alveg í fremstu röð, og þessir eru allir í þeim flokki,“ segir Guðmundur Óli sem bætir við að það sjáist vel á því að fjórir þessara fimm söngvara sinna vinnu sinni í útlöndum. Tónleikarnir eru haldnir á Miklatúni og segir Guðmundur Óli að tónlistin falli vel að staðnum. „Á efnisskránni eru tómir hápunkt- ar og hefði maður gjarnan viljað hafa efnisskrána lengri, en á svona útitónleikum er ekki hægt að teygja lopann endalaust,“ segir Guðmundur Óli sem fékk aðstoð frá Jónasi Ingimundarsyni píanó- leikara við að útbúa efnisskránna. Fluttir verða þættir úr vinsælustu óperum tónbókmenntanna og von- ast Guðmundur Óli til að þeim til heiðurs skarti Reykjavík sínu feg- ursta á fallegu sumarkvöldi. „Reyndar sýnist mér á öllu að það verði skýjað og rigni kannski tíu til fimmtán dropum um hádegið,“ segir Guðmundur Óli og hlær. Tilefnið er sögulegt, hvort sem rignir eða ekki, því útitónleikar eru ekki haldnir á hverjum degi hér á landi. „Eftir því sem við vitum best er þetta í fyrsta sinn sem óperutónleikar með hljóm- sveit eru haldnir utandyra á Íslandi og það er gaman að fá að taka þátt í því,“ segir hann. Guð- mundur Óli óttast ekki að kvöld- kuldinn eigi eftir að ná til hljóð- færaleikara og söngvara enda verður komið fyrir öflugri lýsingu á sviðinu sem hann vonast til að haldi á listamönnunum hita. „Aðal- lega held ég að fólk leggi áherslu á að halda lipurð fingranna gang- andi. Ætli verði ekki nokkur pör af grifflum á sviðinu, ég held það nú,“ bætir hann við. Guðmundur Óli óttast heldur ekki að sér verði kalt og ætlar að klæða sig eins og venjan er innanhúss. „Ég verð bara í mínum kjólfötum eins og venjulega enda er ég eini maður- inn á sviðinu sem fær að hreyfa sig almennilega.“ Sviðið er á Miklatúni og stend- ur eins og svið Sigur Rósar á tón- leikum sveitarinnar á túninu fyrir skemmstu. Tónleikarnir hefjast klukkan tuttugu í kvöld og eru í boði BM-Vallár á sextíu ára afmæli fyrirtækisins. annat@frettabladid.is Fimmfaldir bravúr- tónleikar á Miklatúni GUÐMUNDUR ÓLI GUNNARSSON HLJÓMSVEITARSTJÓRI Verið var að undirbúa sviðið á Miklatúni þegar ljósmyndari Fréttablaðsins náði Guðmundi Óla en hann leiðir Sinfóníu- hljómsveit Norðurlands og fimm söngvara í sérflokki á tónleikunum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN MIKLATÚN SKARTAR SÍNU FEGURSTA Efnisskrá tónleikanna er einstök og er þar einungis að finna hápunkta úr vinsælustu óperum tónbókmenntanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.