Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 50
8 | LISTAGÓÐ MENNINGARNÓTT 2006
Í tilefni Menningarnætur í Reykjavík mun Bókabúð Máls og
menningar blása til Færeyskra daga og kynna eyjarnar fögru í
myndum, tónum og dansi. Verslunin hefur fengið til landsins
listamenn og söngvara frá Færeyjum, þar á meðal fulltrúa
Havnardansifélag og listamanninn Zakarías Heinesen. Hann
opnar sýningu á eigin verkum í bókabúðinni en Zakarías er
sonur hins vinsæla færeyska rithöfundar William Heinesen og er
sjálfur einn þekktasti listamaður Færeyinga. Havnardansifélag
mun halda uppi stemningu með dansi og söng enda er enginn
svikinn af því að hafa prófað hinn alkunna og forna færeyska
dans. Félagar í Færeyska dansifélaginu í Reykjavík munu taka
þátt í þessari uppákomu ásamt þeim fjölda Færeyinga sem eru
félagar í Færeyingafélaginu. Ellen og Lív eru tvær stúlkur úr
Þórshöfn sem kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að söng og
dansi.
Mál og menning mun standa að sölukynningu meðan á
hátíðinni stendur, ásamt þeim útgáfufyrirtækjum á Íslandi sem
sjá um dreifingu og sölu færeyskra bóka og tónlistar. Einnig
mun færeyska flugfélagið Atlantic Airways vera með kynningu á
ferðum til Færeyja næsta vetur.
Kynning á færeyskum bókmenntum, myndlist og tónlist
verður því í hávegum höfð á Menningarnótt og næstu daga og
geta því viðskiptavinir og gestir kynnst rjómanum af færeyskri
menningu.
DAGSKRÁ:
14.00 OPNUN SÝNINGAR ZAKARÍASAR HEINESEN
15.00 FÆREYSKUR DANS
16.00 TÓNLISTARFLUTNINGUR MEÐ ELLENU OG LÍV
17.00 FÆREYSKUR DANS
18.00 TÓNLISTARFLUTNINGUR MEÐ ELLENU OG LÍV
19.00 FÆREYSKUR DANS
21.00 ÞÝSK-RÚSSNESKI RITHÖFUNDURINN WLADIMIR
KAMINER KYNNIR OG LES ÚR VERKUM SÍNUM.
Færeyskt fjör
Það er af nógu að taka í Listasafni Reykjavikur – Hafnarhúsi
á Menningarnótt og eitthvað í boði fyrir alla. Listunnendur
geta farið á málþing kl. 15.00 um stöðu málverksins í samtima
listum þar sem sýningin Carnegie Art Award 2006 er notuð
sem útgangspunktur. Kl. 16.30 hefjast svo skemmtileg samtöl
við listamenn. Fyrstir eru Jón Óskar Hafsteinsson og Jón
Proppé sem ræða verk Jón Óskars, kl. 17.00 ræða Steingrímur
Eyfjörð og Gunnar J. Árnason verk Steingríms og kl. 17.30
ræða Finnbogi Pétursson og Sjón verk Finnboga. Í hinu
skemmtilega porti Hafnarhússins verður svo mikil stemning
á Menningarnótt. Þar verður opið til kl. 23 og hægt að tylla
sér niður og kaupa veitingar á vægu verði. Í boði fyrir alla
fjölskylduna eru listsmiðjur og lifandi tónlist. Þá verður
sýning í fjölnotasalnum á myndasögum, sem nemendur úr
Vinnuskóla Reykjavíkur hafa gert í sumar.
DAGSKRÁIN Í PORTINU ER SEM HÉR SEGIR:
KL. 14.00 INNGERATSILER – GRÆNLENSKUR KÓR.
KL. 16.30 Í FJÖLNOTASAL VERÐUR OPNUÐ SÝNING NEMENDA
VINNUSKÓLANS Í REYKJAVÍK.
KL. 17 OG 18 OPIN LISTSMIÐJA HUGLEIKS DAGSSONAR ÞAR
SEM ALLIR GETA SPREYTT SIG Á MYNDASÖGUFORMINU.
KL. 18.30-20.30 UNGIR TÓNLISTARMENN STÍGA Á STOKK:
SOUNDSPELL, DAYSHINE OG DÚI.
KL. 20.30-22 DJASSBANDIÐ NEKTAR.
Stemning í Hafnarhúsinu
Thelma Ásdísardóttir
Stígamót taka í fyrsta sinn þátt í Menningarnótt í ár og bjóða
upp á elskulega dagskrá á Hverfisgötu 155. Sérstök áhersla
verður á sólarhliðarnar í samskiptum fólks og verður allt tal
um ofbeldi og svik sem þrífast í skugga samfélagsins lagt til
hliðar þennan daginn. Gestum gefst kostur á að lesa brot úr
uppáhaldstextunum sínum, syngja eða segja frá eigin reynslu
hvort sem hún er af ást, samkennd, kynlífi eða almennri
hlýju.
Góðir gestir hafa boðað komu sína til Stígamóta og mun
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri mæta sem og Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra, Kolbrún Halldórsdóttir
alþingiskona, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, Thelma
Ásdísardóttir, Rósa Ólöf Svavarsdóttir skáldkona og fleiri.
HÚSIÐ VERÐUR OPIÐ TIL 22.00. BOÐIÐ VERÐUR UPP Á
SVALANDI DRYKKI OG SÆTINDI. HVERFISGATA 115.
Sólarhliðar Stígamóta