Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 24
19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
MERKISATBURÐIR
1274 Edward I er krýndur
konungur Englands í
Westminster.
1458 Enea Silvio Piccolomini er
kjörinn páfi og fékk nafnið
Píus II.
1871 Hið íslenska þjóðvinafélag
er stofnað af alþingis-
mönnum.
1919 Afganistan fær sjálfstæði
frá Bretlandi.
1960 Bandaríkjamaðurinn
Francis Gary Powers
er dæmdur til tíu ára
fangelsisvistar af sovéska
herdómstólnum.
1990 Leonard Bernstein stjórnar
sínum síðustu tónleikum.
1993 Íslenskir togarar hefja
veiðar í Smugunni í Bar-
entshafi en veiðisvæðið
er fyrir utan tvö hundruð
mílna landhelgi landsins.
AFMÆLI
BILL CLINTON FÆDDIST ÞENNAN
DAG ÁRIÐ 1946.
„Við getum ekki byggt upp
okkar framtíð án þess að
hjálpa öðrum við að byggja
upp sína eigin.“
Bill Clinton var forseti Bandaríkjanna
á árunum 1993-2001.
Mikhail Sergeyevich Gorbachev fæddist í
Rússlandi árið 1931. Hann gekk til liðs við
ungliðahreyfingu kommúnistaflokksins
þegar hann var fimmtán ára og stjórnaði
samyrkjubúi í Stavropol í fjögur ár.
Frami Gorbachevs reis hratt innan flokks-
ins og árið 1978 varð hann landbúnaðar-
ráðherra og tveim árum síðar meðlimur
í Politburo sem var framkvæmdastjórn
kommúnistaflokksins. Á meðan á stuttri
valdatíð Yurys Andropov sem aðalritara kommún-
istaflokksins stóð, á árunum 1982 til 1984, tókst
Gorbachev að verða einn æðsti maður Politburo. Við
dauða Konstantin Chernenko, eftirmanns Andropov,
kaus Politburo Gorbachev sem aðalritara flokksins
árið 1985.
Fyrsta verk Gorbachevs var að koma efnahag
landsins á réttan kjöl með því að auka framleiðni
og tæknivæða landið. Aðgerðirnar skiluðu
þó litlum árangri og Gorbachev sá að hann
þyrfti að gera róttækari breytingar. Hann
kom á auknu frelsi innan Sovétríkjanna,
frelsi fjölmiðla var aukið, hann kom á
takmörkuðum markaðsbúskap, friðmæltist
við Vesturveldin og kom á auknu lýðræði.
Hann dró úr valdi Sovétríkjanna yfir
löndum sem tilheyrðu þeim og samþykkti
meðal annars sameiningu Vestur- og
Austur-Þýskalands.
Aðgerðir Gorbachevs nutu lítilla vinsælda
kommúnistaflokksins og þann nítjánda ágúst rændu
harðlínumenn Gorbachev og fjölskyldu hans og
höfðu þau í haldi í þrjá daga. Gorbachev hafði í raun
engin völd eftir þetta og sagði af sér sem forseti
Sovétríkjanna á jóladag árið 1991 og í kjölfarið liðu
þau undir lok.
ÞETTA GERÐIST 19. ÁGÚST 1991
Mikhail Gorbachev hrakinn frá völdum
Stærsti bókaklúbbur Þýska-
lands ákvað á dögunum að
gefa út Aftureldingu eftir
glæpasagnahöfundinn Vikt-
or Arnar Ingólfsson. Bókin
kom út hérna heima um síð-
ustu jól en hefur nýlega
verið gefin út í Þýskalandi.
Þetta er önnur bók Viktors
sem bókaklúbburinn gefur
út en sú fyrri var Flateyj-
argáta.
Rakel Pálsdóttir, kynn-
ingarstjóri Eddu-útgáfu,
segir að bókaklúbburinn sé
einn sá stærsti í Þýskalandi
og að þetta þýði mikla dreif-
ingu fyrir bókina ytra. Rakel
segir að bækur Viktors, sér-
staklega Engin spor og Flat-
eyjargáta, séu mjög sögu-
legar og að Þjóðverjar séu
mjög hrifnir af sögulegum
glæpasögum. Hún segir að í
Aftureldingu kveði við nokk-
uð nýjan tón þar sem um er
að ræða hreinræktaðan
krimma, en sögur Viktors
gerast allar í íslensku
umhverfi.
Auk þessara þriggja
hefur Viktor gefið út tvær
aðrar bækur, Dauðasök sem
var gefin út árið 1978 og
Heitur snjór sem kom út
árið 1982.
Afturelding vinsæl í Þýskalandi
VIKTOR ARNAR Glæpasögur hans
njóta velgengni í Þýskalandi þessa
dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Erlingur Þor-
steinsson, háls-,
nef- og eyrna-
læknir er 95 ára,
hann verður að
heiman.
Kristinn H.
Gunnarsson
er 54 ára.
Telma Tómasson
er 44 ára.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
ÚTFARIR
11.00 Sigurjón Arnar Tómasson,
bifvélavirkjameistari, Breka-
stíg 22, Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá
Landakirkju.
13.00 Bóas Guðmundur Sig-
urðsson, Bleiksárhlíð 10,
Eskifirði, verður jarðsunginn
frá Eskifjarðarkirkju.
13.00 Skafti Kristján Atlason
verður jarðsunginn frá
Fáskrúðsfjarðarkirkju.
14.00 Ingiríður Árnadóttir, frá
Bakka, Kópaskeri, verður
jarðsungin frá Snartarstaða-
kirkju.
14.00 Óli Kristinsson, fyrrverandi
kaupmaður á Húsavík,
verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju.
14.00 Sveinbjörn Stefán
Sveinbjörnsson, Vitastíg
14, Bolungarvík, verður
jarðsunginn frá Hólskirkju,
Bolungarvík.
„Ég hef verið mikið að vinna með Vest-
urporti, búinn að vera með þeim í allt
sumar, við vorum að leika í Rómeó og
Júlíu og Woyzeck bæði í Þýskalandi,
Póllandi og London,“ segir Árni Pétur
Guðjónsson leikari sem fagnar fimm-
tíu og fimm ára afmæli sínu í dag.
„Ég tók mér smá frí á milli og gekk
Camino, það er til Santiago de Compost-
ela, pílagrímaleiðina, þetta var algjört
æði, ég labbaði fjögur hundruð kíló-
metra á sautján dögum, mjög gott ein-
mitt þegar menn standa á tímamót-
um,“ segir Árni og bætir við að þetta
hafi verið eitt besta frí sem hann hafi
upplifað. „Maður labbar svona tuttugu
og fimm kílómetra á dag og gistir í
klaustrum og svefnskálum,“ segir
Árni, sem fór einn í ferðalagið.
„Maður fer þessa leið að einhverju
leyti af því að maður ætlar sér að fá
eitthvað út úr því og breyta einhverju í
lífi sínu eða upplifa tilgang lífsins en
svo eftir svona viku þá hættir þetta allt
að skipta máli og ég komst bara í sam-
band við sjálfan mig, ástandið var bara
stórfínt eins og það var, það þyrfti ekk-
ert að breytast,“ segir Árni. „Dóttir
mín hafði farið þarna fyrir nokkrum
árum og ýtti mér út í þetta. Ég átti nátt-
úrulega frí á milli Þýskalands og Lond-
on og ég er búinn að fara svo oft á sól-
arströnd og liggja þar til einskis að ég
ákvað að gera þetta í staðinn“.
„Ég er núna að byrja að æfa leikrit
með Sigrúnu Sól sem heitir Hestar og
Chekov og verður frumsýnt í október í
reiðhöllinni Gusti,“ segir Árni. Í nóvem-
ber fer Árni síðan aftur út með Vesturp-
orti þar sem sýningar verða í Þýskalandi
og Noregi. Í haust geta Íslendingar síðan
séð Árna sem Ríkislögreglustjóra
Íslands í danska þættinum Erninum sem
hefur notið mikilla vinsælda hér á landi.
„Ég er nú vanur að labba alltaf
Esjuna nálægt þessu tímabili til þess að
sanna að ég sé ekki alveg dauður. Ég tók
nú mjög langan tíu tíma göngutúr á
Hengilssvæðinu í gærdag (fimmtudag),
ég villtist á Hengilssvæðinu þannig að
þetta varð tíu tíma ferð,“ segir Árni.
„Ég man að þegar ég varð fertugur
ætlaði ég ekkert að halda upp á það, þá
var ég með nokkrum leikurum í Finn-
landi og allt í einu steyptist yfir mig
fögnuður og ég tilkynnti auðvitað öllum
að ég væri orðinn fertugur og sérstak-
lega þar sem við vorum í fríhöfninni í
Stokkhólmi og ég svona benti á hvaða
vörur væri á tilboði í fríhöfninni svo
fólk hefði nú tíma til að kaupa handa
mér,“ segir Árni. „Mér finnst voða
gaman að halda upp á afmælið mitt og
einhverra hluta vegna, því eldri sem ég
er, því montnari verð ég, ég er farinn að
ljúga til aldurs, þykjast vera eldri en ég
er,“ segir Árni og minnist óttans sem
greip hann þegar hann varð þrítugur.
gudrun@frettabladid.is
ÁRNI PÉTUR GUÐJÓNSSON LEIKARI: 55 ÁRA
Lýgur til um aldur
ÁRNI PÉTUR GUÐJÓNSSON LEIKARI Fannst skelfilegt að verða þrítugur en var í sjöunda himni á fertugsafmælinu og segist oft vera eldri en hann í raun er.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR