Fréttablaðið - 19.08.2006, Page 6
6 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Valgerður Sverrisdótt-
ir utanríkisráðherra hefur ákveð-
ið að fjölga í íslensku friðar-
gæslusveitinni á Srí Lanka.
Ákvörðunin er tekin í því ljósi
að öryggi Íslendinganna sé
tryggt og að vera þeirra skipti
máli fyrir friðarferlið á Srí
Lanka. „Ég tel að hægt sé að
tryggja öryggi íslenskra borgara
og deilendur hafa lýst yfir áhuga
á að starfið haldi áfram,“ sagði
Valgerður í samtali við Frétta-
blaðið í gær. Hún grundvallaði
ákvörðun sína á upplýsingum frá
Atlantshafsbandalaginu og
íslensku utanríkisþjónustunni og
viðræðum við utanríkisráðherra
Finnlands og Noregs.
Íslendingarnir starfa með nor-
rænu friðargæslusveitinni
SLMM en Danir, Svíar og Finnar
afréðu að kalla sína menn heim
eftir að Evrópusambandið skil-
greindi Tamíltígra sem hryðju-
verkasamtök. Eftir standa því
Íslendingar og Norðmenn.
„Ástandið er vissulega slæmt.
Þar sem þörf er fyrir friðar-
gæslu er ófriður og þegar ófrið-
ur ríkir er einhver áhætta,“ segir
Valgerður en bendir á að til sé
áætlun um hvernig Íslendingarn-
ir verði fluttir heim með hraði ef
á þurfi að halda.
Valgerður segir það skyldu
okkar Íslendinga að leggja eitt-
hvað af mörkum til að stuðla að
friði á Srí Lanka og að mannúð-
arsjónarmið búi að baki. Þar sé
unnið þróunarstarf á vegum Þró-
unarsamvinnustofnunar Íslands
sem miði að hreinsun vatnsbóla
sem spilltust eftir flóðbylgjuna í
Indlandshafi á öðrum degi jóla
2004. „Það væri mikill ábyrgðar-
hluti að kalla okkar fólk heim,“
segir Valgerður en viðurkennir
að það hafi komið til greina. Hún
lýsir um leið vonbrigðum yfir
því að Danir, Svíar og Finnar hafi
ákveðið að kalla sitt fólk heim.
Valgerður telur að um þrjátíu
friðargæsluliðar þurfi að skipa
SLMM-sveitina svo verkefnið sé
framkvæmanlegt og segir að
rætt verði nánar við Norðmenn
um framkvæmdina.
Ekki er ljóst hvenær íslenski
liðsaukinn heldur til Srí Lanka
en Valgerður segir einhverjar
vikur í það. Þá sé alls óvíst hve-
nær hægt verður að kalla Íslend-
ingana heim. „Það er ekki hægt
að taka ákvarðanir til langs tíma
á þessu svæði,“ segir hún. Kostn-
aður við verkefnið liggur ekki
fyrir en til eru peningar af fjár-
lögum sem notaðir verða til verk-
efnisins og því þarf ekki nýja
fjárveitingu. bjorn@frettabladid.is
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR UTANRÍKISRÁÐHERRA Segir ástandið vissulega slæmt á Srí
Lanka. „Þar sem þörf er fyrir friðargæslu er ófriður og þegar ófriður ríkir er einhver áhætta.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Höfum skyldum að
gegna á Srí Lanka
Íslenskum friðargæsluliðum á Srí Lanka verður fjölgað úr fimm í tíu. Valgerð-
ur Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir það skyldu okkar að leggja eitthvað af
mörkum. Hún telur að hægt sé að tryggja öryggi íslenskra borgara í landinu.
STJÓRNMÁL Til greina kemur að
íslenskir friðargæsluliðar
beri ekki vopn í framtíð-
inni. Valgerður Sverris-
dóttir utanríkisráðherra
ætlar að endur-
skoða friðar-
gæsluna og
kynna nýjar
áherslur henn-
ar fyrir utan-
ríkismála-
nefnd Alþingis.
„Ég er að hugsa
um hvort ástæða
sé til mýkja ímynd-
ina,“ svaraði Val-
gerður aðspurð
um málið í gær.
Þá hyggst hún
stefna að því að
fjölga konum í
friðargæslunni
og til marks um
það telur hún
miklar líkur á að
kona verði í hópi þeirra fimm
friðargæsluliða sem bætast við
þá fimm sem þegar eru á Sri
Lanka.
Nýlega var óskað eftir að
íslensk sprengjuleitarsveit yrði
send til Afganistan en Valgerður
mat hættuna í landinu svo
mikla að hún ákvað að verða
ekki við þeirri bón. „Ég tel að
það sé mun meiri hætta í
Afganistan heldur en á
Sri Lanka,“ sagði Val-
gerður.
Hlutverk íslensku
friðargæsluliðanna
á Sri Lanka er að
bera boð milli stríð-
andi fylkinga. Þeir
bera ekki vopn og
eru ekki í her-
klæðum en eru
engu að síður
einkennis-
klæddir. -bþs
Utanríkisráðherra vill mýkja ímynd íslensku friðargæslunnar:
Íslendingar beri ekki vopn
SRÍ LANKA Þorfinnur Ómarsson,
talsmaður norrænu eftirlits-
sveitarinnar, er ánægður með
ákvörðun Valgerðar Sverrisdótt-
ur um að fjölga í liði sveitarinn-
ar.
„Þetta skiptir sköpum fyrir
allt starfið hérna úti, við erum
önnur tveggja þjóða og því er
okkar framlag ómissandi,“ sagði
Þorfinnur í gær. Hann fagnar
sömuleiðis hugmyndum um að
auka hlut kvenna í sveitinni og
segir það vera gott fordæmi í
friðargæslustörfum.
„Ásýnd eftirlitssveita þarf
ekki að vera neitt harkaleg, held-
ur þvert á móti,“ sagði Þorfinnur
og minnti á að
sveitin væri
ekki í neins
konar hernaði.
Keheliya
Rambukwella,
málsvari
stjórnarinnar,
hélt því fram í
gær að stjórnin
væri tilbúin
„hvenær sem
er“ að halda
áfram friðar-
viðræðum við Tamíltígrana.
Þorfinnur segir að þetta sé opin-
ber stefna stjórnarinnar, hins
vegar setji Tígrarnir skilyrði
fyrir viðræðunum sem stjórnin
hafi ekki farið eftir.
Eitt þeirra skilyrða sé að
stjórnin standi við tilboð sitt um
að afvopna sjálfstæða hópa
manna sem fara um með ofbeldi,
en standa í raun utan meginátak-
anna.
Stjórnarher Srí Lanka gerði
loftárásir á Jaffna-skaganum í
gær, stuttu eftir að ríkisstjórnin
hét því að senda þangað hjálpar-
gögn og matvæli, en víða ríkir
skortur vegna átakanna.
Norðmenn voru sáttasemjar-
ar þegar samið var um vopnahlé
árið 2002, eftir nítján ára blóð-
uga borgarastyrjöld. - kóþ
Talsmaður norrænu friðargæslusveitarinnar á Srí Lanka:
Fagnar ákvörðun Valgerðar
ÞORFINNUR
ÓMARSSON
ÍSLENSKIR FRIÐARGÆSLU-
LIÐAR Utanríkisráðherra vill
fjölga konum í friðargæslu
og mýkja ásýnd hennar frá
því sem nú er.
KJÖRKASSINN
Á að hækka bílprófsaldur
í 18 ár?
Já 72%
Nei 28%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Var rétt ákvörðun að skipta upp
menntaráði Reykjavíkurborgar?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
SAMGÖNGUR Yfirvöld á Keflavíkur-
flugvelli ákváðu í gær að slaka á
kröfum um öryggisleit og leyfileg-
an handfarangur. Farþegum á leið
til Bandaríkjanna er enn óheimilt
að hafa vökva eða vökvatengd efni
meðferðis, nema um lyf, matvöru
fyrir ungabörn eða varning keypt-
an í flugstöðinni sé að ræða.
Á öðrum flugleiðum eru vökvar
heimilir en yfirvöld vara við því
að öryggisstarfsfólk gefi vökvum
sérstakan gaum. Ekki verður leit-
að á skófatnaði allra farþega held-
ur verður um slembiúrtak að
ræða. Yfirvöld á Keflavíkurflug-
velli beina þeim tilmælum til far-
þega að lágmarka handfarangur
til að auðvela öryggisleit og mæta
tímanlega í flugstöðina. -rsg
Keflavíkurflugvöllur:
Slaka á kröfum