Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 44
2 | LISTAGÓÐ MENNINGARNÓTT 2006 |
Það er nóg að gerast í porti Alþjóðahússins á Menningarnótt. Á milli klukkan þrjú og fimm fá börn að læra að búa til eigin hljóð-
færi og vinna með þemað tröll og þjóðsögur. Þau fá að horfa á trölladans og fá meira að segja að bragða á trölladrykk! Klukkan
fimm fara börnin í skrúðgöngu með hljóðfærin sín undir stjórn Unnar Guðjónsdóttur ballettkennara sem mun leiða fjörugan
hópinn alla leið yfir í Listasafn Íslands, en þar fá þau að hengja upp listaverkin sín og hlusta á tröllasögur. Á milli fimm og sjö
geta gestir og gangandi notið ljúfrar djasstónlistar í porti Alþjóðahússns, en svo byrjar fjörið fyrir alvöru þegar dansdagskrá
næturinnar hefst. Félagar úr Taílensk-íslenska vinafélaginu sýna okkur taílenska dansa klukkan sjö, en klukkan átta koma Vinir
Ghana og kenna fólki að dansa allskyns dansa frá Afríkuríkinu. Klukkan níu byrjar danshátíð frá Balkanskaga með danshópi
frá Búlgarska félaginu. Það er svo hinn suður-ameríski Carlos Sanchez sem lýkur dagskránni með því að kenna Íslendingum að
dansa almennilegan salsa, og suðrænir tónar munu án efa óma frá Alþjóðahúsinu langt fram á rauða menningarnótt.
ALÞJÓÐAHÚSIÐ / HVERFISGATA 18 / DAGSKRÁ FRÁ KL. 15.00 TIL MIÐNÆTTIS.
DANS GLEÐI & SKÖPUN!
Á Menningarnótt verður mikil tónlistardagskrá í Gróttu sem
hefst kl. 21. Það eru þau Paul Lydon og Kira kira sem halda
tónleikana í tengslum við sýninguna Eiland. Tónleikarnir verða
við Kaffi Eiland þar sem hægt verður að kaupa kaffiveitingar, öl
og vín og er aðgangur ókeypis. Kveikt verður fjörubál í Gróttu
og er ætlunin að skapa huggulega og afslappaða stemmningu
í útjaðri höfuðborgarinnar, en tónleikunum mun ljúka um
miðnætti. Paul og Kira eru bæði miklar hetjur í framsækinni
íslenskri tónlist. Kira er ein aðaldriffjöðurin í starfsemi Til-
raunaeldhússins og hefur haldið tónleika og myndlistasýnin-
gar víða um heim. Paul Lydon hefur verið viðriðinn íslenskt
tónlistarlíf síðan hann fluttist hingað frá Boston seint á níunda
áratugnum. Tónlist Paul er seiðandi, einlæg og áleitin og semur
hann einhverja fallegustu íslensku texta sem heyrst hafa hin
síðari ár. Kira hefur mest unnið sem raftónlistarmaður en á
Eilandstónleikunum á menningarnótt verður kassagítarinn í
aðalhlutverki að útilegusið.
Í vitanum í Gróttu hefur listsýning fimm listamanna
staðið frá því um miðjan júli, undir yfirskriftinni Eiland.
Listamennirnir eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ragnar Kjartans-
son, Haraldur Jónsson, Friðrik Örn Hjaltested og Hrafnkell
Sigurðsson. Á menningarnótt eru síðustu forvöð að líta á sýnin-
guna því hún verður tekin niður daginn eftir. Opið er frá kl.
19.00 í Eilandi til kl. 1 eftir miðnætti þegar byrjar að flæða að.
EILAND
Öll dagskrá Menningarnætur fylgdi með Fréttablaðinu á
fimmtudaginn í handhægu riti sem þú getur kippt með þér í
bæinn. Dagskrá er einnig að finna á vefnum www.mennin-
garnótt.is. Þar hefur Gagarín í samstarfi við Reykjavíkurborg
unnið að einstakri framsetningu dagskrárinnar „í tíma og
rúmi“ þar sem fólk getur settt saman sína eigin dagskrá. Ein-
nig er hægt að nálgast alla dagskrána á ensku í nýjasta eintaki
ReykjavikMag sem er dreift á helstu upplýsingamiðstöðvum,
söfnum, búðum og kaffihúsum í miðborginni. ReykjavikMag
og vefurinn Reykjavik.com er gátt inn í heimsborgina Reykja-
vík og eru lifandi, traustar og skemmtilegar upplýsingaveitur
um alla þá menningarviðburði, tónleika, skemmtistaði, veit-
ingastaði, söfn, gallerí, tísku, verslanir, næturlíf og afþreyingu
sem þar er að finna. Þar eru einnig fáanlegar upplýsingar sem
snúa að þjónustu fyrir ferðamanninn í höfuðborginni – hótel,
veitingastaði og afþreyingu.
SKOÐIÐ DAGSKRÁNA VEL
– ÞAR ER EITTHVAÐ FYRIR ALLA.
GÓÐA MENNINGARNÓTT!
Ekki missa af neinu
ÖLL DAGSKRÁIN Á ÍSLENSKU OG ENSKU
Hönnunarversluninin Pikknikk hefur vakið mikla lukku í sumar en verslunin hefur haft aðsetur í „Brooklyn“ hverfi Reykja-
víkur – Mýrargötunni – undanfarna þrjá mánuði. Pikknikk er eins konar lífsstíls/hönnunar/matarverslun og er hugarfóstur
Áslaugar Snorradóttur ljósmyndara og Hlínar Helgu Guðnadóttur hönnuðar. Þær bjóða upp á vörur eftir þekkta íslenska
iðnhönnuði og þar gefur að líta allt frá súkkulaðifjöllum og lopapeysum upp í innanhússmuni, bækur og mat. En allir góðir
hlutir taka enda og því er Menningarnótt síðasti opnunardagur Pikknikks, sem mun þó líklega fara i aðra lautarferð fyrr en
síðar á öðrum stað. Í dag verður því allsherjar lokapartí í Héðinsporti, Seljavegi 2 frá klukkan 18-22. Dásamleg fiskisúpa verður
borin fram í fögrum pappaglösum og partíið myndað fyrir Súpubókina sem beðið hefur verið með eftirvæntingu. Gestum gefst
tækifæri á að sitja í ævintýralegum stólum sem hver á sína sögu. Stólar sem listamenn af ýmsum toga hafa skreytt og breytt, lista-
menn eins og Helgi Þorgils, Tolli, Birgir Snæbjörn og margir fleiri.
PIKKNIKK / SELJAVEGI 2 / 101 REYKJAVÍK
PARTÍ SÚPA
& STÓLAR
Huggulegt fjörubál í Gróttu
og síðasti séns að sjá
Á Eilandstónleikunum verður kassagítarinn í aðalhlutverki að útilegusið.
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
���
��
��
��
��
��
��
��
��
�����������������������������������
��
���������������������������������������������
������������������
��������
���������������������
���������
����������
��������
���������
��������������������
Orkuveita Reykjavíkur heldur veglega flugeldasýningu á Menningarnótt en hún verður með nýstarlegu sniði í ár. Sýningin
verður ekki á Hafnarbakkanum eins og áður heldur mun Landhelgisgæslan sigla með tertur og flugelda á haf út og verður þeim
skotið af Varðskipinu Ægi sem liggur við akkeri rétt utan við Sæbrautina. Stundvíslega kl. 21.31 mun Hjálparsveit skáta skjóta
upp púðrinu og má búast við miklu sjónarspili. Flugeldasýningin hefur verið hápunkturinn á Menningarnótt undanfarin ár. Með
henni lýkur opinberri dagskrá Menningarnætur.
LJÓSADÝRÐ Á HAFI ÚTI