Fréttablaðið - 19.08.2006, Page 68

Fréttablaðið - 19.08.2006, Page 68
 19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR40 Ljósmyndarinn og listneminn Rebekka Guðleifsdóttir hefur vakið heimsathygli í internetsamfélaginu Flickr.com. Fallegar myndir heilla þá sem heimsækja síðuna hennar svo mikið að á opinberum lista Flickr. com er síða Rebekku sú vinsæl- asta allra tíma, og er það ekkert smáræði í Flickr-samfélaginu þar sem eru fjórar milljónir notenda. Innblástur í myndir sínar sækir Rebekka í sitt nánasta umhverfi og er hún sjálf oft viðfangsefni myndanna. Fréttablaðið birtir hér úrval sjálfsmynda Rebekku af síð- unni hennar, www.flickr.com/phot- os/rebba. Rebekka með eigin augum HVAÐ ER SVONA MERKILEGT? Hér hengir Rebekka upp eigin myndir í ramma. LOPAPEYSAN Ein af nýjustu myndunum á Flickr-síðu Rebekku. Þar segist hún loksins hafa klárað að prjóna þessa peysu eftir tveggja mánaða vinnu og bókstaflega þurft að skjalfesta hana. MYND/ REBEKKA GUÐLEIFSDÓTTIR EKKI GLEYMA AÐ TEYGJA SIG Ekki er verra þegar góður boðskapur fylgir góðri mynd. COLGATE-STUND Hér leikur Rebekka sér með skeytingu tveggja mynda og speglun í hvers- dagslegu umhverfi. SKÍNANDI AUGU Sjálfsmynd af Rebekku þar sem hún leikur sér með litinn í sínum eigin augunum. FRÉTTABLAÐIÐ/REBEKKA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.