Fréttablaðið - 19.08.2006, Side 72
19. ágúst 2006 LAUGARDAGUR44
Bretinn Daniel Craig er sjötti leikarinn sem tekur að sér hlutverk vinsælasta njósn-
ara kvikmyndasögunnar, sjálfs
James Bond. Hann er um margt
frábrugðinn forverum sínum í
útliti og aðdáendur Bonds hafa
gagnrýnt valið á honum harkalega
og eru síður en svo tilbúnir til þess
að gefa honum tækifæri til þess að
sanna sig. Craig er þó hvergi bang-
inn frekar en Bond sjálfur og
hefur lýst því yfir að hann muni
sanna sig. Craig verður væntan-
lega fyrst og fremst borinn saman
við Pierce Brosnan sem lék Bond
með miklum tilþrifum á undan
honum. Brosnan er þó ekki sá
Bond sem Craig sjálfur þarf að
keppa við ef marka má laus-
lega könnun Fréttablaðsins
á því hver sé besti Bond-
inn. Sean Connery trónir
enn á toppnum og næstur
honum kemur Roger
Moore þannig að Craig
þarf fyrst og fremst að
sigrast á anda gömlu
mannanna og þola
samanburð við
Connery eins
og allir hinir
sem fetað
hafa í fót-
spor
skoska
kyntrölls-
ins.
DANIEL CRAIG Hefur flest það til að bera sem
góður Bond þarf að hafa en harðir aðdéndur 007
hika þó ekki við að dæma hann úr leik fyrirfram.
Hans bíður það vandasama verkefni að standast
samanburð við Pierce Brosnan og komast undan
þeim stóra skugga sem Sean Connery varpar á
alla þá sem spreyta sig á hlutverkinu.
Þarfasti þjónn hennar hátignar
ARNMUNDUR ERNST
BJÖRNSSON, NEMI
Roger Moore Ég hef
nú ekki horft mikið á
James Bond-myndir en
hef auðvitað séð þessar
nýjustu og fannst Pierce
Brosnan drullugóður og
er alveg sáttur við hann
en finnst nú samt Roger
Moore, þessi sem kom til
landsins um daginn, vera
einhvern veginn vanari gæi
og þannig lagað flottari. Ég
hlakka svo bara til að sjá
þann nýja og hvernig hann
verður.
SIGURBJÖRG SÆUNN
GUÐMUNDSDÓTTIR,
ANNAR STJÓRNENDA
PÍPÓLA Á SIRKUS
Sean Connery Sean Conn-
ery. Pottþétt. Hann er og
var brjálæðislega kynæs-
andi og röddin er rosaleg.
Karlmennskan skín af
honum og hann er ógleym-
anlegur en það er ástæðan
fyrir því að mér datt hann
strax í hug.
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR,
ÍSLENSKUFRÆÐINGUR
Sean Connery Sean
Connery er James Bond.
Hann er sá fyrsti og er mjög
töff. Mér líst rosalega vel
á þennan nýja og finnst
hann bara soldið sætur líka
en það er fyrir öllu. Gallinn
við Connery er kannski
helst sá að hann hefur
aldrei breyst. Hann er eins
og James Bond í öllum
hlutverkum sem hann hefur
leikið síðan. Þegar hann lék
munkinn í Nafni rósarinnar
var hann til dæmis alveg
eins og Bond. Hann bjó
James Bond til en Bond bjó
Connery svolítið til líka.
UNNUR STEINSSON,
ATHAFNAKONA
Roger Moore „Ég man
einhvern veginn best eftir
myndunum með honum.
Hann var bæði sjarmerandi
og fyndinn og kom með
smá húmor í þetta. Þannig
finnst mér James Bond að
vera. Hann má ekki vera
of alvörugefinn. Roger
Moore var kannski ekki jafn
myndarlegur og Connery
og Brosnan en hann var
mesti karakterinn.“
EIRÍKUR JÓNSSON,
BLAÐAMAÐUR
Sean Connery Sean Conn-
ery er James Bond. Hann
bjó bara til þessa týpu og
það hefur enginn sem
kom á eftir honum komist
með tærnar þar sem hann
hefur hælana. Hann hefur
svo, í framhaldinu, haldið
áfram að vera Bond í öllu
sem hann hefur gert síðan
þannig að Bond hefur
elst í honum og er enn á
meðal okkar í hans gervi.
Allir aðrir eru ómerkilegar
eftirlíkingar.
RAGNAR BJARNASON,
TÓNLISTARMAÐUR
Roger Moore „Ég hafði
mest gaman af Roger
Moore, einfaldlega vegna
þess að ég hafði gaman
að húmornum sem hann
kom með inn í þetta.
Hann notaði andlitið svo
skemmtilega í hlutverkinu
og fór í gegnum þetta svo
sposkur á svip.
HALLDÓR BLÖNDAL,
ALÞINGISMAÐUR
Sean Connery „Sean Conn-
ery er sá eini sem kemur
upp í hugann. Hann er
mjög mikill og eftirminni-
legur leikari og það er
auðvelt að rifja hann upp í
ýmsum senum. Dýrlingur-
inn var á sínum tíma mjög
skemmtilegur en það er
einhvern veginn eins og
hann eigi erfitt með að
breytast í James Bond.“
GEORGE LAZENBY Fékk það
vandasama og vanþakkláta
hlutskipti að leysa Sean Conn-
ery af. Lazenby var illa tekið af
aðdáendum James Bond og fékk
því aðeins að spreyta sig í einni
mynd, On her Majesty‘s Secret
Service. Lazenby stóð sig með
ágætum og myndin er stórlega
vanmetin. Hann var engu að
síður sendur með skottið milli
lappana heim til Ástralíu og
Sean Connery var vélaður til
þess að snúa aftur í Diamonds
are Forever.
BONDAR SEM KOMAST
EKKI Á BLAÐ
TIMOTHY DALTON Þessi ágæti
leikari tók við kennitölunni 007 af
Roger Moore eftir að sá síðar-
nefndi komst á eftirlaunaaldur
og kvaddi með A View to A Kill.
Eitthvað þótti vanta upp á töffið
hjá Dalton en hann fékk þó tvö
tækifæri til að sanna sig, í Living
Daylights og A Licence to Kill.
PIERCE BROSNAN Kom gríðar-
lega sterkur inn í Goldeneye
eftir að starfskraftar Dalt-
ons höfðu verið afþakkaðir.
Aðdáendur Bonds vildu margir
hverjir meina að hér væri loks-
ins kominn fram raunverulegur
arftaki Seans Connery. Brosnan
þótti hafa allt til að bera, útlitið,
hörkuna og töffið. Brosnan lék
Bond í þremur myndum auk
Goldeneye; Tomorrow Never
Dies, The World is not Enough
og Die Another Day. Brosnan
vildi endilega halda áfram og
fór í fússi þegar framleiðendur
myndanna hófu leit að nýjum
Bond.
ROGER MOORE
Hefur leikið Bond
í sjö kvikmyndum
og það er vandséð
að það met verði
slegið. Hann breytti
ásjónu njósnara
hennar hátignar
töluvert og var
hvergi nærri jafn
alvarlegur og kald-
rifjaður og Connery.
Grínið og glensið
heldur nafni hans
enn á lofti og hann
fylgir fast á hæla
forvera síns þegar
kemur að því að
velja besta Bondinn.
HINN EINI SANNI Sean
Connery var fyrsti Bond-
inn og verður líklega hinn
eini sanni James Bond í
huga fjöldans um ókomin
ár. Hann brúar kyn-
slóðabilið og var efstur
í huga flestra álitsgjafa
Fréttablaðsins þrátt fyrir
að 44 ár séu liðin frá því
hann steig fyrstur fram
sem Bond í Dr. No.