Fréttablaðið - 19.08.2006, Blaðsíða 86
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
SNAKES ON A PLANE kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
MIAMI VICE kl. 2, 5, 8 og 10.50 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.50
THE SENTINEL kl. 8 og 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 2, 4 og 6
SILENT HILL kl.10 B.I. 16 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 2, 4 og 6
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 2 og 4
STICK IT kl. 8
SNAKES ON A PLANE kl. 3, 5.40, 8 og 10.20
A PRAIRIE HOME COMPANION kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 3 og 6
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
CLICK kl. 3, 5.50, 8 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 10.10 B.I. 14 ÁRA
SNAKE ON A PLANE kl. 8 og 10 B.I. 16
MIAMI VICE kl. 8 og 10.40 B.I. 16
THE SENTINEL kl. 6 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 og 6
STORMBREAKER kl. 4
SÍÐUSTU SÝNING
AR
Samuel L. Jackson fer á kostum í einum
umtalaðasta spennutrylli ársins.
Á ÍSLANDI
HEIMSFRUMSÝND
Popptónlistarmaðurinn Robbie
Williams verður í aðalhlutverki á
Rás 2 á Menningarnótt. Þá verður
bein útsending frá stórtónleikum
kappans í Vínarborg og stendur
útsendingin yfir milli klukkan 19
og 21.
Tónleikarnir í Vínarborg eru
hluti af einni viðamestu tónleika-
ferð sem nokkur tónlistarmaður
hefur lagt upp í, og fylgir í kjölfar
útgáfu plötunnar Intensive Care.
Ríflega ein og hálf milljón manna
fjárfesti í tónleikamiðum ferðar-
innar í forsölu á fyrsta degi sem
er heimsmet. Gert er ráð fyrir að
heildarfjöldi þeirra sem sjá
Robbie í tónleikaferðinni verði
tæplega þrjár milljónir á tónleik-
unum 44 í 14 löndum. Tónleika-
ferðin heitir Close Encounters og
eru allir tónleikarnir haldnir á
risasviði sem er eftirlíking af
geimskipi sem söngvarinn hann-
aði sjálfur af þessu tilefni.
Svo gestir miðborgarinnar á
Menningarnótt missi ekki af þess-
um stórviðburði hefur Rás 2
ákveðið að koma upp öflugum
hljómflutningstækjum fyrir utan
verslun Skífunnar á Laugavegi 26.
Þangað geta allir mætt sem vilja
og notið tónleikanna í góðum
hljómgæðum.
Beint frá Vínarborg
SÖNGVARINN SÍVINSÆLI Rás 2 útvarpar beint frá tónleikum Robbie Williams á Menningar-
nótt, en tónleikarnir eru haldnir í Vínarborg.
Breskir aðdáendur greiddu
á dögunum atkvæði um
hvaða lag Rolling Stones
væri í mestum metum hjá
þeim. Úrslitin komu fáum á
óvart.
I Can‘t Get No (Satisfaction) hlaut
fimmtung þeirra þúsund atkvæða
sem greidd voru í könnun Ameri-
can Express en fyrirtækið er aðal-
bakhjarl hljómsveitarinnar.
Breskir voru einnig flestir sam-
mála um að Sticky Fingers, sem
kom út árið 1971, væri besta plata
Rollinganna.
I Can‘t Get No (Satisfaction)
var fyrsta lagið sem komst á topp-
inn í Bandaríkjunum en hið fjórða
í röðinni á Bretlandi. Hið víðfræga
gítarriff varð til á hótelherbergi í
Kaliforníu þegar Keith Richards
vaknaði eftir „erfiða“ nótt.
Richards hafði hins vegar tölu-
verðar áhyggjur af því að stefið
líktist laginu Dancing in the Street
eftir Mörthu Reeves og Vandellas,
en eins og margir muna tók söngv-
ari Rolling Stones, Mick Jagger,
einmitt lagið upp á sína arma
ásamt David Bowie. I Can‘t Get
No (Satisfaction) varð eitt af ein-
kennislögum Rolling Stones og
hefur verið endurgert af jafn ólík-
um tónlistarmönnum og Britney
Spears og Otis Reading.
Tónleikaferð Rolling Stones um
heiminn hefur ekki gengið þrauta-
laust fyrir sig því fyrst datt Keith
Richards niður úr pálmatré eftir
að hafa verið að klifra í því í sum-
arfríi sínu. Hlaut gítarleikarinn
höfuðáverka og varð að fresta
nokkrum tónleikum af þeim
sökum. Fyrir skömmu urðu Roll-
ing Stones síðan að aflýsa fyrir-
huguðum tónleikum á Spáni vegna
veikinda Micks Jagger. Hljóm-
sveitin er væntanleg til Bretlands
á næstunni og sagði umboðsmaður
sveitarinnar að hún myndi halda
sínu striki þrátt fyrir veikindin. ■
Fullnægingarleysið
besta Stones-lagið
ROLLING STONES Lagið I Can‘t Get No (Sat-
isfaction) var valið besta lag sveitarinnar af
breskum aðdáendum.
FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
BESTU ROLLING STONES LÖGIN
I Can‘t Get No (Satisfaction)
Brown Sugar
Jumpin‘ Jack Flash
Paint it Black
Wild Horses
Sympathy For The Devil
Nú hefur hótelerfinginn og part-
íljónið Paris Hilton stofnað klúbb
fyrir einhleypar konur. Þær
stúlkur sem gerast meðlimir í
klúbbnum verða að gangast undir
veðmál þess efnis að þær mega
ekki sofa hjá karlmönnum. Sú
sem heldur lengst út vinnur veð-
málið en leyfilegt er að kyssa
karlmann. Paris segir að tilgang-
urinn með klúbbnum og veðmál-
inu sé að fá stelpurnar til að ein-
beita sér að einhverju öðru en
karlmönnum eins og til dæmis
vinnunni. Tennisstjarnan Serena
Williams mun vera einn af með-
limum klúbbsins.
Paris Hilton stofnar klúbb
PARIS HILTON Hefur stofnað klúbb fyrir
einhleypar konur. FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS