Fréttablaðið - 19.08.2006, Side 91
LAUGARDAGUR 19. ágúst 2006 63
FÓTBOLTI Aaron Hughes, leikmaður
norður-írska landsliðsins og enska
úrvalsdeildarliðsins Aston Villa,
segir sína menn fulla sjálfstrausts
eftir sigur á Finnum í vináttu-
landsleik í vikunni en leikurinn
fór fram í Finnlandi. Hughes, sem
er fyrirliði Norður-Íra, er sigur-
viss fyrir leikinn gegn Íslandi sem
verður fyrsti leikur beggja liða í
undankeppni EM 2008.
„Við gerðum Finnum mjög erfitt
fyrir og stjórnuðum leiknum löng-
um stundum,“ sagði Hughes en
hans menn unnu 2-1 sigur á sterku
liði Finna þar sem flestir bestu leik-
menn liðsins voru með. „Nú er aðal-
atriðið að taka þennan góða árang-
ur með okkur í undankeppnina.“
Miðvallarleikmaðurinn Steven
Davis og félagi Hughes hjá Aston
Villa gat ekki leikið með sínum
mönnum í Finnlandi vegna meiðsla
en búist er við að hann verður orð-
inn klár fyrir leikinn gegn Íslandi.
Davis var í liði Norður-Íra sem
vann frægan 1-0 sigur á Englandi í
undankeppni HM 2006 en hann
lagði upp markið á David Healy
sem skoraði annað mark Norður-
Íra í vikunni. Hitt skoraði Kyle
Lafferty, leikmaður Burnley.
Sextán leikmenn komu við sögu
í liði Norður-Íra gegn Finnum og
þar af var Hughes eini leikmaður-
inn sem er á mála hjá ensku
úrvalsdeildarfélagi. Annar úrvals-
deildarmaður, Roy Carroll hjá
West Ham, sat á varamannabekkn-
um og kom ekki við sögu.
Þó var enginn heimamaður í
liðinu en allir norður-írsku lands-
liðsmennirnir leika í Englandi,
utan tveir sem leika í Skotlandi.
Þá er ótalinn fyrirliði Birming-
ham, Damien Johnson, en hann
verður í banni í fyrstu tveimur
leikjum liðsins í undankeppninni.
- esá
AARON HUGHES
Fyrirliði norður-írska landsliðsins sem gerði
góða ferð til Finnlands í vikunni.
NORDIC PHOTOS/GETTY
Aaron Hughes landsliðsfyrirliði Norður-Írlands og varnarmaður Aston Villa:
Norður-Írar sigurvissir fyrir Íslandsleikinn
FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjóns-
son verður ekki í leikmannahópi
AZ Alkmaar sem hefur leik í hol-
lensku úrvalsdeildinni um helgina
er liðið mætir NAC Breda. Jóhann-
es meiddist í nára í landsleiknum
gegn Spáni á þriðjudaginn og
ákvað því þjálfari liðsins, Louis
van Gaal, að gefa honum frí um
helgina svo að hann gæti náð sér
sem fyrst.
Grétar Rafn Steinsson verður
að öllum líkindum í liði AZ en hann
er nú að hefja sitt annað tímabil
hjá liðinu. Jóhannes Karl gekk til
liðs við AZ í sumar frá enska 1.
deildarliðinu Leicester. - esá
Jóhannes Karl:
Meiddist í
landsleiknum
FÓTBOLTI Manchester United mun
ekki taka aftur þátt í hinu svokall-
aða Amsterdam-móti á undirbún-
ingstímabili sínu. Sir Alex Fergu-
son er allt annað sáttur en þátttaka
liðsins á þessu æfingamóti nú
fyrir skömmu kostaði það að
Wayne Rooney og Paul Scholes fá
þriggja leikja bann í ensku úrvals-
deildinni. Þeir fengu rautt spjald í
leik gegn Porto og ákvað dómar-
inn Ruud Bossen að gefa skýrslu
um það atvik með fyrrnefndum
afleiðingum.
„Það er klárt mál að við tökum
aldrei aftur þátt í þessu móti.
Rauða spjaldið sem Rooney fékk
var fáránlegt. Það eru okkur mikil
vonbrigði að missa menn í bann
eftir æfingaleik en við þurfum að
taka þessu,” sagði Ferguson. Roon-
ey og Scholes geta tekið þátt í
leiknum gegn Fulham á morgun en
eftir hann fara þeir í bann. - egm
Sir Alex Ferguson ekki sáttur:
Aldrei aftur á
þetta mót
RAUTT SPJALD Rooney er hér rekinn af velli
í æfingaleiknum gegn Porto.
NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Bakvörðurinn Ashley
Cole er ekki í leikmannahópi Ars-
enal sem mætir Aston Villa í dag
þrátt fyrir að hann hafi gefið til
kynna að hann væri tilbúinn að
spila leikinn. Þessi 25 ára enski
landsliðsmaður hefur stöðugt
verið orðaður við Englandsmeist-
ara Chelsea en ekkert samkomu-
lag hefur enn náðst. Arsene Weng-
er, stjóri liðsins, hefur sagt að
hann væri til í að halda Cole ef
hans ákvörðun væri að vera áfram
hjá liðinu.
„Ég tel að ekkert vandamál sé
milli mín og stuðningsmannanna
eða knattspyrnustjórans. Ég hef
fengið stuðning frá þeim,“ sagði
Cole og sagðist gefa kost á sér á
leikinn sem verður fyrsti alvöru
leikur félagsins á hinum nýja
Emirates-leikvangi. - egm
Bakvörðurinn Ashley Cole:
Skilinn eftir
utan hóps
ASHLEY COLE Er einn besti vinstri bakvörð-
urinn í Evrópu. NORDICPHOTOS/GETTY