Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 2
2 23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR BAUGSMÁL Ekki verður endur- ákært vegna fyrsta liðs Baugs- málsins svokallaða en Sigurður Tómas Magnússon, settur sak- sóknari í málinu, sendi frá sér fréttatilkynningu þess efnis í gær. Hæstiréttur staðfesti frávísun héraðsdóms á fyrsta liðs málsins 21. júlí síðastliðinn, en í honum var Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs Group hf., meðal annars gefið að sök að hafa „beitt stjórn Baugs blekkingum í auðg- unarskyni með því að leyna því að hann væri raunverulegur selj- andi hlutfjárins“, eins og segir orðrétt í ákæru, þegar Baugur keypti Vöruveltuna sem rak 10-11 verslanirnar. Í tilkynningu frá Sigurði Tóm- asi segir að Jóni Ásgeiri hafi verið sent bréf þar sem afstaða ákæru- valdsins er áréttuð, en jafnframt tekið fram að ákvörðunin lúti „einvörðungu að þeim ætluðu brotum sem ákærða voru gefin að sök samkvæmt 1. ákærulið en hafi ekki áhrif á rannsókn, eða eftir atvikum saksókn, vegna ann- arra brota“. Átján liðir eru enn eftir af Baugsmálinu og bíða þeir nú efn- ismeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, segist hafa búist við þessari niðurstöðu. „Þessi ákvörðun kemur mér ekki óvart og ég taldi reyndar sjálfgefið að hann kæmist að þessari niður- stöðu eftir að dómstólar höfðu sagt að í þessum ákærulið væri verði að lýsa viðskiptum en ekki lögbrotum. Eftir að sú afstaða var ljós, gat að mínu mati ekki verið um nýja ákæru að ræða. Þetta skiptir hins vegar miklu máli fyrir málið í heild þar sem kjarn- inn úr Baugsmáli er þar með úr sögunni.“ Ákæurliðirnir átján sem eftir standa í Baugsmálinu lúta meðal annars að ólögmætum lánveiting- um, bókhaldsbrotum og „röngum tilkynningum um afkomu Baugs hf. til Verðbréfaþings Íslands í þeim tilgangi að skapa rangar hugmyndir um hag félagsins og hafa áhrif á sölu eða söluverð hluta í því“, eins og segir orðrétt í tilkynningu frá Sigurði Tómasi. Ekki er ljóst ennþá hvenær málið verður tekið til efnismeð- ferðar. magnush@frettabladid.is Ekki endurákært vegna fyrsta liðsins Sigurður Tómas Magnússon saksóknari segir niðurstöðuna ekki hafa áhrif á rannsókn eða saksókn vegna annarra brota. Kjarninn úr Baugsmálinu úr sög- unni, segir Gestur Jónsson lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON KEMUR ÚR DÓMSAL Átján liðir eru enn eftir af Baugsmálinu og bíða þeir nú efnismeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur.FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL NEYTENDUR Innköllun á hugbúnaði hættulegra stafrænna myndavéla af gerðinni HP Photosmart R707 frá Hewlett Packard fer nú fram. Umræddur hugbúnaður er í myndavélum af fyrrgreindri gerð sem seldar voru á tímabilinu ágúst 2004 til maí 2006. HP hefur af þessum sökum inn- kallað stýrihugbúnaðinn sem fylg- ir þessum myndavélum og er not- endum Photosmart bent á að sækja nýjan stýrihugbúnað á heimasíðu fyrirtækisins eða snúa sér til við- komandi söluaðila. -hs Brunahætta af myndavélum: Hættulegur hugbúnaður BAUGSMÁL Jón Ásgeir Jóhannes- son segir það hafa verið einkenni- legt að þurfa að bíða eftir því „svo vikum skipti“ hvort endurákært yrði vegna fyrsta liðsins eða ekki. „Ég hef frá upp- hafi sagt að þessi ákæruliður, sem oft hefur verið kenndur við 10-11 verslanirnar, snúist um viðskipti og ekkert annað. Þetta hafa dóm- stólar staðfest bæði héraðsdómur og Hæstiréttur. Það var því ein- kennilegt að þurfa að sitja undir því svo vikum skipti að Sigurður Tómas Magnússon segðist vera að velta því fyrir sér að ákæra í þriðja sinn af þessu tilefni. Því verður vart trúað að slíkt hafi hann hugleitt í alvöru eftir þá dóma sem gengið höfðu,“ sagði Jón Ásgeir í tilkynningu í gær. - mh Jón Ásgeir Jóhannesson: Undarlegt að þurfa að bíða JÓN ÁSGEIR JÓHANESSON VIÐSKIPTI „Samkvæmt síðasta milli- uppgjöri bankans höfum við lagt til hliðar 700 milljónir króna til að mæta mögulegum skuldbindingum vegna þessa máls. Það er vísbend- ing um hvað við búumst við að verði niðurstaðan. Það er ennþá verið að semja um ákveðin atriði og þetta er viljayfirlýsing um að klára þetta mál en ekki bindandi sam- komulag. Málið er enn á viðræðustigi,“ segir Gunnar Viðar, forstöðumaður lögfræðiráð- gjafar Landsbanka Íslands, um viljayfirlýsingu milli bankans og stjórn- ar Lífeyrissjóðs banka- manna vegna meintrar bakábyrgðar lífeyris- skuldbindinga í hlutfalla- deild líf- eyris- sjóðsins. Lífeyrissjóðurinn höfðaði mál gegn bankanum fyrir ári og átti að taka málið fyrir í september næst- komandi. Málsóknin hefur verið tekin úr dómi en ýtrustu dómkröfur sjóðsins námu 2,6 milljörðum króna vegna árabilsins 1998 til 2004 eða síðan Lífeyrissjóður bankamanna leysti af hólmi Eftirlaunasjóð Landsbankans í aðdraganda þess að ríkisbönkunum var breytt í hlutafé- lög. Friðbert Traustason, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna, hefur ekki viljað tjá sig um efni viljayfirlýsingarinnar en telur að með samkomulaginu sé hagur félaga í hlutfalladeild lífeyrissjóðs- ins tryggður. - shá Viljayfirlýsing á milli Landsbanka Íslands og Lífeyrissjóðs bankamanna: Búast við um 700 milljónum LANDSBANKI ÍSLANDS Lífeyrissjóður hefur tekið málsókn á hendur Landsbanka Íslands úr dómi í kjólfar samkomulags. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI LÖGREGLUMÁL Maður sem hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum á samkomu línudansara í Rangár- þingi um verslunarmannahelgina hefur ekki enn verið yfirheyrður af lögreglu. Bjarnþór Aðalsteins- son, fulltrúi hjá lögreglunni í Reykjavík, segir málið vera nýkomið inn á borð til þeirra, en lögreglan á Hvolsvelli sendi rann- sókn málsins til Reykjavíkur í seinustu viku. Þá hafði maðurinn ekki verið yfirheyrður. Maðurinn er grunaður um að hafa berað kynfæri sín fyrir fram- an þrjár átta til tólf ára stúlkur og leitað á að minnsta kosti eina þeirra á samkomunni. - sþs Kærður fyrir kynferðisbrot: Ekki enn verið yfirheyrður GESTUR JÓNSSON SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON ÚTGERÐARMÁL Útgerðarfélagið Skinney-Þinganes á Höfn í Horna- firði gekk í gær frá kaupum á hlut Bjarna Aðalgeirssonar og fjöl- skyldu í útgerðarfélaginu Langa- nesi hf. Langanes hefur gert út skipin Bjarna Sveinsson og Björgu Jónsdóttur um árabil. Bjarni Aðalgeirsson, sem hefur lengi stýrt starfi Langaness hf., segir aflaverðmætin sem fylgi með í kaupunum fyrst og fremst vera uppsjávarkvóta. „Þetta er rúmlega tvö prósent af heildarloðnukvótanum, 2,8 pró- sent af norsk-íslenska stofninum og meira til viðbótar af öðrum tegundum. Við gáfum okkur tíma til þess að ganga frá þessum samningum og vorum ekkert að flýta okkur að þessu. Þetta eru mikil tímamót, en menn verða fullorðnir og taka þá ákvarðanir um breytingar,“ sagði Bjarni. Langanes hf. var stofnað 1975 á Þórshöfn en nokkrum árum síðar voru höfuðstöðvar fyrir- tækisins fluttar til Húsavíkur. Í rúmlega 26 ár hefur Langanes gert út samtals átta skip frá Húsa- vík. Áhafnir á skipunum tveimur verða að mestu skipaðar sama fólki áfram, samkvæmt upplýsingum frá Aðalsteini Ingólfssyni, for- stjóra hjá Skinney-Þinganesi. - mh Skinney-Þinganes kaupir rótgróna fjölskylduútgerð frá Húsavík: Skip og kvóti seld til Hafnar FRÁ HÚSAVÍK Langnes hf. hefur um árabil gert út skip frá Húsavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Boxerhundur réðst á tvö níu ára börn, stúlku og dreng, í Ásahverfi í Hafnarfirði í gær. Hundurinn réðst á stúlkuna og beit í höndina svo að áverki hlaust af, þar að auki klóraði hann í bringu stúlkunnar svo að hún rispaðist. Því næst réðst hann á strákinn og beit í báða upphandleggi hans svo að sá á pilti. Fatnaður drengsins skemmd- ist í árásinni. Þegar lögregla kom á vettvang gekk illa að klófesta hundinn enda var skepnan mjög æst. Það tókst að lokum og var hundurinn færður á lögreglustöðina. Eigandi hundsins kom á stöðina, eftir að samband var haft við hann, með yfirlýsingu um að hundurinn yrði svæfður. - æþe Lögreglan í Hafnarfirði: Boxerhundur réðst á börn SPURNING DAGSINS Guðrún, stendur til að breyta nafninu í Heimsálfunnar beztu? „Nei, ég held að við höldum okkur bara við Bæjarins beztu að sinni.“ Pylsuvagn Bæjarins beztu í Tryggvagötu er besti pylsuvagn heimsálfunnar samkvæmt breska blaðinu The Guardian. Galdurinn er talinn felast í remúlaðinu. Guðrún Krist- mundsdóttir er eigandi vagnsins. Erlendir ferðamenn og hraðakstur Lögreglan í Vík stöðvaði fimm ökumenn fyrir hraðakstur í umdæminu. Athygli vekur að allir ökumennirnir voru er- lendir ferðamenn á bílaleigubíl. Sá sem hraðast ók var á tæplega 120 kílómetra hraða. Lögreglan á Vík hefur áhyggjur af þessari þróun. Ökumennirnir taka afskiptum lögreglu misvel og greiða sekt sína með greiðslukorti ellegar eru þeir færðir á lögreglustöðina. LÖGREGLUFRÉTTIR RÁÐNING Einar Sigurðsson verður ráðinn framkvæmdastjóri Árvak- urs, útgáfufélags Morgunblaðsins, á stjórnarfundi félagsins á morg- un samkvæmt fréttastofu RÚV. Hallgrímur Geirsson, núverandi framkvæmdastjóri útgáfufélags- ins, lætur að sögn af störfum að eigin ósk. Einar starfaði áður sem fram- kvæmdastjóri Flugleiða. Hann hefur starfað sem framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar hjá IMG Gallup frá því í desember 2005. Hann er kvæntur Kristínu Ing- ólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands. Ekki náðist í Einar áður en Frétta- blaðið fór í prentun. - æþe Mannabreytingar hjá Árvakri: Nýr fram- kvæmdastjóri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.