Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 71
Götukörfuboltamótið 305 verður haldið á Miklatúni um næstu helgi. Leikarinn Ívar Örn Sverrisson og tónlistarmaðurinn Sverr- ir Bergmann, sem standa fyrir mótinu, búast við góðri þátttöku. „Við erum búnir að pæla í þessu lengi að það sé kominn tími á að endurvekja götuboltann á Íslandi,“ segir Ívar Örn Sverr- isson. „Það er búið að vanta aðstöðu og við ýttum á eftir því að það yrði eitthvað gert. Núna eru komn- ar nýjar körfur í réttri hæð á Miklatúni og við erum að halda mótið í til- efni af því,“ segir hann, en rétt hæð er 305 senti- metrar eins og nafn mótsins ber með sér. „Ég var í þessu þegar þetta stóð sem hæst þetta körfubolta- æði hérna heima. Það er synd að því var ekki fylgt eftir meira og það var eins og aðstaðan hyrfi smátt og smátt. Ég held að það sé forsenda fyrir því að það sé blómlegt körfuboltalíf hérna að það verði aðstaða fyrir krakk- ana að leika sér,“ bætir Ívar við. Vonast hann eftir því að mótið eigi eftir að festa sig í sessi í framtíðinni. „Ef það verður vel tekið í þetta mót sjáum við því ekk- ert til fyrirstöðu að reyna að hafa þetta árlegan við- burð.“ Mótið hefst kl. 10.00 á laugar- dag og stendur yfir fram eftir degi. Hvert lið er skipað 3-4 leik- mönnum en þrír keppa á móti þremur í hverjum leik með einn varamann. Keppt verður í fjórum flokkum, karla- og kvenna. Ann- ars vegar fyrir 15-17 ára leikmenn og hins vegar 18 ára og eldri. Skráningargjald er 500 kr. á hvern leikmann og er greitt á staðnum. Tilkynna þarf þátttöku á 305@hive. is. Senda þarf nöfn leikmanna og kennitölur, nafn liðsins og upplýs- ingar um rétta aldursflokkinn. Í verðlaun verða glænýir Nike körfuboltaskór og boltar. Götukarfa á Miklatúni GÖTUKARFA Það verður væntanlega hart barist í götukörfuboltamótinu á Miklatúni um næstu helgi. ÍVAR ÖRN SVERRISSON Ívar Örn stendur fyrir mótinu ásamt tónlist- armanninum Sverri Bergmann. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Bandaríkjamaðurinn Dave Coll- ins, sem hefur unnið með þekkt- um rokksveitum á borð við Sound- garden, Queens of the Stone Age, Black Sabbath og Mötley Crüe, lagði nýverið lokahönd á fyrstu plötu íslensku sveitarinnar Canora. Samlandi Collins, Ronan Chris Murphy, tók plötuna upp hér á landi fyrr í sumar en hann er hvað þekktastur fyrir samstarf sitt við David Fripp, leiðtoga King Crimson, og hefur endurhljóð- blandað nokkrar plötur King Crimson frá áttunda áratugnum. „Ronan hafði samband við þennan gæja [Dave Collins] og hann masteraði þetta. Ég efast ekki um að þetta eigi eftir að koma vel út,“ sagði Albert Ást- valdsson, söngvari Canora, sem á enn eftir að heyra lokaútkomuna. Platan er væntanleg í október og hefur fengið nafnið Kelvinator. Þrír meðlimir Canora voru áður í d.u.s.t. sem gaf út eina plötu árið 2002 en hætti ári síðar eftir að hafa verið nálægt því að skrifa undir útgáfusamning í Bandaríkjunum. Collins í lið með Canora CANORA Liðsmenn Canora í hljóðverinu ásamt Ronan Chris Murphy. Ashton Kutcher og Demi Moore fagna eins árs brúðkaupsafmæli sínu í næsta mánuði og heldur hinn 28 ára gamli Kutcher því fram að þau hjónin rífist aldrei. Hann segir að lífið með 43ja ára gamalli eiginkonu sinni sé ánægjulegt og að þau ráði fram úr öllum deilum áður en þær verða að rifrildum. „Við rifumst einu sinni á fyrstu þremur mánuðum sambands okkar en síðan þá höfum við aldrei rifist,“ segir leikarinn og bætir við: „Ég hef aldrei reynt að breyta konunni minni og hún hefur aldrei reynt að breyta mér.“ Rífast aldrei KUTCHER Kann að forðast rifrildi við eigin- konu sína, Demi Moore. Köntrísveit Baggalúts heldur tón- leika á Hótel Örk í Hveragerði á föstudag í tilefni Blómstrandi daga. Á efnisskrá verða valin tón- verk af plötunni Pabbi þarf að vinna auk verka af glænýrri plötu sveitarinnar, sem ber heitið Aparnir í Eden. Þess ber þó að geta, til að valda ekki misskiln- ingi, að í Eden hafa aldrei verið apar, þeir voru annars staðar. Í Eden var hinsvegar talandi krák- an Margrét til margra ára. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 og miðinn kostar 1.500 krónur. Baggalútur í Hveragerði BAGGALÚTUR Hljómsveitin Baggalútur spilar í Hveragerði á föstudag. MYND/GUÐMUNDUR FREYR VIGFÚSSON Gamanleikarinn Jack Black varð efstur í breskri skoðanakönnun þar sem fólk átti að nefna þann leikara sem það vildi helst eiga sem vin. Ekki kemur á óvart að Jack Black hafi náð toppsætinu enda hefur hann farið á kostum í hinum fjölmörgu grínmyndum og þykir jafnan hrókur alls fagnaðar. Nýj- asta mynd hans, Nacho Libre, hefur jafnframt fengið fínar við- tökur. Athygli vekur að Tom Cruise lenti í neðsta sæti í könnuninni. Er þar vafalít- ið um að kenna tengslum hans við hina umdeildu vísinda- kirkju og þegar hann gekk nán- ast af göflun- um eftir að hafa kynnst leikkonunni Katie Holmes. Í öðru sæti lenti Johnny Depp en þar á eftir komu Will Smith og Samuel L. Jackson. Þeir Brad Pitt, Orlando Bloom og Mel Gibson voru einnig ofarlega á blaði. Alls tóku rúmlega 2.000 Bretar þátt í könnuninni sem var gerð á vegum Yahoo! Enter- tainment. Gátu þeir valið á milli ellefu leikara og fékk Tom Cruise aðeins 3 prósent atkvæða. Black besti vinurinn NÚMER EITT Leikarinn Jack Black er afar vinsæll á meðal Breta. TOM CRUISE Hegðun Tom Cruise hefur þótt fremur undarleg að undanförnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.