Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 62
23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR
Álframleiðandinn Alcan
í Hafnarfirði hefur
stutt við bakið á ýmis-
konar viðburðum í
heimabyggð sinni und-
anfarið. Meðal þess má
nefna Jónsmessuhátíð
sem Hafnarfjarðarbær stóð fyrir í
Hellisgerði fyrr á þessu ári og stór-
tónleika Björgvins Halldórssonar
og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
tilefni af fjörutíu ára afmæli Ísal.
Á þeirri annars vel heppnuðu
hátíð sem Jónsmessuhátíðin í Hell-
isgerði var fór það ekki milli mála
að álframleiðandinn væri aðal-
styrktaraðili hennar því um svæðið
sprönguðu tveir unglingar klæddir
sem rauð þverröndótt áltyppi –
minni útgáfan af sílóunum, kenni-
merki álversins – og gáfu börnum á
svæðinu sápukúlur og gos.
Meginhugmyndin með styrkjum
álframleiðandans er væntanlega að
koma sér í mjúkinn hjá Hafnfirð-
ingum enda liggur fyrir að stækka
á álverið og það mun koma í hlut
bæjarbúa að kjósa um hvort af
stækkuninni verður.
Álframleiðandinn Alcoa á Aust-
urlandi hefur heldur ekki látið sitt
eftir liggja í að styrkja ýmis mál-
efni í heimabyggð sinni undanfarin
ár. Meðal þess sem Alcoa hefur
styrkt er ferðalag tveggja lögreglu-
manna sem sóttu námskeið í fíkni-
efnaleit á Flórída.
Eins og gefur að skilja finnst
mörgum það skjóta skökku við að
laganna verðir séu styrktir af einka-
aðilum úti í bæ enda hætt við því að
fyrirtækið sé að reyna að koma sér
í mjúkinn hjá þeim. Þá er einnig
hætt við því að lögreglan verði ekki
óhlutdræg þegar mál fyrirtækisins
berast inn á borð til hennar og það
sem meira er, hún geti orðið háð
styrkjum álframleiðandans.
En þótt lögreglumennirnir hafi
þegið styrkinn verðum við að hafa
meiri trú á þeim en svo að þeir geti
ekki sinnt starfi sínu af bestu getu.
Til að svo geti orðið verða lögeglu-
mennirnir hins vegar að gefa það
skýrt til kynna að þeir hafi þegið
styrkinn frá álframleiðandanum og
það gera þeir best með því að klæð-
ast rauðum þverröndóttum áltyppa-
búningum eins og unglingarnir í
Firðinum.
STUÐ MILLI STRÍÐA Þverröndótt áltyppi
KRISTJÁN HJÁLMARSSON VILL AÐ LÖGREGLAN KOMI HREINT FRAM
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
■ Pondus Eftir Frode Øverli
Mein gott,
Elza! Nein!
Elzahh...
Zetta
var
árgás!
Þú veist hvað sagt
er, gamla! Vont er að
venda um nótt!
HVAÐ?!
Ef þú ert
skrímslið
undir rúminu,
af hverju hef
ég þá ekki séð
þig lengi?
Þú hélst
mér
uppteknum
fyrstu sex
til sjö árin...
...en svo varðstu „full-
orðinn“ og „stór“.
Svo ég sat bara og beið þar
til óöryggi unglingsáranna
sýndi sig.
Óöryggi?
Hvaða
óöryggi?
Tja, til að byrja með...
Eigum við
ekki bara
að vera
vinir?
Elskan, Siggi vill fá
að nota
sandkassann sinn!
Ahh... persónuleg þjónus
ta...
Ég er prinsessan yfir öllu og
ræð og ríki yfir öllum í öllum
heiminum!
Ég fæ
nákvæmlega
það sem ég
óska mér
þegar það
hentar mér!
Nú ætla ég að fara og hugsa
um hvað mig langar í!
Haha!
Þvílíkir
draum-
órar!
Ef þú heldur að
hún sé að gera
að gamni sínu,
þá ert þú með
draumóra!