Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 14
14 23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR
MEXÍKÓ, AP Strætisvagnar eru
brenndir á götunum og þjóðveg-
um er lokað í einum mestu mót-
mælum sem skollið hafa á hinni
íhaldssömu Oaxaca-borg í S-Mex-
íkó. Að auki hefur dagblaði og
sjónvarpsstöð verið lokað og tólf
útvarpsstöðvar hafa verið her-
numdar af svekktum kennurum.
Þann 22. maí fóru um sjötíu
þúsund barnaskólakennarar í
verkfall og kröfðust um 8,7 millj-
arða króna launahækkunar. Gagn-
tilboð ríkisstjóra var tæpur tíundi
hluti af þeirri upphæð og var því
hafnað. Mótmæli kennaranna snú-
ast ekki um krónur lengur því
eftir að skotárás var gerð á eina af
útvarpsstöðvunum sem kennar-
arnir höfðu á sínu valdi stigmögn-
uðust átökin og krefjast mótmæl-
endur nú afsagnar ríkisstjórans.
Hin þriggja mánaða löngu mót-
mæli í fylkinu hafa næsta
umbreyst í uppreisn og eru for-
eldri barna vöruð við því að hleypa
þeim út úr húsi. Samgöngukerfi
borgarinnar hefur að mestu verið
lamað með brennandi vegatálm-
um og mótmælendur arka um
götur, vopnaðir bareflum ýmiss
konar og teygjubyssum.
„Við erum búin að fá nóg af
nýfrjálshyggju,“ hrópa mótmæl-
endurnir, en ríkisstjórinn er
flokksmaður PRI, þess flokks sem
fór með völd í Mexíkó nær óslitið
alla tuttugustu öldina. PAN flokk-
urinn, sem kenndur er við nýfrjáls-
hyggju, studdi nýlega frambjóð-
anda PRI í ríkisstjórakosningum í
Chiapas-fylki.
Mótmælin í Oaxaca kallast
þannig á við víðtækari mótmæli
sem tengjast nýlegum kosningum
í landinu og má segja að hin nýja
vinstribylgja Rómönsku Ameríku
berjist við eldri hægrisinnaðri öfl
í landinu. Ríkisstjóri Oaxaca er
sakaður um að hafa haft svik í
tafli í síðustu fylkiskosningum og
eru kosningasvik og valdníðsla nú
meginefni mótmælanna þar, líkt
og í höfuðborginni og reyndar
einnig í Chiapas-fylki, sem liggur
við hlið Oaxaca-fylkis.
Chiapas-fylki er fátækasta
fylki Mexíkó og komst í heims-
fréttirnar árið 1994, þegar zapat-
istar gerðu þar uppreisn.
Í þessum mánuði fóru þar fram
fylkisstjórakosningar. Samkvæmt
síðustu tölum virðist hægrimaður
hafa tapað fyrir vinstrimanni með
nær engum mun atkvæða. Hægri-
maðurinn ætlar að krefjast gagn-
gerrar endurtalningar atkvæða og
bendir á fordæmi vinstrimanns-
ins Obradors, sem tapaði í forseta-
kosningunum í júlí og hefur haldið
Mexíkóborg í gíslingu síðan.
Fyrst það er orðin regla að nið-
urstöður kosninga séu virtar að
vettugi í Mexíkó, óttast stjórn-
málaskýrendur að vopnuð barátta
kennaranna í Oaxaca verði öðrum
stéttum fyrirmynd á landsvísu, til
dæmis þegar mótmæla skal niður-
stöðum kosninga. Styttist þá í nýja
mexíkóska byltingu.
klemens@frettabladid.is
Upplausn ríkir víða í Mexíkó
Niðurstöður kosninga eru virtar að vettugi, jafnt af hægri- sem vinstrimönnum. Kjarabarátta barnakenn-
ara breytist í vopnaða uppreisn og setur borgaralegt samfélag á annan endann.
KENNARI Í KJARABARÁTTU Notast er við teygjubyssur, rör, planka og kylfur, í hinni harðvítugu kjarabaráttu sem nú virðist vera að breytast í
allsherjar uppreisn í hinni gömlu Oaxaca-borg. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KÍNVERSKUR DANS Hægt er að sjá þessa
íðilfögru kínversku konu dansa hefðbund-
inn dans í Yunnan-leikhúsinu í Kunming
í Kína, en yfir 75 prósent listamannanna
þar eru bændur úr nágrenninu sem grípa í
leiklist og dans í hjáverkum.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HEILBRIGÐISMÁL Samkvæmt þjón-
ustusamningi sem heilbrigðis-
ráðuneytið hefur gert við næring-
arsviðið á Reykjalundi er stefnt að
því að auka þjónustu við sjúklinga
með lífshættulega offitu.Sjúkling-
um fjölgar þannig úr 60-65 á ári í
110 sjúklinga árið 2007. Þjónustu-
samningurinn gildir til ársloka
2008.
Í ár er gert ráð fyrir að áttatíu
manns fari í meðferð á næringar-
sviði Reykjalundar vegna offitu
og að sami fjöldi fari í magaminnk-
unaraðgerð á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi.
Á árunum 2006 og 2007 mun
heilbrigðisráðuneytið verja 45
miljónum króna í næringarsvið
Reykjalundar sem skiptast þannig
að fjárframlagið í ár mun aukast
um þrjátíu milljónir, en fimmtán
milljónir á næsta ári.
Í samningnum er gert ráð fyrir
að um áttatíu sjúklingar fái með-
ferð í ár en nú bíða 390 manns
eftir innlögn á næringarsvið
Reykjalundar og teljast þeir allir
lífshættulega feitir.
Í þjónustusamningi heilbrigðis-
ráðuneytisins við næringarsvið
Reykjalundar er ennfremur gert
ráð fyrir eflingu göngudeildar
næringarsviðs og að fjárframlag
til hennar verði aukið um fimmtán
milljónir króna á tímabilinu. Í árs-
lok 2006 er gert ráð fyrir 4500
komum á göngudeildina á ári en í
göngudeildarmeðferð er fólgin
fræðsla, stuðingur og almenn
þjálfun. - hs
Heilbrigðisráðuneytið mun auka fjárframlag sitt um 45 milljónir næstu tvö ár:
Fleiri sjúklingar fá þjónustu
REYKJALUNDUR Þeim sjúklingum sem fá þjónustu á næringarsviði Reykjalundar fjölgar úr
60 í 110.
Verð kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum,
m.v. 2 fyrir 1 tilboð 29. október.
Netverð á mann.
Tallinn
í haust
frá kr. 19.990
Tryggðu þér einstaka borgarferð
Terra Nova býður helgarferðir í október í beinu flugi til
þessarar stórkostlegu borgar í hjarta Evrópu. Tallinn er í
dag afar vinsæll áfangastaður í borgarferðum, enda býður
borgin einstakt mannlíf, menningu og skemmtun. Þú velur
um góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Tallinn og spennandi
kynnisferðir með fararstjórum Terra Nova.
Verð kr. 36.734
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi
15. okt. í 3 nætur á Hotel L´Ermitage
með morgunmat.
Beint flug
15. okt.
18. okt.
22. okt.
26. okt.
29. okt.
2. nóv.
Á bæklunardeild Átján ára piltur
sem slasaðist í bílslysi norðan við
Sandgerði fyrir viku hefur verið færður af
gjörgæsludeild Landspítalans á bæklun-
ardeild. Sagt var frá því í Fréttablaðinu
í gær að hann væri útskrifaður, og átti
það við gjörgæsluna. Þá var pilturinn
ranglega sagður sautján ára í blaðinu.
Tveir létust í slysinu.
SLYS
DANMÖRK Þingmenn sem sæti eiga
í menningarnefnd danska þingsins
verða viðstaddir tónleika Madonnu
í Horsens á Jótlandi annað kvöld.
Nefndin verður í Horsens á
morgun til að kynna sér menning-
arstarfið þar enda hefur títt tón-
leikahald vinsælla tónlistarmanna
í bænum vakið þjóðarathygli.
Þingmenn Danska þjóðarflokks-
ins og Sósíalíska þjóðarflokksins
gagnrýna nefndarmenn fyrir að
nota opinbert fé til kaupa á dýrum
tónleikamiðum í frétt í Politiken í
gær. Formaður nefndarinnar segir
hins vegar eðlilegt að nefndar-
menn fái fría miða á tónleikana
enda þurfi þeir ekki sjálfir að
borga aðgang að söfnum bæjarins
á ferð sinni. - ks
Danskir þingmenn tónelskir:
Fara á tónleika
með Madonnu
NEYSLUVENJUR Ávaxtaneysla
Íslendinga hefur aukist verulega
síðustu tvö ár eða um 13,2 kg á
hvern íbúa. Þetta
kemur fram í
tölum um fæðu-
framboð á Íslandi
árin 2004 og 2005.
Laufey Stein-
grímsdóttir nær-
ingafræðingur á
Lýðheilsustöð
segir þessar nið-
urstöður koma á
óvart en að þær
megi rekja til þess að skólar og
vinnustaðir séu í auknum mæli
farnir að bjóða upp á ávexti.
Íslendingar eiga Norðurlanda-
met í neyslu nýmjólkur en þó
hefur nýmjólkurneysla landans
minnkað á undanförnum árum.
Laufey segir aukningu á neyslu
fituminni mjólkurvara aðallega
vera í formi skyrdrykkja en í
þeim er þó að finna viðbættan
sykur.
Í tölum um fæðuframboð
kemur fram að sykurneysla sé enn
mjög mikil á Íslandi í samanburði
við aðrar Norðurlandaþjóðir eða
tæpt kíló á viku á hvern íbúa. Gos-
drykkir eiga drjúgan þátt í hinni
miklu sykurneyslu og sælgætis-
neysla hefur einnig aukist.
Þá sýna niðurstöður að kjöt-
neysla hefur aukist lítillega síð-
ustu ár og munar þar mest um
aukingu á neyslu kjúklinga og
lambakjöts. - hs
Íslendingar hafa aukið ávaxtaneyslu en sykurneysla er enn mikil:
Sælgætisneysla hefur aukist
LAUFEY STEIN-
GRÍMSDÓTTIR NORÐURLANDAMEISTARAR Í MJÓLKURDRYKKJU Íslendingar drekka mest allra Norður-
landabúa af nýmjólk.
Ráðherrann í Namibíu Einar K.
Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er
nú í heimsókn í Namibíu. Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands stendur þar að
ráðstefnu ásamt Hafrannsóknastofnun
og fleirum.
ÞRÓUNARSAMVINNA