Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 23
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Það er stór áfangi fyrir ungmenni að
fara úr grunnskóla yfir í framhalds-
skóla. Sylvía Björg Kristinsdóttir er ein
þeirra sem stíga það skref í haust. Hún
ætlar í Fjölbraut í Garðabæ.
„Mér líst mjög vel á að byrja í framhalds-
skóla og hlakka bara rosalega til,“ segir
Sylvía þegar hún er spurð hvernig það legg-
ist í hana að hoppa á milli skólastiga. Stutt
vegalengd er milli grunnskólans sem hún
hefur gengið í undanfarin ár og fjölbrauta-
skólans. Samt segir hún fáa af hennar gömlu
bekkjarfélögum samstiga henni í náminu.
„Það fara eiginlega allir hver í sína áttina,
bæði dreifast þeir milli brauta innan FG og
sumir fara í aðra skóla,“ útskýrir hún og
það gætir smá söknuðar í röddinni. Sjálf
ætlar hún á félagsfræðibraut. „Þar er svo
mikið val,“ segir hún og kveðst til dæmis
hafa mikinn áhuga á fjölmiðlafræðinni. Í
framhaldinu er hún spurð hverjar hafi verið
hennar eftirlætisnámsgreinar til þessa.
„Íslenskan,“ svarar hún án umhugsunar.
„Ég er búin með fyrsta áfangann, tók hann í
10. bekk.“
Sylvía kveðst vera um fimm mínútur að
labba út í FG svo hann er nánast við bæjar-
dyrnar. Það kemur líka í ljós í spjallinu við
hana að hún er þar hagvön því mamma
hennar vinnur í mötuneytinu. „Ég er búin
að tryggja það að ég fái nóg að borða,“ segir
Sylvía glaðlega að lokum.
gun@frettabladid.is
Íslenskan í uppáhaldi
Sylvía Björg lítur björtum augum fram á komandi vetur í FG. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skoda Octavia bifreið sem lagði
af stað í hringferð um landið á
mánudag ætti að skila sér aftur
til Reykjavíkur fyrir hádegi í dag,
gangi allt eftir óskum. Tilgangur
ferðarinnar er að athuga hvort
Skódinn, sem er dísilbíll, komist
hringinn á einum tanki.
Útivist stendur fyrir Útivistarrækt
á morgun eins og aðra fimmtu-
daga. Að þessu sinni verður
gengið frá bílastæðinu þar sem
Skógræktarfélag Reykjavíkur var
í Fossvogi og gengið vestur með
Öskjuhlíð, um Nauthólsvík og
út með Skerjafirði að norðan út
undir Ægisíðu. Farið er sömu leið
til baka og gönguferðin tekur
rúma klukkustund.
Tveir fyrirlestrar fara fram í fyrir-
lestrastofu á 2. hæð í Lækna-
garði Háskóla Íslands í dag.
Báðir fjalla þeir um erfðafræði
ávana- og fíkniefnanotkunar. Kl.
14.00 hefst fyrirlestur Dr. Ming Li,
Searching Susceptibility Genes
for Nicotine Dependence, og
kl. 15.00 tekur Dr. Jonathan D.
Pollock við með fyrirlestur sinn,
Addiction in Genetics at National
Institute on Drug Abuse.
[ NÁM FERÐIR BÍLAR ]
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagurinn
23. ágúst, 235. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.42 13.30 21.16
Akureyri 5.19 13.15 21.09
Santa Fe vel tekið
NÝ KYNSLÓÐ SANTA FE FÉKK NÝLEGA FIMM STJÖRNUR HJÁ
BRESKA BÍLABLAÐINU AUTO EXPRESS.
Síðasta tölublaði
fylgdi sérstakur
frístundaviðauki sem
fjallar meðal annars um
Toyota RAV4, Nissan
X-trail, Honda CR-V og
fleiri í 4x4 flokknum
sem fallið geta undir
skilgreininguna
frístundabíll. Santa
Fe og Land Rover
Freelander voru þeir
einu sem hlutu fimm
stjörnur og voru það aðallega kraftmiklir jeppaeiginleikar og þar
með aukin fjölhæfni, sem tryggði þeim fimmtu stjörnuna.
Jafnframt var óvenjugott rými talið Santa Fe sérstaklega til tekna,
ásamt „frábærri“ dísilvél og vel útfærðri sjö sæta útgáfu. Þá valdi
blaðið Santa Fe besta nýja 4x4 bílinn á árinu í júní-blaðinu sínu.
Breska bílablaðið Auto Express telur
innanrými Santa Fe óvenjugott og bílnum
til tekna.
LÆRDÓMSRÍKT FERLI
EN DÝRT OG TÍMAFREKT
Daði Erlingsson gerbreytti Toyota
Corolla bifreið á fjórum
árum.
BÍLAR 2
HLAKKAR TIL OG
KVÍÐIR FYRIR
Það eru ekki aðeins börnin
sem eru að byrja í skólan-
um í haust. Nokkrir nýir
kennarar taka til starfa.
NÁM 4