Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 48
MARKAÐURINN 23. ÁGÚST 2006 MIÐVIKUDAGUR18 F Y R S T O G S Í Ð A S T ACTAVIS STYRKIR FORVARNAVERKEFNIÐ YOUTH IN EUROPE Í VILNIUS Svafa Grönfeldt, aðstoðarforstjóri Actavis, og Arturas Zuokas, borgarstjóri Vilnius, handsala hér samning um þátttöku Vilnius í forvarnaverkefni evrópskra borga sem var undirritaður í höfuðstöðvum Actavis á dögunum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari verkefnisins og Reykjavíkurborg leiðir samstarfið, en Actavis er aðal styrktaraðilinn. Markmiðið er að rannsaka fíkniefnaneyslu evrópskra ungmenna, bera saman ólíkar forvarnir og virkja stofnanir og almenning til aðgerða gegn fíkniefnavá. Viðstaddir undirritunina voru forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík. Á myndinni eru einnig Jónas Tryggvason, framkvæmdastjóri Actavis í Mið- og Austur-Evrópu og Asíu, og vísindamennirnir Þórólfur Þórlindsson og Inga Dóra Sigfúsdóttir, sem standa að rannsóknunum sem verkefnið byggir á. Það færist í aukana að íslensk fyrirtæki ráði til sín nokk- urs konar einkaþjálfara til að hámarka frammistöðu stjórn- enda sinna, fyrirtækinu og þeim sjálfum til hagsbóta. Fer þessi starfsvettvangur vaxandi og æ fleiri sem hafa hug á að veita ráðgjöf með þessari hug- myndafræði. Nú í vor lauk fyrsti hópurinn námi í svokallaðri ACC Coach- þjálfun (Associated Certified Coach) á vegum Leiðtoga ehf. og í ágúst hefur annar hópur nám sitt á þessu sviði. Kennslan fer þannig fram að alltaf eru tveir leiðbeinendur, kona og karl. Matilda Gregersdotter, annar stofnenda Leiðtoga ehf., leið- beinir á námskeiðinu auk Svíans Domenico La Corte, sem er vott- aður coach-þjálfari. Matilda hefur nýverið staðist próf og fengið vottun frá International Coach Federation og hefur því öðlast réttinn á starfstitlinum ACC, Associated Certified Coach. Að sögn Matildu hefur lítið sem ekkert verið rannsakað á þessu sviði í Evrópu á aka- demísku stigi. Úr því vildi hún bæta og því sótti hún um og fékk samþykkt doktorsnám við guðfræðideild Háskóla Íslands undir handleiðslu Hauks Inga Jónassonar. Þar leitast hún við að spyrja hvort nota megi mark- þjálfun sem sálgæsluaðferð til að koma uppbyggjandi gildum kirkjunnar á skilvirkan hátt inn í þjóðfélag og athafnalíf. - hhs MATILDA GREGERSDOTTER HJÁ LEIÐTOGA Stundar doktorsnám við guð- fræðideild Háskóla Íslands þar sem hún leitast við að spyrja hvort nota megi mark- þjálfun sem sálgæsluaðferð. Einkaþjálfarar hugans útskrifast Avion Group hefur gert samn- ing um kaup á fimm prósent- um hlutafjár í ástralsk-asíska flugrekstrarfélaginu Advent Air. Kaupverð er tvö hundruð milljónir króna. Jafnframt gerði Avion Group samstarfssamning við Advent Air. Í samstarfinu felst að Advent Air mun leigja allt að fjórar Airbus A320 vélar af dótturfélögum Avion Group, Star Airlines í Frakklandi og Star Europe í Þýskalandi. Skywest, sem er dótturfélag Advent Air og flýgur einkum til Ástralíu, mun nota flugvélarnar. Advent Air er skráð á AIM-hlutabréfamarkaðinn í Lundúnum. -jsk Avion kaupir í Advent Air Hagnaður bandarísku fatakeðj- unnar Gap nam 128 milljón- um bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 8,9 milljarða íslenskra króna, á öðrum ársfjórðungi. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 272 milljónum dala eða 18,8 milljörðum króna og jafngildir þetta 53 prósenta samdrætti á milli ára. Helsta ástæðan er minni sala, verðlækkanir á vörum fyrirtæk- isins, aukinn auglýsingakostnaður og harðari samkeppni. Að sögn fyrirtækisins mun samdráttur einnig hafa verið hjá fyrirtækinu í þessum mánuði og er því spáð slakari afkomu fyrir árið í heild en áður var búist við. Greiningaraðilar segja niður- stöðurnar slæmar fyrir Gap og hefur gengi bréfa fyrirtækisins lækkað ört. - jab ÚR EINNI VERSLUN GAP Hagnaður Gap dróst saman um 83 prósent á milli ára. Slæm afkoma Gap MAGNÚS ÞORSTEINSSON Magnús, sem er stjórnarformaður Avion Group, sést hér halda ræðu á aðalfundi félagsins. Stjórnvöld á Indlandi hafa hug á að verja sem nemur einum milljarði bandaríkjadala eða rúmum 69 milljörðum íslenskra króna í olíuleit-, vinnslu og námagröft á Fílabeinsströndinni á vesturströnd Afríku á næstu fimm árum. Með verkefninu mun vera horft til þess að ná í ódýrara eldsneyti úr auðlindum Fíla- beinsstrandarinnar til að anna ört vaxandi eftirspurn eftir orkugjöfum á Indlandi. Amarendra Khatua, sendi- herra Indlands á Fílabeins- ströndinni, segir Indverja glíma við sama vanda og Kínverjar. Landsmönnum hafi fjölgað mikið í báðum löndunum, efnahagur íbúanna batnað mikið á undanförnum árum og þeir hafi ráðrúm til fjárfestinga. Þá geri þeir miklar kröfur um ódýra og örugga orkugjafa. Sextíu þúsund tunnur af hráolíu eru framleiddar á Fílabeinsströndinni á degi hverjum en Indverjar horfa til þess að auka framleiðsluna enn frekar og hafa varið sem nemur 832 milljónum íslenskra króna til frekari rannsókna. Þá munu tilraunaboranir vera þegar hafnar úti fyrir ströndum landsins. - jab Indverjar bora eftir olíu í Afríku OLÍUBORUN Indverjar horfa til þess að auka olíuframleiðslu sína með borun á Fílabeinsströndinni. Bandaríski snyrtivörufram- leiðandinn Estée Lauder skil- aði minni hagnaði en spáð hafði verið á öðrum ársfjórðungi. Hagnaðurinn nam 49,1 milljón bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 3,4 milljarða íslenskra króna, en það er 17,8 milljóna dala minni hagnaður en á sama tíma fyrir ári. Þrátt fyrir þetta námu tekjur fyrirtækisins 108,8 milljónum dala á tímabilinu og 51 senti á hlut. Það er þremur sentum betur en sérfræðingar höfðu spáð fyrir um. Stjórnendur snyrtivöru- fyrirtækisins segja fyrirtækið ætla að einbeita sér að nýjum mörkuðum auk þess að efla vörur sínar á heimamarkaði. Þá hyggst fyrirtækið hagræða í rekstri og er spáð mun betri afkomu á tímabilinu eða um tveimur dölum á hlut. - jab SNYRTIVÖRUR FRÁ ESTÉE LAUDER Estée Lauder græðir minna Markmál Þýðingar og skjalagerð Aðsetur í ReykjavíkurAkademíunni - Hringbraut 121 www.markmal.is - markmal@markmal.is - S: 660 5003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.