Fréttablaðið - 23.08.2006, Page 18
23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR18
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
Þórarinn Tyrfingsson er formaður SÁÁ
og yfirlæknir á Vogi.
Kókaín-
neysla vex
Hefur kókaínneysla aukist á Íslandi?
Ef við lítum til síðustu sjö til átta ára
hefur kókaínneysla farið stöðugt vax-
andi. Hún jókst hraðast 1998 til 2000
en hefur farið hægt vaxandi undan-
farin þrjú ár. Kókaínneysla er samofin
amfetamínneyslunni, sumir eru að
færa sig yfir í kókaínneyslu og öfugt.
Þetta hefur svipað yfirbragð og tengist
skemmtanalífi.
Hvers konar hópur sækir í kókaín?
Það er goðsögn að þetta sé vinsælast
meðal ríkra en það er ekkert sem
bendir til þess, þó það sé kannski
sannleikskorn í því. Þeir sem koma
til meðferðar eru ungir, ekki ríkir og
félagslega illa staddir. Þeir eru ekki
í skólum og oftast atvinnulausir. Í
Evrópu er kókaínneyslan allt öðruvísi
en í Bandaríkjunum, Hér er hún miklu
blandaðri annarri vímuefnaneyslu og
minna er um að hreina kókaínneyslu.
SPURT OG SVARAÐ
KÓKAÍNNEYSLA Á ÍSLANDI
Rauði krossinn tilkynnti í fyrradag að öll full-
valda ríki heims, 194 talsins, hefðu undirritað
Genfarsáttmálann um stríðsátök. Þetta er í
fyrsta sinn sem nokkur samningur telst algild-
ur í samfélagi þjóða. Svartfellingar voru síðastir
þjóða og skrifuðu undir í byrjun ágúst.
Hvað er Genfarsáttmálinn?
Genfarsáttmálinn er í raun ekki einn sáttmáli
heldur fjórir alþjóðasamningar sem samþykktir
voru árið 1949 með tveimur frekari viðbót-
um árið 1977. Samningarnir eru alþjóðleg
mannúðarlög sem snúa að verndun þeirra
sem ekki taka beinan þátt í ófriði og vernda
þá fyrir afleiðingum átakanna. Þar er aðallega
átt við óbreytta borgara, stríðsfanga, starfsfólk
hjálparsamtaka og særða eða sjúka hermenn.
Lykilorð samninganna eru „virðing“ og „vernd“
gagnvart þeim sem taka ekki beinan þátt í
hernaði. Í samningunum er hugtakið virðing
skilgreint á þann hátt að „hvorki megi gera
mönnum miska, ógna þeim né taka
líf þeirra og alltaf beri að koma
réttlátlega fram við þá og virða
sem manneskju“. Vernd er
skilgreind þannig að „hlífa
beri mönnum fyrir hættu
eða þjáningum sem gætu
ógnað þeim og að koma
þeim til verndar, hjálpar og
stuðnings“.
Hvenær var sáttmálinn
skrifaður?
Sem fyrr segir er ekki um einn
sáttmála að ræða heldur fjóra
samninga sem hver fjallar um ákveðið
málefni. Sá fyrsti, sem var fullgerður árið
1864, fjallar um bætta meðferð særðra og
sjúkra hermanna. Annar samningurinn,
skrifaður 1906, nær til átaka á sjó
og kveður á um bætta meðferð
særðra, sjúkra og skipreika
hermanna. Sá þriðji var
skrifaður árið 1929 og tók
á málefnum stríðsfanga.
Árið 1948 voru samn-
ingarnir endurskoðaðir
á ráðstefnu í Stokk-
hólmi, að hluta til vegna
brota hernaðaraðila á
sáttmálanum í seinni
heimsstyrjöldinni. Þá var
fjórði samningurinn ritaður
og ári síðar voru samningarnir
fjórir samþykktir í heild sinni. Tvær
viðbætur voru gerðar árið 1977 vegna
FBL-GREINING: GENFARSÁTTMÁLINN
Sáttmáli um virðingu og vernd
Talsverður styr hefur
staðið um klofningu eins
og hálf árs gamals mennta-
ráðs Reykjavíkurborgar í
tvö ráð með endurstofnun
leikskólaráðs. Fagaðilar
hafa mótmælt breytingunni
og sagt engin fagleg rök
vera fyrir henni. Allir eru
sammála um að mýkja þurfi
skil milli skólastiganna, en
eru ósammála um leiðina.
Í ársbyrjun 2005 var fræðsluráði
Reykjavíkur og leikskólaráði
steypt saman í nýtt menntaráð að
undirlagi R-listans sáluga.
Fræðsluráðið hafði farið með
málefni grunnskólanna, tónlistar-
skóla og námsflokka en leikskóla-
ráðið með málefni leikskóla, dag-
mæðra, gæsluvalla og leikvalla.
Minnihluti Sjálfstæðisflokks í
borgarstjórn lagðist gegn tillög-
unni, sem þó varð að veruleika.
Nú þegar Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur hafa tekið
höndum saman í borgarstjórn
hefur nýtt borgarráð tekið
ákvörðun um það að kljúfa
menntaráð aftur, og endurstofna
leikskólaráðið. Áætlað er að það
taki til starfa hinn 15. september
í stækkaðri mynd.
Hvers vegna þessar breytingar?
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
verður formaður leikskólaráðs, og
segir hún meginástæðu breyting-
arinnar nú vera þá að leggja aukna
áherslu á leikskólastarf í borginni.
„Við teljum það vera gríðarlegt
heillaspor fyrir leikskólana að fá
sérstakan vettvang til umræðu og
framkvæmda,“ segir Þorbjörg
Helga. „Það eru um helmingi fleiri
stefnumótandi aðilar sem munu
koma að þessum málum eftir
breytinguna.“
Þorbjörg Helga segir það einn-
ig hafa verið löst á menntaráði
hversu margir sátu fundina.
„Menntaráð telur yfir 20 manns,
sem er stærra en borgarstjórn, og
borgarstjórn er nú ekki talin fara
yfir málin af mikilli dýpt,“ segir
Þorbjörg. „Þarna er endalaust af
málum afgreitt og það gefst mjög
lítill tími til að ræða stefnumálin
sem við viljum móta til að efla
skólakerfið. Þetta er fyrst og
fremst stjórnsýslubreyting.
Tuttugu manna stjórn í fyrirtæki
telst ekki mjög öflug stjórn, og
þetta er sambærilegt því.“
Stefán Jón Hafstein, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, var
formaður menntaráðs á síðasta
kjörtímabili, og hann tekur undir
þetta. „Eini gallinn sem mér
fannst við menntaráð var sá að
ráðsfundirnir urðu nokkuð marg-
mennir, því þarna voru áheyrnar-
fulltrúar kennara, foreldra og
skólastjóra beggja skólastiga.
Hins vegar komu kostirnir líka í
ljós þegar allt þetta fólk settist
saman og ræddi málin, því það
kom miklu meira út úr fundun-
um.“
Skólastigin færð nær hvort öðru
Breytingin árið 2005 var vegna
þess að færa átti leikskólana nær
grunnskólunum. „Það má segja að
þetta hafi endurspeglað það álit
okkar að leikskólinn sé að þróast
úr því að vera svokallað dagvist-
arúrræði í það að vera fyrsta
skrefið á menntabrautinni. Við
teljum að leikskólinn eigi að vera
jafnsettur grunnskólunum hvað
varðar faglega umfjöllun mennta-
mál. Það eru sífellt fleiri sem
benda á það að skilin milli leik-
skóla og grunnskóla séu of skörp,“
segir Stefán.
Þorbjörg Helga segir þetta
vera stefnu nýs meirihluta eins og
ríkisstjórnarinnar, þrátt fyrir
breytingarnar. „Ráðin munu sam-
einast reglulega á fundum og allir
starfshópar ráðanna sem varða
sameiginleg mál munu hafa full-
trúa beggja ráða. Það verður
áfram mjög mikið samstarf og
verkefnin sem slík fá bara meira
vægi í samstarfshópum heldur en
inni í einu menntaráði.“ Segir hún
sérstakan starfshóp þegar hafa
verið stofnaðan til að vinna að því
að skoða skil skólastiganna, efla
samstarfið og sveigjanleikann.
Óánægja með breytingarnar
Kennarasamband Íslands, fulltrú-
ar kennara í menntaráði, Félag
leikskólakennara og aðrir fagaðil-
ar hafa gagnrýnt fyrirhugaða
breytingu og sagt fagleg rök fyrir
henni skorta. Þá hafa þeir sagt
skiptinguna vera skref aftur á bak
í því ferli að færa leikskólann nær
grunnskólanum. Borgarráði hefur
meðal annars verið afhentur undir-
skriftalisti með nöfnum rúmlega
700 leikskólakennara þar sem
klofningunni er mótmælt.
Þorbjörg Helga segist telja það
sem þegar hefur komið fram fag-
leg rök fyrir breytingunni. Hún
bendir einnig á að sömu aðilar
hafi á sínum tíma sett sig upp á
móti því að sameina fræðsluráð
og leikskólaráð í eitt.
Stefán Jón segir að fagstéttirn-
ar hafi áttað sig á því að samein-
ingin var til góðs eftir að hún var
um garð gengin. „Þess vegna vilja
þær alls ekki breyta þessu til baka
núna.“
Allir hlutaðeigandi virðast því
vera sammála um það að mýkja
þurfi skilin milli leikskólastigsins
og grunnskólastigsins. Deilan
snýst minnst um markmiðið en
mest um leiðina að því, eins og oft
vill verða. Hvaða áhrif breytingin
mun síðan hafa á eftir að koma í
ljós.
Deilt um leið en ekki markmið
ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTTIR Segir að
ráðin muni sameinast reglulega á fundum.
STEFÁN JÓN HAFSTEIN Segir að fagstéttirnar
hafi áttað sig á kostum sameiningarinnar.
LEIKSKÓLABÖRN Í LEIKFIMI Eitt helsta deilumálið í borgarpólitíkinni í sumar snertir málefni leikskóla og grunnskóla. R-listinn sameinaði
Fræðsluráð Reykjavíkur og leikskólaráð í fyrra. En nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn skipt hinu nýstofnaða menntaráði aftur í tvennt.
FRÉTTASKÝRING
STÍGUR HELGASON
stigur@frettabladid.is
> Fjölmennustu götur í Reykjavík árið 2005
Heimild: Hagstofa Íslands
1.
22
1
1.
48
9
2.
41
3
1.
20
6
Háaleitis-
braut
Vestur-
berg
Klepps-
vegur
Hraun-
bær
Íb
úa
fjö
ld
i