Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 78

Fréttablaðið - 23.08.2006, Side 78
 23. ágúst 2006 MIÐVIKUDAGUR42 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2 atlaga 6 skóli 8 struns 9 stansa 11 hætta 12 mögla 14 gapa 16 í röð 17 almætti 18 fæða 20 guð 21 áætlun. LÓÐRÉTT 1 ómögulegur 3 guð 4 aðgætinn 5 skjön 7 örlátur 10 kraftur 13 tækifæri 15 hástétt 16 ósigur 19 samtök. LAUSN „Það varð nú óvart þannig að öll þessi leikstjórabörn verða í mynd- inni. Þegar ég var að leita að leik- urum í vetur fór ég á mennta- skólasýningarnar og þá voru þessir krakkar þau sem stóðu upp úr,“ segir kvikmyndaleikstjórinn Guðný Halldórsdóttir. Tökur á nýrri mynd hennar, Veðramótum, hefjast í vikunni og svo skemmti- lega vill til að hún hefur safnað saman í leikhópinn börnum flestra þekktustu kvikmyndaleikstjóra landsins. Þekktustu nöfnin í leikhópnum eru þeir Hilmir Snær Guðnason og Atli Rafn Sigurðarson en með önnur stór hlutverk fara börn flestra þekktustu kvikmyndaleik- stjóra landsins. Þau eru Tinna Hrafnsdóttir, dóttir Hrafns Gunn- laugssonar, Gunnur Martinsdótt- ir Schlüter, dóttir Ásdísar Thor- oddsen, Hera Hilmarsdóttir, dóttir Hilmars Oddssonar, Balt- asar Breki, sonur Baltasars Kor- máks, og Arnmundur Ernst Björnsson, sonur Eddu Heiðrún- ar Backman. „Þetta eru allt börn leikstjóra, börn vina minna. Sum þeirra hef ég ekki séð síðan þau voru oggu- lítil og hafði því ekki hugmynd um að þau væru komin út í leik- listina. En það virðist sem þau séu öll með brennandi áhuga og hafa mörg skipað stóran sess í þeim leikfélögum sem þau hafa verið í. Sum krakkanna hafa svo leikið hjá mér áður,“ segir Guðný. „Þetta er náttúrlega spennu- saga eins og mikið er í tísku núna. Ég tolli í tískunni,“ segir Guðný þegar hún er spurð út í nýju myndina. Veðramót fjallar um heimili fyrir vandræðaunglinga norður í landi árið 1974. Sagan gerist í nútímanum en brugðið er upp svipmyndum frá 1974 „þegar hippamennskan var við lýði,“ eins og Guðný orðar það. „Það er ungt fólk sem tekur við þessu vand- ræðaheimili og það innleiðir nýjar uppeldisaðferðir. Ég myndi halda að óhætt sé að segja að þar gangi á ýmsu,“ segir Guðný. hdm@frettabladid.is GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR: LEIKSTÝRIR VEÐRAMÓTUM Börn þekktustu leikstjóra landsins saman í bíómynd LEIKSTJÓRABÖRNIN Á ÆFINGU Frá vinstri eru Ugla Egilsdóttir, Hera Hilmarsdóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter, Jörundur Ragnarsson, Guðný Halldórsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Arnmundur Ernst Björnsson, Baltasar Breki Baltasarsson, Tinna Hrafnsdóttir og Hilmir Snær Guðnason, sem er kominn með myndarlegt hippaskegg fyrir myndina.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1. The Guardian 2. Ítalir 3. Garður LÁRÉTT: 2 árás, 6 fg, 8 ark, 9 æja, 11 vá, 12 röfla, 14 flaka, 16 tu, 17 guð, 18 ala, 20 ra, 21 plan. LÓÐRÉTT: 1 ófær, 3 ra, 4 árvakur, 5 ská, 7 gjöfull, 10 afl, 13 lag, 15 aðal, 16 tap, 19 aa. HRÓSIÐ ... fær Guðrún Kristmundsdóttir á Bæjarins beztu sem valinn var annar besti matsöluturn Evrópu í úttekt The Guardian. FRÉTTIR AF FÓLKI Vandræðalegt atvik átti sér stað skömmu fyrir útsendingu á seinni hálfleik í viðureign Chelsea og Manchester City á Skjá Sporti á sunnu- dag. Snorri Már Skúlason, sem hefur staðið sig með mikilli prýði í umfjöllun sinni um enska boltann, vissi greinilega ekki að kveikt væri á myndavélinni því hegðun hans var afar óvenjuleg. Klóraði hann sér í nefinu, purraði með munnin- um og spjallaði við útsendingarstjóra allt þar til hann fékk ábend- ingu um að leikurinn væri að byrja. Atvikið var grátbroslegt og það merkilega var að það stóð yfir í að minnsta kosti eina mínútu án þess að Snorri hefði nokkra hug- mynd um að hann hefði verið í mynd allan tímann. Popp-prinsessan Leoncie býr á Englandi um þessar mundir þar sem hún reynir að koma tónlist sinni á framfæri. Leoncie reyndi fyrir skömmu að komast að í raun- veruleikaþáttunum X - Factor þar sem þau Sharon Osbourne, Paul Welsh og Simon Cowell ráða ríkj- um en sérstakur gestadómari í þessum þætti var hin geðþekka Paula Abdul sem hefur verið aðal- dómari í American Idol þáttunum. Þættirnir njóta mikilla vinsælda í Bretlandi og hafa sigurvegararn- ir náð góðum árangri eftir að hafa komið fram í þáttunum. Leoncie söng Tom Jones-slagarann, It‘s Not Unusual, fyrir dómefndina við miklar unditektir hennar þar sem Paula Abdul sprakk meðal annars úr hlátri þegar flutningn- um lauk. Þegar Fréttablaðið reyndi að ná tali af Leon- cie reyndist það þraut- inni þyngri því söngkon- an hefur ráðið til sín aðstoðarkonu, Michelle, sem svarar öllum spurningum handa Leoncie. „Leoncie bað mig um að svara tölvupóstin- um frá þér en hún er ekki við sem stendur. Sendu mér spurningarn- ar og ég mun láta Leoncie hringja í þig,“ skrifaði aðstoðar- kona Leoncie sem greinilega hefur í nógu að snúast fyrir poppdívuna á Eng- landi. Þá kom fram í svari Michelle að Leoncie hefði fengið fjölda tilboða í kjölfar sjónvarpsþáttarins og væri ákaf- lega upptekin manneskja um þessar mundir. -fgg Leoncie með aðstoðarkonu á Englandi DÓMNEFNDIN Hefur örugglega ekki séð aðra eins frammistöðu í þættinum eins og þá sem Leoncie töfraði fram í X - Factor. LEONCIE Söng lag Tom Jones, It‘s Not Unusual, með sínu nefi. „Ég hafði aldrei tíma til að taka meistaranámið af því að ég hafði svo mikið að gera með fram vinn- unni á stofunni. Nú er hins vegar kominn tími til að klára þessa gömlu drauga,“ segir Svavar Örn Svavars- son hárgreiðslumaður sem ætlar að setjast á skólabekk í vetur. Meist- aranámið er tvær annir í kvöldskóla og verður aðaláherslan á bókfærslu, stærðfræði og fleira í þeim dúr. „Ég ætti að verða fær um að reikna út línurnar í hausnum á viðskiptavin- um mínum eftir námið,“ segir Svav- ar og brosir. Viðskiptavinir Svavars á hár- geiðslustofunni Senter í Tryggva- götu þurfa ekki að hafa áhyggjur því hann segist ætla að skrópa í skól- ann þegar nýju línurnar koma svo að hann geti áfram fylgst með öllu því nýjasta. „Það verður hver ein- asta mínúta skipulögð í vetur en ég ætla að einbeita mér algjörlega að stofunni, skólanum og NFS.“ Svav- ar ætlar að byrja daginn fyrr á morgnana til að geta sinnt viðskipta- vinum sínum áður en hann fer í skól- ann sem byrjar ýmist klukkan fimm eða sex á daginn. „Á laugardögum kem ég síðan til með að mæta eld- sprækur í skólann klukkan átta og síðan beint á stofuna um hádegisbil- ið,“ segir hinn orkumikli hár- greiðslumaður, Svavar Örn. - sig Svavar Örn sest á skólabekk SVAVAR ÖRN SVAVARSSON Hárgreiðslu- maðurinn vinsæli ætlar að klára meist- aranám sitt í hárgreiðslu í vetur. Hann rekur þó áfram hárgreiðslustofuna Senter í Tryggvagötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Stelpnabandið The Nana‘s með Nönu úr Idolinu í broddi fylkingar stefnir á að gefa út plötu snemma á næsta ári. Þegar hafa stöllurnar sent eitt lag í útvarpsspilun og munu taka upp annað lag á næstu dögum. Lögin sem um ræðir eru I Lose My Mind og It Must Have Been Love með Roxette með íslenskum texta. Hljóm- sveitin stefnir að því að gefa út eitt lag til viðbótar áður en upptaka plötunn- ar hefst. Þess má geta að trommuleikari hljómsveitarinnar er Dísa, nýbökuð eiginkona Nönu. Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal er fjölhæfur eins og alþjóð veit. Eftir að tilkynnt var um endalok Strákanna á Stöð 2 í vor hefur hann verið að þreifa fyrir sér um næstu verkefni. Í undirbúningi er að hann verði með þætti á Sirkus í vetur en það er ekki komið lengra á veg en svo að Auð- unn hefur ákveðið að gefa sér tíma til að læra hand- ritsgerð. Auðunn hefur skráð sig á námskeið í handritsgerð sem haldið verður í byrjun september í tengslum við IFF-kvikmynda- hátíðina. Annar kennaranna á nám- skeiðinu kom að gerð kvikmyndarinn- ar Deuce Bigalow: European Gigalo svo að Auðunn ætti að fá góða kennslu í fræðunum. 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2 F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.