Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 23. ágúst 2006 15
Sjálfskiptur Beinskiptur
Verð á Isuzu D-MAX Crew Cab 2.590.000 kr. 2.490.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
7
4
5
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00
Isuzu hefur fyrir löngu sannað öryggi og endingu á íslenskum vegum. Nú kynnum við nýjan og
stórglæsilegan Isuzu D-MAX pallbíl. Hann er þjáll og lipur í akstri, en jafnframt rammbyggður
og traustur félagi og á alveg ótrúlega góðu verði.
Isuzu D-MAX hefur fengið alveg nýtt útlit og er staðalbúnaður eins og hann gerist bestur, þar
má nefna loftkælingu, ABS hemlakerfi, álfelgur o.fl. Isuzu er með 3.0 lítra dísilvél með túrbínu
og millikæli og skilar 130 hestöflum.
Isuzu D-MAX er farkostur fjölskyldunnar, vinsæll vinnufélagi og verðið ráða allir við!
PALLBÍLL Á
POTTÞÉTTU VERÐI!
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
464 7942
KORTAÚTGÁFA Landmælingar hætta
útgáfu korta um áramótin og verð-
ur kortaútgáfa boðin út um næstu
áramót. Landmælingar munu því
ekki gefa út kort af öllu landinu í
kvarðanum 1:50.000 en það eru
þau kort sem björgunarsveitir og
göngufólk notast við á ferðum
sínum. Kort í þessum kvarða hafa
verið gefin út af hluta landsins og
eru þau byggð á hálfrar aldar
gömlum kortum sem Bandaríkja-
her gerði af landinu.
Gunnar H. Kristjánsson, sölu-
stjóri Landmælinga, segir kort í
þessum kvarða hafa verið gerð og
séu til í stafrænum gagnagrunni
stofnunarinnar. Þau séu meðal
annars aðgengileg fyrir staðsetn-
ingartæki. Vegna þess að ákveðið
hefur verið að Landmælingar
muni hætta útgáfu korta er ekki
ljóst hvort kort í þessum kvarða
verða gefin út eða ekki.
Ekki til kort af öllu Íslandi:
Útgáfa landakorta
verður boðin út
ÍSLAND KORTLAGT Ekki hafa verið gefin
út kort af Íslandi í kvarðanum 1:50000 á
þeim hluta landsins sem er grænlitaður á
myndinni. Myndin misprentaðist í gær og
er því prentuð hér á nýjan leik.
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde forsæt-
isráðherra er í opinberri heim-
sókn í Eistlandi í tilefni þess að
fimmtán ár eru síðan Eistland
endurheimti sjálfstæði sitt. Ísland
varð fyrst ríkja til að taka upp
stjórnmálasamband við Eistland
og verður skjöldur til minningar
um stuðning Íslands afhjúpaður á
Íslandstorgi í höfuðborginni Tall-
inn.
Í heimsókninni hittir Geir eist-
neskan starfsbróður sinn, forseta
landsins, utanríkisráðherra, for-
seta þingsins og borgarstjóra Tall-
inn. Þá heimsækir hann fyrirtæki
sem tengjast viðskiptum við
Ísland. - bþs
Geir H. Haarde í Eistlandi:
Hittir helstu
ráðamenn
GEIR H. HAARDE Forsætisráðherra er í
opinberri heimsókn í Eistlandi.
CHICAGO, AP Starfsmenn útlend-
ingastofnunar Bandaríkjanna ætla
ekki að ráðast inn í kirkjuna sem
skýlir Elviru Arellano og syni
hennar, Saul.
Mæðginin hafa dvalið í kirkj-
unni síðan á þriðjudaginn í síðustu
viku, en þá stóð til að vísa Elviru
úr landi. Sonur hennar er banda-
rískur ríkisborgari og hefði mátt
vera eftir, en án móður sinnar.
Elvira segist ekki geta hugsað sér
að fara með hann með sér, því í
Mexíkó séu ekki viðlíka tækifæri
fyrir hann og í Bandaríkjunum.
Innflytjendayfirvöld eru þó
ekki af baki dottin, þau munu ætla
að bíða betra tækifæris. Elvira
mun því sitja sem fastast í kirkj-
unni enn um sinn. - kóþ
Innflytjendayfirvöld hika:
Kirkjan er
griðastaður
ELVIRA ARELLANO Vann áfangasigur í bar-
áttu sinni, en dvelur enn í kirkjunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
YFIRLÝSING Vegna fréttar um ólög-
mæta notkun lista um mætingar
sem birtist í Fréttablaðinu í gær
skal tekið fram að Samfés er ekki
beinn aðili að umræddu máli.
Í yfirlýsingu frá Samfés kemur
fram að Samféshátíðin sé vinsæl
meðal unglinga og því sé miða-
fjöldi takmarkaður. Samfés úthlut-
ar miðum til félagsmiðstöðva en
þeim er síðan úthlutað til nemenda
án afskipta Samfés. Í starfsemi
félagsmiðstöðva er lögð áhersla á
að ná til þeirra sem ekki finna sig
í skólakerfinu og því samræmast
útilokanir úr starfi félagsmið-
stöðva ekki þeirri hugmyndafræði
sem þær vinna eftir. - hs
Samfés ekki aðili að málinu:
Samfés útilok-
ar engan