Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 24
[ ] Lærdómsríkt ferli, en frekt á tíma og peninga. Fyrsti bíllinn sem Daði Erlingsson fékk sér var Toyota Corolla, árgerð 1994. Fjórum árum seinna er bíllinn algjörlega óþekkjanleg- ur, enda hefur Daði eytt þúsund- um vinnustunda og milljónum króna í að breyta bílnum eftir sínu höfði. „Þegar ég keypti þennan bíl var hann ljótur, upplitaður og bleikur. Mig langaði í flottan í bíl. Það er engin skynsemi í þessu en ég er að vinna við bifreiðasmíðar og búinn að læra helling á að gera þetta sjálfur,“ segir Daði sem er tvítugur og keyrir bílinn bara yfir blásumarið. Flesta mánuði ársins er hann inni í skúr þar sem hann vinnur í honum öllum lausum stundum. „Það síðasta sem ég gerði var að skipta um mótor í bílnum. Ég pantaði hann frá Japan. Það er 1600 mótor, 20 ventla og eftir að túrbínu var bætt á hann skilar hann um 210 hestöflum. Svo er nýbúið að mála allan bílinn. Hann hefur verið almálaður þrisvar. Það eru engir hurðarhúnar á honum heldur fer maður inn í hann með fjarstýringu. Undir speglunum eru rafmagnstakkar til að opna framhurðirnar,“ segir Daði. Þetta þætti mörgum nóg en Daði er hvergi nærri hættur upp- talningunni. Í skottinu á bílnum smíðaði hann skel úr trefjaefni sem hýsir fjórar 1000 watta bassa- keilur, þrjá magnara, tvo raf- geyma, tvo þétta, 17 tommu flat- skjá og fjarstýringar fyrir Playstation 2 leikjatölvu. Já, í skottinu. „Inni í bíl er ég búinn að skipta um stóla frammi í, setti í hann körfustóla og ég klæddi aftur- bekkinn og hurðarspjöldin í stíl og lét sérsauma merki í hvort tveggja. Ég sérsmíðaði líka öll hurðarspjöld sem eru með máluð- um hátalarafestingum. Fyrir framan farþegasætið er 7 tommu skjár og í hanskahólfinu er DVD tæki. Bíllinn var rifinn í tætlur og hljóðeinangraður út og í gegn,“ segir Daði sem segist búa eitthvað til eitt árið og gera það svo upp á nýtt árið eftir, þegar hann hefur lært meira. Þannig hafa margir hlutir í bílnum verið smíðaðir upp oftar en einu sinni. „Það vaknaði mikill áhugi hjá mér þegar ég sá fyrstu myndina Fast and the Furious. Það voru ekki mjög margir að þessu þegar ég byrjaði og ég lærði af mistök- unum. Það eru aðallega tvö fyrir- tæki hér á landi sem eru í svona breytingum. Ég og vinur minn fengum punkta hjá öðru þeirra, sem ég er að vinna aðeins fyrir.“ Daði segist hvergi nærri hætt- ur að breyta bílnum en þó sjái hann fram á að fá sér nýjan bíl fljótlega, þar sem hann sé búinn að læra nóg til að takast á við stærra verkefni. „Ég fékk mikla aðstoð við Corolluna og mig lang- ar að nota tækifærið og þakka öllum sem hafa hjálpað mér. Nú getur maður keypt sér alvöru bíl og gert alvöru hluti. Það verður Toyota Supra,“ segir Daði að lokum. einareli@frettabladid.is Margir hlutir smíðaðir oftar en einu sinni Skottið er án efa eitt það flottasta á landinu, og þótt víðar væri leitað. Skelina byggði Daði í fimm hlutum, þannig að hægt er að fjarlæga hana án þess að eyðileggja neitt. Mótorinn er sérpantaður frá Japan. Allar slöngur eru málaðar eða krómaðar. Farþegamegin er skjár og DVD spilari. Eins og sést hefur allur bíllinn fengið andlitslyftingu. Takið sérstaklega eftir hurð- arspjöldunum, sem Daði smíðaði sjálfur. Fjöðrunarkerfið er stillanlegt í hæð og mótorinn mun skila 300 hestöflum þegar Daði hefur lokið við bílinn. Ekki alveg venjuleg Corolla. Daði í bílstjórasætinu. Bíllinn er aðeins notaður stuttan tíma á hverju ári. Olía Það er nauðsynlegt að skipta um olíu á bílnum á 3.000- 5.000 km fresti. Það er til dæmis hægt að láta gera það á smur- stöðvum. F í t o n / S Í A
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.