Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 23.08.2006, Blaðsíða 26
[ ] Um þessar mundir byrja sex ára börn um allt land í skóla í fyrsta sinn. Við tekur nýr heim- ur, nýtt líf. Í sömu sporum standa nýútskrifað- ir kennaranemar sem taka sín fyrstu skref í nýju starfi og upplifa nú skólaumhverfið frá nýju sjónar- horni – hinu megin við kennara- borðið. Edda Björk Gunnarsdóttir er í hópi þeirra. „Ég er að fara að kenna í Árbæj- arskóla. Þar eru börn í fyrsta til tíunda bekk og skólinn er safnskóli á unglingastigi. Það þýðir að þrír skólar sameinast í einn á unglinga- stiginu,“ segir Edda sem sjálf verð- ur umsjónarkennari í 6. bekk. „Ég ákvað að taka umsjónarkennslu og svo er ég að kenna samfélagsgrein- ar í 9. og 10. bekk. Á miðstigi kenn- ir umsjónarkennari íslensku, stærðfræði, samfélagsgreinar, fer með nemendum á bókasafn og heldur utan um öll foreldrasam- skipti.“ Edda útskrifaðist úr Kennara- háskóla Íslands í vor. „Námið var rosalega skemmtilegt en mætti vera lengra. Það vantar áfanga í skyldunámið sem ættu að vera þar, eins og um agastjórnun og umsjón- arkennslu. Þetta eru valáfangar í skólanum en ættu að vera skyldu- áfangar, og eins áfangar um börn með greiningu eins og athyglis- brest, ofvirkni eða sérþarfir. Ég er hlynnt því að námið verði lengt, ég hefði verið til í að vera í skólanum ári lengur til að læra þessa áfanga.“ Aðspurð um ástæðuna fyrir því að hún fór í kennaranám segir Edda að hún hafi alltaf haft gaman af því að vinna með börnum. „Ég var að vinna í sumarbúðum í fjög- ur ár og á leikjanámskeiðum í tvö ár og leiddist út á þessa braut. Það eru engir kennarar í kringum mig, þetta er ákvörðun sem ég tók upp á eigin spýtur.“ Nemendur Eddu komu til skóla í gær og það örlaði á örlitlum kvíða þegar rætt var við hana nokkru áður. „Ég held að það sé eðlilegt, en ég er líka full tilhlökkunar og hlakka mikið til vetrarins. Margir kennarar í skólanum hafa boðið fram hjálp ef þetta verður of mikið. Þetta er því eins og að stökkva út í djúpu laugina, en með björgunar- hring og einhvern á bakkanum sem dregur mann að landi,“ segir Edda. „Ég hlakka til að fá að starfa við það sem ég er búin að mennta mig í og að fá að vera með nemendum og reyna að miðla þekkingu og fræðslu til þeirra, og ala þau svolítið upp,“ bætir hún við og hlær. einareli@frettabladid.is Edda Björk hlakkar mikið til að hefja starf sitt sem kennari.FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hlakkar til að fá að miðla þekkingu og fræðslu Árið 2002 stofnaði Þorsteinn Gauti píanóskóla. Nú sex árum síðar kenna sex kennarar rúmlega hundrað nemendum að spila á píanó eftir þeirra eigin höfði. „Við reynum að koma til móts við alla nemendur okkar og kennum þeim það sem þeir vilja læra,“ segir Þorsteinn þegar hann er spurður um sérstöðu skólans. „Við bjóðum bæði upp á klassískt tónlistarnám og líka nám fyrir þá sem gera þetta eingöngu að gamni sínu.“ Nemendur skólans eru flestir á aldrinum fjögurra ára til tvítugs. Einhverjir nemendur eru eldri en allir eru velkomnir að sögn Þor- steins. Hver sá sem vill læra píanó- leik getur fengið tilsögn og skiptir þá engu máli þótt viðkomandi hafi aldrei snert hljóðfæri og aldrei lesið nótur. „Við erum með eldri deild og þeir, eins og aðrir, geta valið að spila bara uppáhaldslögin sín, lært að lesa nótur og skilja hljómaganga eða spilað eftir eyranu,“ segir Þor- steinn. Fyrir þá sem vilja ganga lengra og leggja áherslu á metnað auk skemmtanagildis er hægt að læra „alla leið upp í listaháskóla,“ eins og Þorsteinn orðar það. Kennt er eftir námskrá menntamálaráðuneytisins svo öllum skilyrðum lengra tónlist- arnáms er uppfyllt. Skólinn er til húsa í Ármúla 38 en þangað flutti starfsemin á síð- asta ári. Rúmt er um nemendur og reglulega eru haldnir jólatónleikar og vortónleikar þar sem nemendur spila hver fyrir annan og aðstand- endur. Kennsla hefst um næstu mánaðamót en skráning fer fram í síma 551 6751 og 691 6980 eða gegn- um rafræna Reykjavík. Nánari upp- lýsingar er að finna á www.pianos- kolinn.is og hægt er að senda fyrirspurnir á pianoskolinn@pian- oskolinn.is. Komið til móts við alla nema Þorsteinn Gauti með nemendum sínum, Matthíasi Huga Grétarssyni og Silju Guðbjörgu Tryggvadóttur. September kemur brátt með vindi og kulda. Best er að undirbúa haustkomuna og eiga nóg af húfum og vettling- um á skólabörnin. VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu. Þau hafa lengt sinn sól ar hring! “Ekki eingöngu les ég hraðar. Ég les með ...margfalt meiri skilning.” Inger, 24 ára Sjúkraliði og nemi. “...held ég sé á góðri leið með að ná inntökuprófinu í læknadeild í vor.” Bergþóra Þorgeirsdóttir, 18 ára næstum því stúdent. “...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á tímasparnað ...” Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur. Hvað segja nem end ur okk ar um nám skeið ið: Frá bært, mark visst, hnit mið að, ævi á byrgð, nyt sam legt, krefj andi, skemmti- legt, mjög gott, skipu lagn ing, ein beit ing, já kvæðni, mik il að stoð, góð ur kenn ari, spenn andi, ár ang urs ríkt, hvetj andi, góð fljón usta. NÝTT! 6. vikna nám skeið hefst 6. sept. (dagnámskeið) NÝTT! 3 vikna hraðnámskeið 21. september AK UR EYRI 31. ágúst og SUÐURNES 12. október Skrán ing á hraðlestrar nám skeið er haf in á www.h.is og í síma 586-9400 Einstakt enskunámskeið Fyrir þá sem vilja styrkja enskugrunninn, tala og skilja enska tungu. • Fjarnám með 27 1/2 tíma enskunámskeiði á cd diskum • Slökunardiskur með jákvæðri staðfestingu með tónlist frá Friðriki Karlssyni • Vinnubók með enska og íslenska textanum • Taska undir diskana • Áheyrnarpróf í lok náms Mörg stéttarfélög, fræðslusjóðir og fyrirtæki styrkja þetta námskeið Allar uppl‡singar www.tungumal.is eða í símum 540-8400 eða 820-3799 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3 EKKERT GERVIGRAS! NÝTT OG BETRA GRAS! WWW.GRAS.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.